Morgunblaðið - 24.06.2017, Blaðsíða 40
40 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2017
Margrét Rún Karlsdóttir, umsjónarkennari 3. bekkjar íLundarskóla á Akureyri, á 40 ára afmæli í dag. Hún útskrif-aðist sem grunnskólakennari árið 2002 og hóf þá strax störf
við Lundarskóla og hefur kennt þar síðan.
„Ég var að byrja aðra vikuna mína í sumarfríinu. Núna er ég að
hugsa um börnin, vinna í garðinum og í fyrsta skipti er ég með mat-
jurtargarð í leigu hjá bænum sem er mjög skemmtilegt. Ég reyni líka
að stunda líkamsrækt , fer í crossfit nokkrum sinnum í viku.“
Margrét er fædd og uppalin og á Akureyri og er faðir hennar, Karl
Ásgrímur Halldórsson Akureyringur, en móðir hennar, Þórunn Jóns-
dóttir er ættuð frá Vestfjörðum. Eiginmaður Margrétar er Hjörleifur
Heiðar Ólafsson rafiðnfræðingur og vinnur hjá Símanum. Börn þeirra
eru Egill Heiðar, f. 2003, Eva María, f. 2006 og Ágúst Heiðar, f. 2010.
Þau búa á efri-brekkunni á Akureyri, rétt hjá Lundarskóla.
„Ætli ég hendi ekki í nokkrar kökur í tilefni dagsins og nánasta
fjölskylda kemur í heimsókn. Við ætluðum í útilegu, en það er spáð
svo mikilli rigningu að ég nenni því ekki.
Við förum mikið í útilegur, fjölskyldan, en við eigum tjaldvagn og
höfum ferðast út um allt land. Þegar maðurinn minn fer í sumarfrí þá
drífum við okkur í útilegu og förum þangað sem sólin skín. Það er
kosturinn við að eiga tjaldvagn, við getum farið þar sem veðrið er
best en skemmtilegast finnst mér að ferðast um norðanverða Vest-
firði."
Ferming Egill Heiðar fermdist í lok maí sl. og af því tilefni voru teknar
myndir af fjölskyldunni í dásamlegu veðri í Lystigarðinum á Akureyri.
Hendir í nokkrar
kökur í tilefni dagsins
Margrét Rún Karlsdóttir er fertug í dag
L
ilja Rafney Magnúsdóttir
fæddist á Stað í Súg-
andafirði 24.6. 1957 og
ólst upp á Suðureyri:
„Ég var auk þess alltaf
mikið hjá afa ög ömmu á Stað í Súg-
andafirði, nánast öll sumur, en þau
voru með hefðbundinn, blandaðan bú-
skap. Ég held að kynni mín af þeim og
það sveitalíf sem þau buðu upp á hafi
mótað persónu mína mikið.
Á veturna tók svo skólinn við,
heima á Suðureyri og leikir og störf
með öðrum krökkum. Við fórum í ís-
jakahlaup í Litlu höfninni í löngu frí-
mínútum og drolluðum oft niðri á
bryggju, vorum að þvælast um borð í
bátana, fengum að fara með þeim á
milli bryggjuplássa og mauluðum
kex með mjólk í lúkarnum. Þetta
voru ekki hættulausir leikir en þótti
mikið sport.“
Lilja lauk grunnskólaprófi frá
Héraðsskólanum á Reykjum í
Hrútafirði 1973 og hefur síðan sótt
ýmis námskeið.
Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður – 60 ára
Börn og barnabörn F.v.: Einar Kári, Harpa Rún, Auður Lilja, Lilja, Hilmar Daði, Jófríður Ósk og Gunnar Freyr.
Ólst upp í fiskiþorpi og
við almenn sveitastörf
Á heimaslóðum Lilja Rafney með Suðureyri við Súgandafjörð í baksýn.
Grundarfjörður
Elín Björg Þor-
steinsdóttir fædd-
ist 24. júní 2016
kl. 15.51 og á því
eins árs afmæli í
dag. Hún vó 4.000
g og var 51 cm
löng. Foreldrar
hennar eru Sigur-
rós Sandra Berg-
vinsdóttir og Þor-
steinn Hjaltason.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is