Morgunblaðið - 24.06.2017, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2017
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
DAGUR
ÍSLENSKRAR
NÁTTÚRU
Tilnefningar óskast til
viðurkenninga umhverfis-
og auðlindaráðuneytis
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir
tilnefningum til tvennra verðlauna sem afhent
verða á Degi íslenskrar náttúru, 16. september.
Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlinda-
ráðuneytisins verða veitt fjölmiðli, ritstjórn,
blaða- eða fréttamanni, dagskrárgerðarfólki,
ljósmyndara eða rithöfundi fyrir framúrskarandi
umfjöllun um umhverfismál og/eða íslenska
náttúru undangengna tólf mánuði
(tímabilið ágúst 2016 – ágúst 2017).
Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í
Brattholti verður veitt einstaklingi sem hefur
unnið markvert starf á sviði náttúruverndar.
Tilnefningar ásamt rökstuðningi skal senda í
síðasta lagi 25. ágúst 2017 á umhverfis- og
auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík,
eða á netfangið postur@uar.is
Fyrr í mánuðinum fjallaði Morgun-
blaðið um eineltismál þar sem stjórn
Kennarasambands Íslands barst
kæra frá framhaldsskólakennara á
hendur formanni Félags framhalds-
skólakennara, Guðríði Arnardóttur.
Svör hafa nú borist frá formanni
Kennarasambands Íslands, Þórði
Hjaltested, og segir hann m.a. að
nokkuð sé um að félagsmenn leiti til
KÍ, stéttarfélags með um 11 þúsund
félagsmenn, telji þeir sig hafa orðið
fyrir einelti, áreitni og/eða ofbeldi á
vinnustað. KÍ leitist þá við að veita
þeim ráðgjöf varðandi hvernig hægt
sé að tilkynna mál og leita frekari að-
stoðar. Í slíkum málum séu starfs-
menn og kjörnir fulltrúar KÍ ekki að-
ilar máls, hvorki meintir gerendur né
þolendur. Við mat á hæfi til að rann-
saka mál taki KÍ og aðildarfélög þess
mið af hæfisreglum stjórnsýslulaga
nr. 90/2003.
„Stjórn KÍ lítur svo á að máli því
sem fjallað hefur verið um í Morgun-
blaðinu sé lokið. Eins og fram hefur
komið var umrætt mál rannsakað af
óháðum fagaðila, sem er jafnframt
viðurkenndur þjónustuaðili af Vinnu-
eftirlitinu, og var niðurstaðan skýr;
að ekki hefði verið um einelti að ræða.
Málið var að mati KÍ rannsakað með
viðeigandi hætti. Mál það er það eina
sinnar tegundar sem hefur komið til
KÍ og/eða aðildarfélaga þess.“ segir
Þórður að lokum. ernayr@mbl.is
Eineltismálinu
lokið af hálfu KÍ
Rannsakað með viðeigandi hætti
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
og Fluglestin – þróunarfélag hafa gert með sér
samstarfssamning um þróun skipulagsmála
vegna hraðlestar sem ætlað er að tengja saman
Keflavíkurflugvöll og höfuðborgarsvæðið.
Hann bíður nú samþykkis sveitarfélaga.
Runólfur Ágústsson, framkvæmdastjóri
Fluglestarinnar – þróunarfélags, segir samn-
inginn marka tímamót í þróun lestarinnar.
„Þetta er samningur sem við byrjuðum að
vinna að fyrir tveimur árum. Þetta fór í gegn-
um ákveðið kerfi hjá Samtökum sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu (SSH) og sveitarfélög-
unum. Við fengum tvö lögfræðiálit, heimildir
og annað slíkt og voru gerðar smávægilegar
breytingar í ljósi þeirra athugasemda. Þetta er
samningur um skipulagsmál og skipulags-
ferlið. Hann var afgreiddur í stjórn SSH fyrir
tveimur vikum og sendur til sveitarfélaganna.
Við vorum áður búin að gera sambærilegan
samning við sveitarfélögin á Suðurnesjum. Þar
er skipulags- og þróunarvinna hafin. Vonandi
verður þetta afgreitt úr borgarráði í næstu
viku. Mér heyrðist á umræðum [í borgarráði í
fyrradag] að málið væri unnið í þokkalegri
sátt,“ segir Runólfur.
Má í þessu efni benda á að bæjarráð Garða-
bæjar samþykkti á þriðjudag „aðild að breytt-
um samstarfssamningi um verkefnið „Flug-
lestin, enda verði samningurinn samþykktur af
öllum hlutaðeigandi sveitarfélögum““.
Runólfur segir samninginn mikinn áfanga.
„Þetta hefur þá þýðingu að við getum farið í
næsta fasa, og farið að fjármagna hann, sem
eru skipulagsmál, mat á umhverfisáhrifum,
frumhönnun og rannsóknir, sérstaklega á
berglögum í gangastæðinu. Þessi fasi kostar í
heild 1,5 milljarða og tekur þrjú ár. Við
stefnum á að fjármagna þennan pakka í haust.“
Verkfræðistofan Efla er hluti af þróunar-
félaginu um lestina og hefur unnið frumdrög að
legu jarðganga undir höfuðborgarsvæðið. Guð-
mundur Guðnason, verkfræðingur hjá Eflu,
segir nú horft til hefðbundinnar gangagerðar.
Gera þurfi meiri rannsóknir.
Drög að legu
jarðganga
fyrir fluglest
Lestin hefur vinnuheitið
„Lava Express“
BSÍ
Nútímahraun
Hugsanleg dýpt jarðganga
Hafnarfjörður
Straumsvík
Fossvogur
Faxaflói
Kópavogur
Langsnið:
Straumsvík-BSÍ
Móbergsmyndun
Reykjavíkurgrágrýti Móberg Reykjavíkurgrágrýti
Elliðavogsset
Basalt og móberg
DigraneshálsNónhæð
Smáralind Fossvogur Kringlan
BSÍ
Setberg
Haukasvæði
Krýsuvíkurvegur
Urriðaholt Vífilsstaðir
Heimild: Efla verkfræðistofa
Nýr kafli að hefjast í þróun fluglestar
Vinna hefst við rannsóknir, umhverfismat og frumhönnun Kostar 1,5 milljarða Mun taka þrjú ár
„Við munum gefa út nýtt fram-
kvæmdaleyfi og framkvæmdir
munu síðan halda áfram,“ segir
Hjálmar Sveinsson, formaður um-
hverfis- og skipulagsráðs Reykja-
víkurborgar, um fyrirhugaðar fram-
kvæmdir við Rauðagerði. Til
stendur að reisa hljóðmön, gera
göngu- og hjólastíg, bæta við ak-
rein, færa háspennulínu og byggja
útsýnispall á svæðinu.
Framkvæmdirnar voru nýlega
stöðvaðar eftir mótmæli íbúanna
sem töldu að framkvæmdaleyfi
Reykjavíkurborgar væri útrunnið.
Íbúarnir vísuðu málinu til Úrskurð-
arnefndar umhverfis- og auðlinda-
mála sem staðfesti að leyfi til fram-
kvæmda á svæðinu væri fallið úr
gildi.
Mikil andstaða hefur verið við
framkvæmdirnar meðal íbúa við
Rauðagerði en þrátt fyrir það segir
Hjálmar ekki koma til greina að
hætta við framkvæmdirnar. „Við
höfum tekið athugasemdir íbúanna
til greina. Það er hinsvegar alveg
ljóst að við munum halda áfram
með framkvæmdirnar.“
Hann segist ekki geta staðfest
hvenær framkvæmdir muni hefjast
að nýju, það fari eftir því hvenær
nýtt leyfi verði gefið út. „Það verð-
ur gefið út nýtt leyfi, hvenær það
verður gefið út er ekki alveg orðið
ljóst ennþá.“ aronthordur@mbl.is
Framkvæmdaleyfi
úrskurðað útrunnið
Framkvæmdir stöðvaðar tímabundið
Fjarðabyggð hefur gengið til sam-
starfs við fyrirtæki og stofnanir í
sveitarfélaginu í tengslum við
menntamál fjórðungsins, en ráðist
verður m.a. í undirbúning að stofn-
un Háskólaseturs Austfjarða.
Samkomulagið, sem undirritað
var í gær, er til tveggja ára og
kveður það m.a. á um skipan stýri-
hóps fyrir háskólaverkefnið. Nær
það einnig til grunnskóla- og fram-
haldsskólastigsins og byggja þau
verkefni aðallega á þeim árangri
sem fræðsluyfirvöld í Fjarðabyggð
hafa þegar náð í samstarfi við at-
vinnulífið í verknámi, tækninámi og
nýsköpun. Fyrirmynd háskólaset-
urs Austfjarða er sótt til Há-
skólaseturs Vestfjarða, sem skilað
hefur góðum árangri til þessa.
Háskólasetur Austfjarða undirbúið
Ljósmynd/Fjarðabyggð
Menntamál Frá undirritun samninganna.
Viðskipti