Skátablaðið Faxi - 01.12.1998, Qupperneq 21
Eldri skátar teknir tali
Vigdís
Rafnsdóttir.
Einar Magnús
Erlendsson.
Afhverju gerðist þú skáti?
-Ahugi fyrir útiveru og skátastarfi,
svo voru það náttúrulega kunningjamir.
Hvað hét flokkurinn sem þú varst í?
-Hann hét Fákar og fyrsti flokks-
foringinn minn var Hafsteinn Ágústsson
Hvaða skátar voru mest áberandi þegar
þú varst ískátunum?
-Það var náttúrulega Hafsteinn
Ágústsson og svo líka Sigurjón
Kristinsson, Óskar Þór Sigurðsson, Jón
Runólfsson og Ólafur Oddgeirsson svo
einhverjir eru nefndir. Það er erfitt að
gera upp á milli en svona á meðan ég
var að byrja og meðan ég var virkur þá
voru þetta þeir mest áberandi.
Hvað er eftirminnilegasta atvikið úr
skátunum ?
-Það er mjög erfitt að velja eitthvað
úr, við fórum í úteyjaferðir, róðraferðir
og í ferðir upp á ísland. Ef það er eitt-
hvað þá var skíðaútilega sem við fórum
í suður í Lyngfellsdal í frosti, snjókomu
og skafrenningi. Reyndar kom leiðinda
atvik upp þegar einn okkar brotnaði.
Hvað varstu lengi „virkur"skáti?
-í ein tíu ár.
Afhverju hœttir þú?
-Eg fór að búa. Það má eiginlega segja
að alvara lífsins hafi tekið við með hús-
byggingu og barneignum.
Sérðu eftir því að hafa hœtt?
-Já, þannig séð en menn verða að
velja og hafna. Eg hugsa ennþá hlýtt til
skátanna og fylgist með úr fjarlægð.
Eitthvað að lokum?
-Eg óska skátahreyfingunni alls hins
besta, á enga betri ósk en að hreyfinginn
eigi eftir að halda áfram að eflast.
Magnús
Þorsteinsson.
Afhverju gerðist þú skáti?
-Til þess að læra margt spennandi.
Hvað hét flokkurinn sem þú varst í?
- Hann hét Labbakútar.
Hvaða skátar voru mest áberandi þegar
þú varst í skátunum ?
- Halldór Ingi.
Hvað er eftirminnilegasta atvikið úr
skátunum ?
- Skátaheitið, hnútamir og að vera úti
í náttúrunni.
Hvað varstu lengi í skátunum?
- Tvo vetur.
Afhverju hœttirþú?
- Vegna þess að ég var mikið í fót-
bolta.
Sérðu eftirþví að hafa hœtt ískátunum?
- Já, sérstaklega þegar ég var yngri.
Eitthvað að lokum.
- Skátamir eru mjög duglegir og
standa sig vel.
Af hverju gerðist þú skáti?
-Mér fannst þetta spennandi, að fara í
útilegur, leiki og fl.
Hvað hét flokkurinn sem þú varst í?
-Hann hét Kanínur.
Hvaða skátar voru mest áberandi þegar
þú varst í skátunum?
-Það voru svo margir, s.s. Halldór
Ingi, Bjarni Sighvats, Siggi Þ, Edda
Ólafs, Einar Halló, Emma Vídó og
óteljandi fleiri.
Hvað er eftirminnilegasta atvikið úr
skátunum ?
-Það er svo margt, svo rosalega góðar
minningar og Eyjamótið 1968 í
Djúpadal.
Hvað lœrðir þú í skátunum?
-Vinna saman í hóp, skipuleggja hlut-
ina og vera vinur vina sinna.
Sérðu eftirþvíað hœtta? -Afhverju?
-Eitt sinn skáti, ávallt skáti. Ég er
ekki hætt ég reyni að hjálpa ef vantar
eitthvað en flokkastarfið var náttúrulega
skemmtilegra.
Eitthvað að lokum?
-Ég vil hvetja alla unglinga og krakka
að byrja í skátunum, þar hef ég átt mínar
bestu stundir með félögunum. Skáta-
starfið er besta veganesti á lífsleiðinni.
SkátaféCagíð Jaxípakkar
veíttan stuðníng
og óskar Tyjamönnum öCCum
gCeðíCegrajóCa
og farsæCcCar á nyju árí
SKÁTABLAÐIÐ FAXI