Skátablaðið Faxi - 01.12.1998, Page 8
Jarðskjálftaferð
Dalakot 13. - 15. nóvember 1998
Fórum með Herjólfi föstudaginn 13.
nóvember. Eftir skemmtilega
Herjólfsferð komum við til
Þorlákshafnar og tókum rútu
þaðan upp í Dalakot.
Komum þangað í
þvílíku myrkri um kl.
19. Tveir strákar frá
Hveragerði tóku á
móti okkur.
Allir fóru að leita
að vasaljósunum
sínum og smám
saman varð bjart og
hlýtt í kofanum.
Við komumst að því
að kamarinn var
ógeðslegur. Raggi frá
Hveragerði (Búkollu-
bróðir) og Magnús frá
Selfossi voru með okkur og
voru með á stuttri kvöldvöku
sem tvær stelpur úr flokknum
Inkar stjórnuðu. Urðum við mikið
vör við jarðskjálfta, bæði um kvöldið og
um nóttina og því sváfu allir mjög lítið
nema Mummi (foringi).
Laugardagurinn 14. nóvember rann
upp bjartur og allir voru vaknaðir um
tíuleytið. Um og eftir hádegi fórum við
út að stökkva niður af hengjum í
snjónum. Flestir skemmtu sér vel og
sumir voru lengur úti en aðrir.
Foringjarnir fór út að leika sér (á
snjóbrettum) og þegar þeir komu inn
ráku þeir alla út.
Um kvöldið komú krakkarnir frá
Hveragerði og Selfossi og voru með
okkur að syngja. Svo var kvöldvaka
sem var lengri en sú fyrri. Rétt eftir
kvöldvökuna ruddust þrír Hvergerð-
ingar inn með hávaða og látum og
ætluðu að hræða okkur en það gekk
ekki. Einn strákurinn var klæddur eins
og morðinginn í kvikmyndinni Scream.
Allir fóru í háttinn en á misjöfnum
tímum og þeir sem vöktu lengst voru
vakandi fram eftir nóttu að syngja.
Ég vaknaði fyrst af öllum og
hrökk í kút þegar allt í einum
var bankað á dyrnar. Ég
stökk á fætur og fór til dyra.
Þá stóð þar úti pabbi einnar
stelpunnar frá Hveragerði
og sagði að rýma þyrfti
skálann vegna hættu á
stóra skjálftanum. Þá fóru
allir að pakka niður og
rýmdum við kofann á
innan við klukkutíma.
Björgunarbíll frá Hjálpar-
sveit skáta Hveragerði og
tveir L-300 bflar komu og
sóttu okkur og skutluðu okkur
til Hveragerðis þar sem flestir
fóru í sund. Eftir sundferðina var ein
sjoppa á Hveragerði heimsótt og svo
var okkur öllum boðið í kaffi til Siggu
sem er félagsforingi á Hveragerði.
Þegar allir voru saddir var tekin rúta í
Þorlákshöfn og Herjólfur loks heimsót-
tur aftur.
Fyrir hönd þeirra sem í Dalakoti voru:
María Sif Ingimarsdóttir.
Við viijum þakka Siggu og öllum
hinum í Hveragerði sem aðstoðuðu
okkur kœrlega jyrir.
Eskimóar í útilegu
Við mættum upp í gamla golfskála kl.
3. Við komum okkur fyrir. Lísa og
Tinna rifust um rúm því það voru bara
þrjú rúm en Lísa staflaði dýnum upp.
Lísa, Ella og Sóley fóru í afmæli. Þegar
þær komu aftur bjuggum við til
mokkasíur. Síðan fórum við upp í rúm
en Ella fékk heimþrá og hélt vöku fyrir
hinum. Það sofnaði enginn fyrr en kl. 4.
Við vöknuðum kl. 10 og fengum okkur
að borða og tókum til. Svo kláruðum við
mokkasíurnar. Síðan fórum við út í
rigninguna og lékum okkur með vatnss-
lönguna. Við urðum ÖFGA blautar og
kaldar. Svo fóru allir nema Anna Jóna í
heita sturtu. Svo var smá lúritími frá kl.
3-4. Ella þurfti að fara heim að passa.
Sóley, Lísa og Tinna fóru að leika sér í
drullupytti rétt hjá Kaplagjótu. Anna
Jóna varð eftir úti í Skála því að Tinna
þurfti að fá skóna hennar lánaða. Um
kvöldið vorum við bara eitthvað að
dunda okkur. Daginn eftir vaknaði
enginn fyrr en kl. 12:30. Svo var tekið
til og við fórum heim kl. 3.
Eskimóar.
P.S. Við viljum þakka skósmiðnum
kærlega fyrir hjálpina og fyrir leðrið.
Annars hefðum við ekki getað gert
mokkasíurnar.
SKÁTABLAÐIÐ FAXI