Skátablaðið Faxi - 01.12.1998, Page 11
Hafragrautur, hrökkbrauð og te.
Undirstöðuríkur morgunmatur fyrir
göngu dagsins
dagskxárlið en næstu tvo daga ætluðum
við að fara í „hike“ úti í skógi. Okkur
var skipt í nokkra hópa, fengum kort og
áttavita og svo bent á þann stað sem við
áttum að enda á. I fyrstu virtist þetta
bamaleikur en svo sáum við að það er
bara býsna erfitt að rata úti í skógi
sérstaklega þegar það var orðið dimmt
en þá tók Tari, flokksforinginn okkar,
við stjórninni eftir að við höfðum verið
að ganga í endalausa hringi. Við
íslendingar erum ekkert sérlega vön
skóglendi, er það? En er við loks
komumst á áætlaðan svefnstað settum
við upp tjaldbúðir og kveiktum varðeld.
Yfir honum steiktum við okkur pönnu-
kökur og grilluðum pylsur og sykurpúða
á prikum. Morguninn eftir var haldið
snemma af stað og gengið allan daginn.
A leiðinni hittum við fyrir skrítið fólk
klætt í anda þess tíma er Arthur konung-
ur var uppi eða Hrói höttur. Þetta var
nokkurskonar „live“ leikrit þar sem þú
leikur sjálfur ákveðið hlutverk. En hvað
um'það, göngunni héldum við áfram og
enn leiddum við Islendingarnir okkur
vitlausa leið, lentum í mýri og á ókleif-
um klettum og enn þurfti flokks-
foringinn að setja okkur á sporið aftur.
En er á næturstað var komið skelltum
við okkur út í ískalda vatnið þar hjá og
héldum svo varðeld með tilheyrandi
pönnukökum, pulsum og söng. Lögð-
umst svo til svefns í göngutjaldinu hans
Taris.
Tíundi og síðasti dagskárdagurinn
rann upp, og ég held að við sem sváfum
á göngutjaldinu höfum vaknað öll við
sama hlutinn...moskítóbit! Illa bitinn,
útitekin en brosandi út að eyrum komum
við aftur til Helsinki og var þar haldið
kveðjupartí að sið skáta með söng,
leikjum og glensi.
Að lokum viljum við þakka Land-
nemunum sérstaklega fyrir að leyfa
okkur að koma með í þessa ferð og
þakka öllum ferðafélögum fyrir frábæra
samveru.
Kitos,
Freydís Inki
' \.
)
>_____ð
Ollam bæjcutbáim
gtéðileg’uij&Ha
og fmœh MfA M
Ahaldaleigan
Brimnes
Eðalsport
Esso
Eyjaradíó
Foto
Haukur Guðjónsson
KÁ Goðahrauni
w
KATanginn
Sæhamar ehf.
Tvisturinn
VÍS
Bókabúðin
Vilberg kökuhús
Húsey
Miðstöðin ehf.
Bannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins
Teiknistofa
Páls Zóphóníassonar
Karl Kristmanns
heildverslun
SKÁTABLAÐIÐ FAXI