Skátablaðið Faxi - 01.12.1998, Page 15
Tjaldstæðið í Hrafntinnuskeri - finnst ekki betra,
með ilmandi útikamri og mjúku undirlagi
en þar tóku foreldrar Selfyssinganna og
aðrir Fossbúar vel á móti okkur með
pylsuveislu og öllu tilheyrandi og á ég
þeim bestu þakkir að færa því lílcaminn
var farinn að mótmæla nestinu mínu
eins „fjölbreytt” og það var, hafra-
grautur, rúgbrauð og vatn. Eftir góðan
nætursvefn lögðum við snemma af stað
upp Kattarhrygginn, Heljarkambinn og
stefndum á Fimmvörðuhálsskálann.
Eina vesenið var að við fundum ekki
skálann vegna þoku og slæmrar færðar
en allt var snævi þakið og erfitt að finna
leiðarstikur. En þá gerðist það, vind tók
að blása og feykti þokunni burt en því
miður bara í stutta stund því þokan
læddist aftan að okkur og nokkrir sem
höfðu dregist aftur úr hurfu okkur úr
augnsýn. Allir komust þó á endanum
upp í skálann þótt skelkaðir væru. Við
vorum þó heppin að týnast ekki fyrir
alvöru en aðrir sem áttu leið hjá voru
ekki eins heppnir. Seint um kvöldið
fengum við hringinu í skálann og var
okkur tjáð að ungt par hefði villtist upp
á Heiðinni og þurfti því að hefja leit að
þeim. Eftir u.þ.b. 8 tíma leit skiluðu þau
sér í Þórsmörk heil á höldnu en nokkuð
skelkuð. Hetjan í okkar hóp var
Búkoliubróðir en hann hljóp um í
þokunni að leita að parinu langt fram á
nótt uns þau fundust. Eftir erfiða nótt
vöknuðum við þó og lögðum síðasta
hluta leiðarinnar undir fót. Leiðin virtist
aldrei ætla að taka enda og sumir
hlökkuðu svo mikið til að ljúka göng-
unni að þeir hlupu síðast klukkutímann.
Ekki held ég að ástæðan hafi verið að
það væri leiðninlegt að ganga heldur
braust út í þeinr óumflýanleg sykur-
skortseinkenni því þessir sumir vissu
hvað biði okkar á leiðarenda....margir
lítrar af kók og pizzuveisla um kvöldið.
Þegar hugsað er til baka var þetta hitt
ágætasta ferðalag og mjög svo lærdóms-
ríkt um ferðamennsku. Allir hafa gott af
því að upplifa ævintýri sem þetta og því
stefnum við að fara með eldri krakkana
okkar í ferð sem þessa næsta sumar því
þetta kalla ég ALVÖRU SKÁTUN.
Vona að þið hafið haft gagn og gaman
að.
Freydís Inki
Bœjarstjórn Vestmannaeyja
fœrir 'óiium Vestmannaeyingum
nœr og fjœr bestu óskir um
qfeðileq jót
oq farœtt komandi ár
með })ökk fyrir samskiptin
SKATABLAÐIÐ FAXI