Morgunblaðið - 24.06.2017, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 24.06.2017, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2017 Á fimmtudag kynnti fjár-málaráðherra tillögur um að taka 10.000 og 5.000 króna seðlana úr umferð, að banna reiðufé í versl- unum, að setja hámark á viðskipti með reiðufé og fleira ámóta, allt í nafni bar- áttu gegn skattsvikum.    Fjármálaráðherrafór mikinn og sagði að tillögur nefndarinnar yrðu ekki settar ofan í skúffu og að hann væri sann- færður um að dagurinn sem tillögurnar væru kynntar markaði tíma- mót í baráttunni við skattsvik.    Og til að leggjaáherslu á hve brýnt væri að losna við seðlana sagði hann að það væri „ekki eftir neinu að bíða, við höfum sagt að við ætlum að koma fram með lagafrumvarp strax í haust“.    Þessum ótrúlegu ofríkistilburðumvar illa tekið, sem betur fer meðal annars innan ríkisstjórn- arinnar. Í gær lýsti svo forsætisráð- herra þeirri skoðun sinni að þetta væru ekki góðar hugmyndir og ekki raunhæfar tillögur.    Og fjármálaráðherra, sem hafðiekki ætlað að setja tillögurnar ofan í skúffu, sagði þá að þær yrðu settar á ís. En hvað verður sett á ís og hve lengi? Og ætli fjármálaráð- herra hafi áttað sig á því hvers vegna hugmyndirnar voru afleitar?    Loks hljóta menn að spyrja: Hvernig í ósköpunum stend- ur á því að svona hugmyndir eru kynntar með látum einn daginn til þess eins að afkynna þær næsta dag? Hvað er um að vera í fjármálaráðu- neytinu? Benedikt Jóhannesson Skúffa, tímamót, ís og ráðherra STAKSTEINAR Bjarni Benediktsson Veður víða um heim 23.6., kl. 18.00 Reykjavík 9 rigning Bolungarvík 7 rigning Akureyri 8 rigning Nuuk 5 léttskýjað Þórshöfn 10 léttskýjað Ósló 13 rigning Kaupmannahöfn 16 súld Stokkhólmur 17 skýjað Helsinki 14 léttskýjað Lúxemborg 23 heiðskírt Brussel 23 heiðskírt Dublin 17 súld Glasgow 16 skýjað London 20 skýjað París 23 heiðskírt Amsterdam 20 súld Hamborg 19 skýjað Berlín 22 skýjað Vín 30 heiðskírt Moskva 14 heiðskírt Algarve 28 heiðskírt Madríd 35 heiðskírt Barcelona 30 léttskýjað Mallorca 29 heiðskírt Róm 30 heiðskírt Aþena 32 heiðskírt Winnipeg 13 skúrir Montreal 20 rigning New York 26 rigning Chicago 21 alskýjað Orlando 29 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 24. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2:57 24:05 ÍSAFJÖRÐUR 1:36 25:36 SIGLUFJÖRÐUR 1:19 25:19 DJÚPIVOGUR 2:12 23:49 Flaska með 0,75 l af sjómanna- bjórnum Zoëga seldist á 555.000 krónur á uppboði á sjómannaballinu í Vestmannaeyjum nýlega. Kaup- andinn var áhöfnin á Hugin VE og rann upphæðin til Krabbavarnar, að ósk Ríkharði Zoëga Stefánssyni, kokki á Bergey VE 544, sem er sjó- maður ársins í Eyjum. Þetta var annað annað árið í röð sem brugghúsið The Brothers Bre- wery í Vestmannaeyjum framleiddi sérstakan sjómannabjór til heiðurs sjómönnum og fékk hann fékk nafn- ið Zoëga í höfuðiðá sjómanni ársins. Jóhann Guðmundsson, annar stofnenda The Brothers Brewery, segir að hann og Ríkharður hafi hjálpast að við framleiðslu á bjórn- um. „Við hittumst og ákváðum að bjórinn í ár ætti að vera léttur, ljúf- ur og þægilegur. Rikki bruggaði síðan bjórinn undir minni hand- leiðslu.“ Jóhann segir Ríkharð verðskulda þessa nafnbót og þar sem hann er 57 ára gamall í ár var áfengisprósenta bjórsins ákveðin 5,7%. „Rikki er góð- ur karl og hefur staðið sig gríðarlega vel, við teljum mikilvægt að heiðra sjómenn sem standa sig vel. Bjórinn var síðan með prósentu sem passaði við 57 ára afmæli Rikka í ár.“ aronthordur@mbl.is Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Afhending Sjómannabjórinn afhentur sjómanni ársins Ríkharði Zoëga. Bjórflaska seld á 555 þúsund kr.  Bjórinn Zoëga er léttur og ljúfur Útskrifað verður úr Háskóla Ís- lands í Laugardalshöll í dag. Tvær athafnir fara fram. Klukkan 10:30 útskrifast 809 kandídatar í fram- haldsnámi, meðal annarra fyrstu nemendurnir sem ljúka meist- araprófi í fjölmiðla- og boð- skiptafræði úr stjórnmálafræði- deild. Klukkan tvö hefst svo brautskráning grunnnema en alls ljúka 1.278 námi á grunnstigi. Flestir útskriftarnemar eru á fé- lagsvísindasviði eða 634 en undir það heyra meðal annars viðskipta- fræði og lögfræði, tvær af vinsæl- ustu greinum Háskólans. Þá út- skrifast 510 af heilbrigðisvísinda- sviði. Fyrsti nemandinn í hagnýtri stærðfræði verður einnig útskrif- aður frá raunvísindadeild, en fyrst var boðið upp á námsleiðina fyrir tveimur árum. Tvær útskriftir úr Háskóla Íslands í dag Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 hitataekni@hitataekni.is hitataekni.is Bjóðum m.a. upp á loftræstisamstæður með varmanýtingu sem henta vel fyrir heimili eða smærri rými, stærð frá 200-700 m3. Samstæður koma tilbúnar með stjórnbúnaði. Þarf ekki að hreinsa andrúmsloftið heima hjá þér? 200m3 samstæða með eldhúsháf, varmahjóli og öllum stjórnbúnaði, tilbúin í eldhúsinnréttinguna. 450m3 samstæða með varmahjóli og öllum tjó bú ðis rn n . www.danco.is Heildsöludreifing Danco hefur allt til að auðvelda veitingarnar hvort sem er í veisluna, mötuneytið, kokteilboðið, skólaeldhúsið, alls staðar. Forréttir, pizzur, smáréttir, forskornar tertur og fleira. Ljúffengt... ...hagkvæmt og fljótlegt Veisluþjónustur Veitingahús - Mötuneyti Fjölbreytt úrval af matvöru og veisluréttum Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.