Morgunblaðið - 24.06.2017, Page 12

Morgunblaðið - 24.06.2017, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2017 H a u ku r 0 1 .1 6 Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is • Hótelfasteignin Skúlagarður í Kelduhverfi. Um er að ræða 17 herbergja hótel á stórri lóð búið nýlegum herbergjum. Nálægt nýja Dettifossveginum. • Mjög vinsæll og þekktur pizzastaður sem auðvelt væri að efla verulega með fjölgun útsölustaða þar sem núverandi staður gæti orðið fyrsti hlekkurinn í keðjunni. • Fyrirtæki sem er sérhæft á sviði jarðefna sem notuð eru í garða og kringum hús. Öflugur eigin vélakostur. Velta 45 mkr. og stöðugildi þrjú. • Glæsilegt nýtt 30 herbergja hótel í virðulegu húsi í miðbæ Reykjavíkur. Hótelið er í útleigu með langan og góðan leigusamning við traustan og öflugan hótelaðila. • Ungt og vaxandi þjónustu- og verslunarfyrirtæki í tæknigeiranum. Fjögur stöðugildi. Velta er um 85 mkr. á ári og góður hagnaður. • Tíu ára gamalt fyrirtæki sem þróað hefur og selur í áskrift tölvukerfi sem þjóna skólakerfinu. Ríflega eitt stöðugildi og 30 mkr. velta. Hentar vel sem viðbót við fyrirtæki sem starfa á svipuðu sviði. • Nýtt, lítið og sérlega fallegt hótel í Reykjanesbæ. Fær mjög góða dóma á bókunarsíðum. Yfir 90% nýting. • Lítið útgáfufyrirtæki á sviði ferðamála. Velta um 50 milljónir. Hagstæðir samningar við birgja. Gæti verið heppileg viðbót við fyrirtæki á svipuðu sviði. • Heildsala með vörur fyrir ferðamenn. Hér er um að ræða lítið en arðbært fyrirtæki sem hannar og lætur framleiða fyrir sig vörur ætlaðar ferðamönnum. Ársvelta 45 mkr. og ársverk um tvö. Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Þórarinn Arnar Sævarsson fasteignaráðgjafi, thorarinn@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hæstaréttarlögmaður, sigurdur@kontakt.is Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Á Íslandi er ómögulegt fyrir okkur sem erum múslimatrúar að fylgja sólarlagsreglu föstu- mánaðarins Ramadan, þá gætum við ekkert borðað allan sólarhringinn. Allan mánuðinn sem Ramadan stendur yfir fasta þeir sem eru múslimatrúar frá því sólin rís að morgni þar til hún sest að kveldi. Þeir borða því að kveldi eftir sólar- lag. En múslimar hér á landi fá að laga sólargangsreglu föstunnar að þeim sérstöku aðstæðum að hér rís sólin á þessum árstíma upp rétt eftir að hún hefur sest,“ segir Serigne Modou Fall sem þekkir þetta af eigin raun, verandi múslimi og hafa búið á Íslandi undanfarin tæp tvö ár. Finnst ekki erfitt að fasta Hann segir ekkert mál að fasta yfir daginn í heilan mánuð. „Ég er ungur og heilsuhraustur en þeir sem eru veikir þurfa ekki að fasta, og sama er að segja um þá sem eru á ferðalögum þegar Ramadan stendur yfir, þeir geta frestað föst- unni þar til ferðalagi lýkur.“ Serigne segir að Ramadan sé ní- undi mánuðurinn í íslamska dagatal- inu. „Íslamska dagatalið tekur mið sitt af tunglinu og því er breytilegt frá hvaða degi til hvaða dags Ramad- an-mánuðurinn stendur. Að fasta í mánuð er ein af fimm stoðum ísl- amstrúar, ætlað til að fólk efli aga sinn og trúfestu. Það væri erfitt að fasta ef einhver manneskja segði mér að gera það, en það er ekki erfitt þeg- ar ég geri það til að efla mig í trúnni. Ég geri það fyrir mig, engan annan. Mér líður eins og ég sé frjáls í hjarta mínu meðan á föstunni stendur, auk þess er það gott fyrir heilsu mína, hreinsandi,“ segir Serigne og bætir við að einnig sé öllum múslimum skylt að gefa fátækum peninga með- an á föstumánuði stendur. Vissi ekkert um Ísland Serigne er 23 ára, fæddur og uppalinn í Senegal í Afríku, en hann fluttist til Ítalíu þegar hann var 12 ára, þar sem faðir hans býr, en móðir hans býr á Spáni. „Ég spilaði fótbolta á Ítalíu í átta ár og eftir það fór ég til Spánar þar sem ég spilaði í eitt tímabil. Þaðan flutti ég svo til Noregs þar sem ég spilaði undir stjórn Teits Þórðarsonar. Teitur var mín fyrsta tenging við Ísland, því ég vissi ekk- ert um þetta land fram að því. Eftir eitt og hálft tímabil í Noregi sagði Teitur að kannski gæfust mér betri tækifæri í fótboltanum á Íslandi, og ég ákvað að slá til. Ég fór á reynslu hjá Víkingi, þar sem bróðir hans, Ólafur Þórðarson, var að þjálfa, en síðan flutti ég til Ísafjarðar þar sem ég lék með BÍ/Bolungarvík, sem varð að Vestra. Ég bjó á Ísafirði í tvö sumur og æfði þar fótbolta, en núna er ég fluttur til Reykjavíkur, því mér var boðinn samningur hjá ÍR og þar æfi ég fótbolta. Ég sé líka um knattspyrnuskóla ÍR.“ Kristjana hefur hjálpað mér Serigne segir ekki hafa verið auðvelt að finna íbúð í höfuðborginni þegar hann flutti suður, en Daouda, vinur hans frá Senegal sem hefur Ramadan og björtu sumarnæturnar Serigne Modou Fall ætlar að fagna lokum föstumánaðarins Ramadan með vinafjölskyldu sinni á Íslandi á morgun með mikilli matarveislu, en hann býr hér á landi þar sem hann æfir fótbolta með ÍR. Hann hefur aldrei mætt fordóm- um á Íslandi vegna trúar sinnar, hvorki þegar hann bjó á Ísafirði né í Reykjavík. Hann segir Íslendinga einstaklega vinsamlega og unir hag sínum vel. Morgunblaðið/Hanna Birtan Sergine Modou Fall kann vel við sig í íslenska sumrinu og segir Íslendinga taka honum eins og hann er. Fótboltinn Serigne í leik í vor þar sem ÍR mætti Gróttu, lið hans ÍR sigraði 2:1. Að baki honum er Dagur Guðjónsson, liðsmaður Gróttu. Bubba Morthens þekkir nánast hvert mannsbarn á Íslandi, en hann sendi frá sér nýja plötu á afmælisdaginn sinn fyrr í þessum mánuði, þann 06.06.17. Platan heitir Túngumál (já með ú-i) og sama nafn er á tónleika- túr Bubba sem nú stendur yfir í til- efni útkomu nýju plötunnar. Hann verður með kassagítarinn í Hlégarði í Mosfellsbæ á morgun, sunnudag 25. júní, og ætlar að flytja lög af nýju plötunni sinni, auk eldra efnis í bland. Í tilkynningu kemur fram að á plötunni leggi Bubbi áherslu á að hafa hljóðfæraskipan og flutning eins lífrænan og völ er á. Allir gítarar sem voru hljóðritaðir voru spilaðir af Bubba sjálfum. Hljóðheimurinn hefur sterkar vísanir í þjóðlagahefðir Mið- og Suður-Ameríku en er fyrst og fremst sköpunarverk Bubba og upp- tökustjórans Arnþórs Örlygssonar, en þeir unnu náið saman í öllu upptöku- ferlinu. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og miðar fást á tix.is. Tónleikar í tilefni nýju plötunnar Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Með gítarinn Bubbi Morthens og gítarinn eru nánast sem eitt í hugum margra. Bubbi í Hlégarði á morgun Fögnuður Marie dóttir Kristjönu og Daouda fagnar sigri hjá Serigne.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.