Morgunblaðið - 24.06.2017, Blaðsíða 30
30 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2017
AÐVENTKIRKJAN í Reykjavík |
Ingólfsstræti 19 Í dag, laugardag.
Biblíufræðsla kl. 11. Guðþjónusta
kl. 12. Ræðumaður: Gavin Anthony.
Barnastarf
AÐVENTKIRKJAN í Vest-
mannaeyjum | Brekastíg 17 í dag,
laugardag. Samvera kl. 12. Bein út-
sending frá Reykjavíkur kirkju.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Árnesi
| Eyravegi 67, Selfossi, í dag, laug-
ardag. Biblíufræðsla kl. 10. Guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður Eric
Guðmundsson
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Hafn-
arfirði | Hólshrauni 3 í dag. Guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður Stefán
Rafn Stefánsson Biblíufræðsla kl.
11.50. Barna- og unglingastarf. Um-
ræðuhópur á ensku.
AKRANESKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. fermt verður. Sr. Eðvarð Ing-
ólfsson þjónar. Sveinn Arnar sér um
tónlistina.
AKUREYRARKIRKJA | Bæna-
messa kl. 20. Prestur er Hildur Eir
Bolladóttir. Félagar úr Kór Akureyr-
arkirkju syngja. Organisti er Sigrún
Magna Þórsteinsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Gönguguðs-
þjónusta kl. 11. Lagt verður af stað
frá kirkjunni og gengin létt píla-
grímaganga um Elliðaárdalinn.
Staldrað er við á nokkrum stöðum,
lesið úr Guðs orði, íhugað og beðið.
Emma Eyþórsdóttir leikur á hljóð-
færi. Sr. Petrína Mjöll Jóhann-
esdóttir þjónar. Síðan endum við
gönguna í kirkjunni um kl. 12 og
drekkum kaffi saman.
ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sig-
urður Jónsson sóknarprestur prédik-
ar og þjónar fyrir altari. Forsöngvari
Lilja Dögg Gunnarsdóttir. Orgelleik-
ari Arngerður María Árnadóttir.
Guðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu
Skjóli kl. 13 í umsjá séra Sigurðar
Jónssonar. Vinir og vandamenn
heimilisfólks velkomnir.
ÁSTJARNARKIRKJA | Helgistund
kl. 11. Stefán Henrýsson leiðir
söng. Prestur er Kjartan Jónsson og
meðhjálpari Sigurður Þórisson. Heitt
á könnunni á eftir og gott samfélag.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Göngu-
messa. Gengið frá Fella- og Hóla-
kirkju kl.10. Messa kl. 11. Prestur
er Bryndís Malla Elídóttir. Kór Breið-
holtskirkju syngur organisti er Örn
Magnússon. Hressing í safn-
aðarheimili eftir messu.
BÚSTAÐAKIRKJA | Messa kl. 11.
JÓNSMESSA. Létt samvera með nýj-
um lögum og óhefðbundnu messu-
formi. Helga Vilborg og félagar úr
Kór Bústaðakirkju. Messuþjónar að-
stoða. Prestur Pálmi Matthíasson.
Heitt á könnunni eftir messu.
Dómkirkja Krists konungs,
Landakoti | Messa á sunnud. kl.
8.30 á pólsku, kl. 10.30 á ís-
lensku, kl. 13 á pólsku, kl. 15 á
litháísku (7. maí en síðan ekki aftur
fyrr en í júlí) og kl. 18 á ensku.
Messa virka daga kl. 18, og má.
mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á
spænsku og kl. 18 er sunnudags-
messa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr.
Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Kári Þormar leikur á org-
elið og dómkórinn syngur.
FELLA- og Hólakirkja | Göngu-
messur Breiðholtssafnaðanna.
Gengið verður frá Fella og Hólakirkju
kl. 10 til Breiðholtskirkju þar sem
messa er kl.11 Eftir guðsþjónust-
urnar er boðið upp á létta hádeg-
ishressingu og síðan er rútuferð til
baka. Þá verður einnig ferming-
armessa kl. 11. Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson þjónar og predikar. Matt-
hías Stefánsson spilar á fiðlu. Kór
kirkjunnar syngur undir stjórn Arn-
hildar Valgarðsdóttur organista.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Kvöld-
messa kl. 20. Tónlist, kertaljós og
íhugun. Sönghópurinn við Tjörnina
og Fríkirkjubandið ásamt Gunnari
Gunnarssyni, organista, flytja okkur
ljúfa tónlist. Stundin er í umsjón sr.
Hjartar Magna Jóhannssonar.
GARÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Helga Björk Jónsdóttir djákni
predikar og þjónar fyrir altari. Jó-
hann Baldvinsson organisti leiðir al-
mennan safnaðarsöng.
GRAFARVOGSKIRKJA | Kaffi-
húsamessa kl. 11. Séra Arna Ýrr
Sigurðardóttir prédikar og þjónar.
Forsöngvari leiðir söng og organisti
er Hákon Leifsson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður
kl. 10, bænastund kl. 10.15,
messa kl. 11. Altarisganga. Sam-
skot til langveikra barna. Messu-
hópur þjónar. Félagar úr kirkjukór
Grensáskirkju syngja. Organisti Erla
Rut Káradóttir. Prestur Kristín Páls-
dóttir. Molasopi eftir messu.
GRUND dvalar- og hjúkr-
unarheimili | Guðsþjónusta í um-
sjón Félags fyrrum þjónandi presta
klukkan 14:00 í hátíðasal Grundar.
Séra Ólafur Jens Sigurðsson þjónar.
Grundarkórinn leiðir söng undir
stjórn Kristínar Waage organista.
Jökull Gunnarsson syngur einsöng.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur Skírnir
Garðarsson, organisti Hrönn Helga-
son og kór Guðríðarkirkju syngur.
Kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir.
Kaffisopi í boði eftir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Jóns-
messuganga á Helgafell. Lagt af
stað á einkabílum frá Hafnarfjarð-
arkirkju kl 10.30. Lagt verður af
stað í gönguna kl 11 frá Kald-
árbotnum. Leiðsögn. Bænagjörð og
íhugun. Hressing á leiðinni og þegar
upp verður komið.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl.
11. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar
og þjónar fyrir altari ásamt hópi
messuþjóna. Sögustund fyrir börn.
Félagar úr Mótettukór Hallgríms-
kirkju syngja. Ensk messa kl. 14 í
umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar.
Alþjóðlegt orgelsumar, tónleikar
laugardag kl. 12 og sunnudag kl.
17. Björn Steinar Sólbergsson leik-
ur. Árdegismessa miðvikud. kl. 8 og
tónleikar Schola cantorum kl. 12.
Orgeltónleikar fimmtud. kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur Tómas Sveinsson. Organisti
Kári Allansson.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn
samkoma með mikilli lofgjörð. Ólaf-
ur H. Knútsson prédikar. Heilög
kvöldmáltíð. Eftir stundina verður
kaffi og samfélag.
LÖGMANNSHLÍÐARKIRKJA |
Kvöldmessa kl. 20. Sr. Gunnlaugur
Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju
leiðir almennan söng undir stjórn
Valmars Väljaots.
MOSFELLSKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Ragnheiður Jóns-
dóttir þjónar fyrir altari og prédikar.
Organisti Þórður Sigurðsson. Kirkju-
kór Lágafellssóknar syngur og leiðir
söng.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Fé-
lagar úr Kór Neskirkju leiða safn-
aðarsöng. Organisti Steingrímur Þór-
hallsson. Prestur Skúli S. Ólafsson.
Kaffisopi og samfélag á Torginu eft-
ir messu.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Gúll-
asguðsþjónusta kl. 18. Sr. Pétur
prédikar og þjónar fyrir altari.
Messugutti er Petra Jónsdóttir. Fé-
lagar úr Graduale Nobili leiða söng
og svör undir stjórn organistans
Árna Heiðars Karlssonar. Ólafur
Kristjánsson tekur vel á móti öllum.
Eftir messuna er gúllassúpa kr.
1000 kr.
SALT kristið samfélag | Sam-
koma kl. 17 í Kristniboðssalnum
Háaleitisbraut 58-60. 3.hæð.
Ræðumaður Guðlaugur Gunn-
arsson. Túlkað á ensku. Barnastarf.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11.
Kór kirkjunnar syngur undir stjórn
Edit Molnár. Prestur Ninna Sif Svav-
arsdóttir.
SELJAKIRKJA | Gönguguðsþjón-
usta Breiðholtssafnaðanna. Gengið
verður frá Fella- og Hólakirkju kl. 10
og í Breiðholtskirkju þar sem messa
hefst kl. 11. Boðið verður upp á
akstur til baka að messu lokinni.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur er Frank M.
Halldórsson. Organisti er Friðrik
Vignir Stefánsson. Kórfélagi úr
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiðir
almennan safnaðarsöng. Kaffiveit-
ingar og samfélag eftir athöfn.
STÓRA Núpskirkja | Útimessa í
Steinsholti kl. 11. Kirkjukór Stóra-
Núps- og Ólafsvallasókna syngur
undir stjórn Þorbjargar Jóhanns-
dóttur. Messukaffi á eftir.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Helgistund á sumarkvöldi kl. 20.
Ljúf og létt stund í umsjá Maríu og
Bryndísar.
ÞORLÁKSKIRKJA | Messa Strand-
arkirkju kl. 14. Organisti Edit Moln-
ar. Kór Þorlákskirkju. Prestur Baldur
Kristjánsson.
Orð dagsins
Hin mikla kvöld-
máltíð
(lúk. 14)
Morgunblaðið/Golli
Oddi Rangárvallasýslu
✝ Guðbjartur K.Guðbjartsson
fæddist í Hnífsdal
8. júlí 1930. Hann
lést 15. júní 2017.
Foreldrar hans
voru Guðbjartur
Marías Ásgeirs-
son, f. 1899, d.
1975, og Jónína
Þóra Guðbjarts-
dóttir, f. 1902, d.
1988. Guðbjartur
átti fjögur systkini, Margréti,
Ásgeir, Hörð og Ragnheiði
Ingibjörgu.
Þann 27. ágúst 1953 gekk
Guðbjartur að eiga Guðbjörgu
börn, þau eru: 1) Jón Guð-
bjartur, f. 1954, eiginkona
hans er Maria Plattner, f.
1959, börn þeirra eru Kristján
og Helga. 2) Jónína Guðbjörg,
f. 1956, eignmaður hennar er
Kristberg Elís Kristbergsson,
f. 1955, börn þeirra eru Svan-
dís Elín, Kristbjörg Elín,
Brynja Dögg og Guðbjartur
Þór. 3) Selma Sigurrós, f.
1957, eiginmaður hennar er
Þröstur Jóhannesson, f. 1955,
börn þeirra eru Ragnar Heið-
ar, Kristjana og Guðbjörg
Svandís. 4) Brynjar, f. 1966,
eiginkona hans er Ragnheiður
María Adólfsdóttir, f. 1967,
börn þeirra eru Iðunn og Ari.
Barnabarnabörn þeirra eru
bráðum þrettán.
Útför Guðbjarts fer fram
frá Ísafjarðarkirkju í dag, 24.
júní 2017, og hefst athöfnin kl.
14.
Svandísi Jóns-
dóttur frá Flat-
eyri, f. 26. ágúst
1935. Foreldrar
hennar voru Jar-
þrúður Sigurrós
Guðmundsdóttir,
f. 1913, d. 1990,
og Jón Salómon
Jónsson, f. 1913,
d. 2010. Þau hafa
alla tíð búið á Ísa-
firði og starfaði
Guðbjartur þar við sjó-
mennsku í mörg ár og síðar
sem verkstjóri við fiskvinnslu
og útgerð. Guðbjartur og
Svandís eignuðust fjögur
Guðbjartur tengdafaðir
minn, sem ávallt var nefndur
Baddi, hefur kvatt þessa jarð-
vist, tæplega 87 ára. Hann lést
15. júní 2017, varð bráðkvadd-
ur á heimili sonar síns í Graf-
arvogi. Ótrúlega mörg lýsing-
arorð koma upp í hugann
þegar ég reyni að finna þau
réttu til að lýsa Badda, öll vísa
þau í sömu átt. Hugljúfur,
hjálpsamur, heiðarlegur,
traustur en einnig dulur,
hljóðlátur og spaugsamur.
Baddi var sjómaður á yngri
árum, byrjaði um fermingu og
er í land kom starfaði hann við
útgerð og fiskvinnslu. Hann
giftist ungur önfirskri blóma-
rós, henni Dídí, og að kvöldi
brúðkaupsdagsins var hann
farinn í nokkurra vikna salt-
fisktúr á Grænlandsmið á Ís-
borginni. Það er dálítið lýsandi
fyrir fjarveru sjómanna frá
heimili og fjölskyldu að elsta
barnið þeirra, Jón, var ávallt
kennt við móðurina, Nonni
Dídíar. Yngsta barnið Brynjar
var hins vegar kennt við föð-
urinn, Binni Badda, enda
Baddi þá kominn í land.
Er okkar kynni hófust fyrir
rúmum 40 árum starfaði Baddi
í landi hjá Norðurtanganum,
fyrirtækinu sem faðir hans tók
þátt í að stofna. Þar lauk hann
starfsferli sínum. Síðar keyptu
þau hjón íbúð á þriðju hæð í
Norðurtanganum er því hús-
næði hafði verið breytt í
íbúðablokk. Þá sagðist Baddi
vera kominn heim, fluttur á
vinnustaðinn. Tengdapabbi
stundaði fjölbreytta hreyfingu
alla tíð, fór í sund mjög reglu-
lega, göngutúra og stundaði
skíðagöngu á vetrum og þar
áttum við sameiginlegt áhuga-
mál. Orðin heilbrigð sál í
hraustum líkama fannst mér
eiga sérstaklega vel við um
Badda. Þó að árin hafi tekið
sinn toll voru þau mildari en
hjá mörgum yngri samferða-
mönnum.
Spaugilegar athugasemdir
tengdapabba um mannlífið og
tilveruna komu oft á óvart og
kölluðu fram kátínu og hlátur.
Þess á ég líklega mest eftir að
sakna.
Elsku Dídí mín, Jón, Jónína,
Selma mín og Brynjar og fjöl-
skyldur, megi Guð vera með
okkur og styrkja í sorg okkar
allra og söknuði um góðan
dáðadreng, hann Badda.
Þröstur Jóhannesson.
Elsku besti afi. Ég hefði
ekki getað hugsað mér betri
og yndislegri afa en þig. Þú
gast alltaf séð húmor og
brandara í ótrúlegustu hlutum
og aðstæðum og komið manni
til að brosa við minnsta tilefni.
Þú óskaðir þess bara að öllum
liði vel, vildir ekkert vesen og
varst ekki að gera mikið mál
úr hlutunum. Þú varst alltaf
svo léttur í lund og einstak-
lega góðhjartaður og tillits-
samur maður.
Ég var, rétt eins og þú, svo
bjartsýn á að allt ætti eftir að
ganga vel hjá þér og að þú
ættir góð ár framundan með
ömmu. Ég var alls ekki tilbúin
að kveðja þig og vildi óska
þess að ég gæti haldið þétt ut-
an um þig og heyrt þig hlæja
einu sinni enn. Þegar ég hugsa
til þín sé ég þig fyrir mér við
borðstofuborðið hjá ykkur
ömmu þar sem þú ert að segja
eitthvað sniðugt svo við hin
förum að brosa. Ég mun ávallt
muna eftir þér og hugsa til þín
með mikilli ást og hlýju. Ég
mun segja sögur af þér, rifja
upp góðar minningar um þig
og halda minningu þinni á lífi.
Takk fyrir allt, elsku besti afi
minn. Ég elska þig, alltaf.
Kristjana.
Elsku afi minn. Síðustu dag-
ar hafa verið erfiðir. Við áttum
ekki von á að þurfa að kveðja
þig svona fljótt. Þú varst svo
jákvæður og bjartsýnn alveg
til síðasta dags að enginn átti
von á að missa þig á þeirri
stundu sem þú fórst.
Ég sakna þín sárt. Ég var
ekki tilbúin að kveðja þig
svona fljótt og ég vildi óska að
ég hefði fengið að eyða fleiri
stundum með þér.
Síðustu orðin mín til þín
voru „Ég mun hugsa til þín,
afi minn“ og nú hefur fátt ann-
að komist fyrir í huganum á
mér en þú, elsku afi.
Ég hugsa til þín og rifja upp
dýrmætar minningarnar sem
ég á um þig. Fallegar minn-
ingar sem ég mun alltaf geyma
og munu verma í sorginni og
söknuðinum.
Guðbjörg Svandís
Þrastardóttir.
Guðbjartur K.
Guðbjartsson
Minningar
Gulla var hún
jafnan kölluð af ná-
grönnum og vin-
um. Þau voru tvö
systkinin, hún og
Þórir bróðir hennar, og bjuggu
saman eftir lát foreldra sinna
og skiptu með sér verkum.
Hann sá jafnan um fjósið, hún
um kindurnar en hún gat ekki
mokað. Hún þoldi ekki að sjá
blóð en kallaði jafnan í góða ná-
granna og Siffi minn, eins og
hún sagði jafnan, hann kemur
að vörmu spori ef ég þarf á
hjálp að halda, eins voru það
fleiri. Hún var ljúf og vinamörg
og jafnan með fullt af ungviði,
þá á ég við börn sem hún
reyndist eins og besta móðir og
kenndi þeim og fræddi um allt
sem viðkom sveitinni og bara
öllu. Hún var fróð og listræn til
verka og kenndi eða leiðbeindi
Guðlaug
Arngrímsdóttir
✝ Guðlaug Arn-grímsdóttir
fæddist 14. janúar
1929. Hún lést 31.
mars 2017.
Útförin fór fram
14. apríl 2017.
öllum sem til henn-
ar leituðu.
Við ólumst upp
hvor sínum megin
við ásinn, eins og
maður gjarnan
sagði, hún á Lang-
holti og ég í Sæ-
mundarhlíðinni.
Síðan lengdist á
milli okkar, en ég
fluttist að austur-
fjöllunum. Eitt
sinn var ég að koma að heiman,
var að keyra fyrir Reykjarhól-
inn og sá bláu fjöllin, Blöndu-
hlíðarfjöllin, blasa við sjónum
mínum en elsku minningarnar
lágu hinum megin við fjöllin, já
svona er þetta, maður er eins
og hestur sem strok er í, sam-
anber Blesi minn sem fór á
næstum hverju vori og skrapp
á heimaslóðir enda fylgdi hann
mér blessaður. Jæja, þetta var
nú bara létt grín en leiðir okk-
ar lágu saman síðasta ár er við
fórum með honum Júlla okkar,
þínum góða dreng í dagvistun.
Það var ánægjuleg upprifjun en
dýravinur var hún og til gam-
ans að segja átti hún kisa sem
henni þótti vænt um og hann
sat í glugga á efri hæð, um leið
og hún var komin út úr bílnum
stökk hann niður úr glugganum
til að taka á móti henni. Já,
dýrin eru vitur, það þarf að
meta þau ekki síður en fólk.
Undir það síðasta var sjónin
henni erfið og harmaði hún
mjög að geta ekki lesið eða
gert handavinnu en það verður
að taka því sem að höndum ber
í lífinu, sama hvað, en margt
fleira væri hægt að segja um
vinkonu mína en að lokum
þetta:
Vina mín kæra þú fallin ert frá
við fáum þig aldrei meira að sjá
en mitt inni í myrkrinu svarta
er ljósgeisli fagur, það léttist vor önd
við lítum til baka, þín hjálpandi
hönd,
þín hógværð þín gleði, við gróandi
sár.
Við göngum til starfa með þerrandi
tár
við minningu blíða og bjarta
hittumst síðar.
Mig langar að þakka Lindu
og fjölskyldu hennar hlýju og
hjálp sem hún var Gullu frá því
hún kom þangað. Guð launi
henni og fólkinu hennar.
Kæra vinkona, hvíl þú í friði
og með þökk fyrir allt.
Þín vinkona,
Soffía
Jakobsdóttir.