Morgunblaðið - 24.06.2017, Side 1

Morgunblaðið - 24.06.2017, Side 1
                                       !"# "      " #                                    !" $ %  &  &# L A U G A R D A G U R 2 4. J Ú N Í 2 0 1 7 Stofnað 1913  151. tölublað  105. árgangur  ÍSLAND Í STERKUM RIÐLI Á EM FAGNAR LOK- UM RAMADAN MEÐ VEISLU ÍSLENSKAR SUMARNÆTUR 12ÍÞRÓTTIR Gröfumenn unnu að því í gærkvöldi, í kappi við tímann, að grafa upp úr Hlíðarendaá á Eskifirði til að bjarga nýlegri brú sem vatnsflóð hamaðist á. Útlit var fyrir það í gærkvöldi að brúin myndi halda. Hlíðarendaá liggur í gegnum byggðina í Eskifirði. Vegna rigninga og leysinga kom hlaup í ána. Vatnið var kolmórautt og bar með sér mikinn aur. Menn á stórum gröf- um unnu hörðum höndum að því að grafa upp úr ánni og veita henni til sjávar. Fljótlega fylltist op brúarinn- ar og vatn flæddi yfir brúargólfið. Páll Björgvin Guðmundsson, bæjar- stjóri Fjarðabyggðar, vonaðist til að ekki yrðu skemmdir á öðrum mann- virkjum en hús standa við farveg ár- innar. Fjarðará á Seyðisfirði flæddi yfir bakka sína og slökkvilið staðarins aðstoðaði húseigendur við að dæla úr kjöllurum húsa. elinm@mbl.is Brúin virðist halda  Ár á Austurlandi flæða yfir bakka sína og valda tjóni Ljósmynd/Visit Eskifjordur Vatnsflóð Gröfumenn reyna að opna leið fyrir vatnið við brúna. Sex herskip og einn kafbátur sigldu saman frá Faxaflóa og inn Hvalfjörðinn í gær. Varðskipið Týr fór fyrir lestinni. Tilefnið var að minnast þess að 75 ár eru liðin frá því að skipalest bandamanna Sovétríkjanna, PQ17, var grandað af kafbátum og herskipum þýskra nasista í seinni heimsstyrjöldinni. Skipin eru við æfingar við Íslandsstrendur um þessar mundir. »6 Morgunblaðið/Árni Sæberg Herskipalest sigldi inn Hvalfjörðinn í gær Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það hefur verið mikil offjárfesting í þessum geira. Menn munu súpa seyðið af því í haust. Það er mik- ið offramboð af bílaleigubílum,“ sagði Garðar K. Vilhjálmsson, eigandi Bílaleigunnar Geysis. „Menn eru að keyra niður verð. Ég sé ekki annað en að ein- hverjar leigur týni tölunni þegar kemur fram á vetur. Ég tala ekki um ef gengið þróast áfram eins og það hefur gert.“ Styrking krónunnar ger- ir tangarsókn að bílaleig- unum. Óbreyttar verðskrár í erlendri mynt skila tals- vert færri krónum í kass- ann en áður vegna styrk- ingar krónunnar. Þá hefur innkaupsverð bíla lækkað vegna styrkingar krón- unnar og það leiðir til lækkunar á verði notaðra bíla. Viðbúið er að lækkun á markaðsverði bílanna við endursölu muni rýra efnahag bílaleiganna. „Við hjá Bílaleigu Akureyrar ákváðum að fjölga ekki bílum í sumar,“ sagði Bergþór Karlsson, fram- kvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar, sem situr í bíla- leigunefnd Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF). Hann sagði sterka stöðu krónunnar hafa ráðið mestu um að þeir héldu að sér höndum í bíla- kaupum. Bergþór sagði bílaleigunefnd SAF hafa áhyggjur af stöðunni og ætla að funda um hana í næstu viku. Sigurður Smári Gylfason, framkvæmdastjóri SADcars, sagði að þeir hafi lítið keypt af nýjum bíl- um á lánum. Þeir finna því lítið fyrir því þótt inn- kaupsverð nýrra bíla lækki. „Við fáum ekki það högg í efnahagsreikning okk- ar sem ég reikna með að margir aðrir séu að fá. Þetta hlýtur að vera vandamál fyrir þá sem eru með flota sem var keyptur á allt öðru gengi krónu en gildir nú. Það þarf einhvern veginn að afskrifa það.“ Krónan sligar bílaleigur  Offjárfestingar og sterkt gengi ógna rekstri margra Bílaleigubílar » Í byrjun júní 2017 voru 24.388 bíla- leigubílar á skrá. » Í byrjun júní 2013 voru þeir 11.038 talsins. » 8.372 bíla- leigubílar voru nýskráðir í jan.- júní 2016. MBlikur eru á lofti... »16 Katrín Benedikt hafði komið sér vel fyrir í spennandi starfi innan fjár- málageirans í Bandaríkjunum þeg- ar hún ákvað að söðla um og gerast handritshöfundur í Hollywood ásamt eiginmanni sínum. Það liðu þó tíu ár áður en draumurinn rætt- ist og raunar fóru þau næstum á hausinn við að elta hann. Áður en þau seldu fyrsta handritið sitt lifðu þau mjög spart og fengu meðal annars að búa frítt hjá leikkonunni Kirstie Alley gegn því að sinna ýmsum heimilisstörfum. Um helgar þurftu þau að sjá um 28 dýr í henn- ar eigu, þ.á m. madagaskar- lem- úra, hunda, ketti, köngulær, flug- íkorna og silkikanínur. Katrín er fædd á Íslandi en hefur búið í Bandaríkjunum frá því hún var lítil. Hún á þrjár stórmyndir að baki sem handritshöfundur og mun fleiri í bí- gerð. Rætt er við hana í Sunnudags- blaði Morgunblaðsins. Elti drauminn alla leið til Hollywood

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.