Skátablaðið Faxi - 01.12.1998, Qupperneq 17
Forsetamerki "98
Flest allir skátar á íslandi safna
vörðum á skyrtuna sína en vörðurnar eru
viðurkenning þess að skátinn hafi lokið
við ákveðna áfanga sem sveitar-
foringinn setur fyrir. Frá ylfingaaldri,
sjö til tíu ára, og þar til skátinn er orðinn
dróttskáti, 15 ára, eru níu vörður. Til að
vinna sér inn vörðurnar eru unnin
verkefni úr fjórum bókum. Flægt er að
fá þrjár vörður fyrir hverja bók, nema
dróttskátar, þeir fá tvær vörður og síðan
forsetamerki. Astæðan fyrir því að
merkið er kallað forsetamerki er sú að
merkið er tileinkað forseta lýðveldisins
en hann er verndari skátahreyfingar-
innar. Sér forseti íslands einnig um að
afhenda merkið.
Þann 25. apríl 1998 fengu Freydís
Vigfúsdóttir og Einar Örn Amarsson
forsetamerkið afhent. Mættu þau á
Bessastaði ásamt skátum úr öðrum
félögum á landinu til að taka við merk-
inu. Auk þeirra voru þarna ættingjar
nýrra merkisbera. Haldnar voru ræður
þar sem gestirnir voru minntir meðal
annars á að afhending merkisins
markaði ekki endi heldur upphaf. Að
loknum ræðuhöld-
um og sálma-
söngvum tók af-
hendinginn við.
Voru merkiskandí-
datar kallaðir upp
og áttu þá að ganga
til Ólafs Ásgeirs-
sonar, skátahöfð-
ingja, sem afhenti
skjal til staðfest-
ingar á því að
viðkomandi bæri
nú rétt á að bera
forsetamerki. Eftir að hafa tekið við
skjalinu var gengið fram fyrir forseta
íslands herra Ólaf Ragnar Grímsson,
nældi hann merkinu í skátann og óskaði
honum til hamingju með því að heilsa
með skátakveðju. Eftir athöfnina var
nýjum merkishöfum óskað til hamingju
og boðið til móttöku í forsetabústaðn-
um. Þar tóku forsetahjónin Ólafur
Ragnar og Guðrún Katrín heitin á móti
gestunum með veitingum og svo var
slegið upp fjöldasöng að skátanna sið og
virtust allir skemmta sér hið besta.
Fengu gestirnir að skoða sig um í þess-
um bústað en þar ber m.a. að líta merki-
legt mynjasafn í kjallara. Það má með
sanni segja að þessi dagur hafi verið
með þeim merkilegri sem maður upp-
lifir og mun seint gleymast. Vonandi fá
sem flestir skátar að upplifa viðhöfn
sem þessa og hvet ég alla skáta til að
vinna vel að verkefnunum sínum því
það er vel þess virði
Takkfyrir.
Einar Örn Arnarsson
Dúfa með meiru!
Áætlun Herjólfs um jól og áramót
Aðfangadagur
Jóladagur
2. jóladagur
Gamlársdagur
Nýársdagur
frá V.m. frá Þh.
8.15 11.00
Engin ferð
13.00 16.00
8.15 11.00
Engin ferð
Að öðru leyti gildir vetraráætlun Herjólfs.
ATH.: Seinni ferðin á
föstudöaum fellur niður í janúar
oa febrúar 1999
Sími 481-2800 • Myndsími 481-2991
Sendum víðskíptavínum
okkar Bestu óskír um
gfeðífegjóC
farsœCt ComancCí ctr
Meðþökk jyrír góð
samskíptí á árínu sem
erað Cíða
SKATABLAÐIÐ FAXI