Morgunblaðið - 24.06.2017, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 24.06.2017, Qupperneq 13
Með fjölskyldu sinni á Ísafirði F.v aftari röð: Elmar, Serigne, Sigurður Geir bróðir Elmars, Garðar faðirinn. F.v fremri röð: Birta systir Elmars, Anna Lind móðirin og tengdadóttirin Kristín, kærasta Sigurðar Geirs. búið á Íslandi í tuttugu ár og er gift- ur íslenskri konu, Kristjönu Mar- gréti Þórisdóttur, leyfði honum að búa á heimili þeirra fyrstu þrjá mán- uðina í Reykjavík. „Kristjana er yndisleg og hefur hjálpað mér mjög mikið. Ég lít á þau sem mína nánustu fjölskylda á Ís- landi og ég heimsæki þau oft. Ég mun fagna með þeim á morgun með matarveislu, því síðasti dagurinn í föstumánuði Ramadan er í dag. Bræður Daouda munu einnig koma til veislunnar og mér á eftir að líða eins og ég sé heima hjá mér, þá fæ ég ekki heimþrá. Þetta er stór hátíð hjá okkur múslimum, þegar Ramad- an lýkur, hún heitir Eid al-Fitr.“ Fólk einblínir ekki á trú mína Serigne er afar ánægður á Ís- landi og segist hvarvetna mæta vin- semd. „Vissulega var erfitt fyrir mig að flytja til Ísafjarðar í nóvember, þegar myrkrið er svartast og kuld- inn mestur, en mér leið vel af því mér var vel tekið. Ég eignaðist góð- an vin í Elmari Garðarssyni, einum þeirra sem æfðu fótbolta með mér. Ég lít á hann sem bróður minn og hann kynnti mig fyrir fjölskyldu sinni. Þau eru yndislegt fólk.“ Þegar Serigne er spurður að því hvort hann hafi mætt fordómum hér á landi eða orðið fyrir aðkasti vegna þess að hann er múslimi, segir hann svo ekki vera. „Aldrei. Hvorki á Ísafirði né í Reykjavík. Fólk tekur mér eins og ég er, það sér mig og minn persónu- leika en er ekki að einblína á trú mína. Ég er mjög þakklátur fyrir það,“ segir Serigne sem er mikill tungumálamaður, hann talar ensku, ítölsku, spænsku og frönsku og nú er hann að læra íslensku. Þegar hann er spurður að því hvert hann stefni í framtíðinni segir hann sitt helsta markmið að verða betri fótboltamaður og skapa sér orðstír á þeim vettvangi. „Núna er ég að spila í fyrstu deildinni en ég vil gjarnan komast í úrvalsdeild. Framtíð mín er opin. Vissulega sakna ég fólksins míns, foreldra minna og systkina, en ég stefni á að fara í heimsókn til þeirra til Ítalíu og Spánar. Þau undrast mjög þetta land sem ég bý í hér í norðri, þar sem sólin gengur ekki til viðar,“ segir hann og hlær. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2017 Anna Rósa grasalæknir ætlar að bjóða þeim sem vilja að koma með sér út í Viðey á morgun sunnudag 25. júní kl. 13:15, þar sem hún mun leiða göngu um eyjuna. Í tilkynningu kem- ur fram að algengar lækningajurtir verði skoðaðar, fjallað verði um áhrifamátt þeirra og leiðbeint um tínslu og þurrkun. Í Viðey vaxa kröft- ugar jurtir sem gestum er frjálst að tína í samráði við grasalækninn. Gangan tekur um eina og hálfa klukkustund og gott er að fólk komi með taupoka, skæri eða lítinn hníf ef gestir vilja nota tækifærið og tína jurtir. Siglt er samkvæmt áætlun frá Skarfabakka kl. 13:15 en þeir sem vilja fá sér hádegisverð í Viðeyj- arstofu fyrir gönguna geta siglt kl. 12:15. Þátttaka í göngunni er gestum að kostnaðarlausu en gestir greiða ferjutollinn. Endilega … Morgunblaðið/Ómar …skoðið og tínið lækningajurtir með Önnu Rósu grasalækni Í íslamstrú eru fimm stoðir:  Shahada: Aðeins einn Guð er til, Allah, og Múhameð er sendiboði hans.  Salat: Biðja skal fimm sinn- um dag hvern.  Zakat: Skylt er að gefa fá- tækum til að hjálpa þeim að fagna lokum Ramadan.  Sawm: Fasta skal í einn mán- uð, Ramadan.  Hajid: Fara skal til Mekka einu sinni á ævinni, að lág- marki. 5 stoðir íslamstrúar TIL MEKKA EINU SINNI Bæn Að biðja fimm sinnum á dag er ein af stoðum íslamstrúar. TE & KAFFI NOTAR EINGÖNGU ÚRVALS KAFFIBAUNIR FRÁ BESTU RÆKTUNARSVÆÐUNUM, SÉRVALDAR OG BRENNDAR AF BRENNSLUMEISTARA. ILMANDI HLUTI AF DEGINUM Íslenskt fjölskyldufyrirtæki og framleiðsla síðan 1984 PI PA R\ TB W A -S ÍA Stærð: 372m2 Byggt: 1960 Tegund: Atvinnuhúsnæði Húsinu fylgir 3.000m2 lóð Fasteignamat: 9.010.000 kr. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar | Sími 425 2100 | www.kadeco.is Fasteignir til sölu á Ásbrú Á innan við áratug hefur byggst upp á Ásbrú, fyrrum varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll, þróttmikið og litríkt samfélag með öfluga menntastofnun, fjölda spennandi fyrirtækja, gróskumikla nýsköpun og blómstrandi mannlíf. Hröð uppbygging í gagnaveraiðnaði og örþörungarækt, ásamt nálægð við Keflavíkurflugvöll gera Ásbrú að góðu vaxtarsvæði til framtíðar. Þú getur skoðað allar eignir sem félagið hefur til sölu á kadeco.is AÐALTRÖÐ 2 Bestu vinir Serigne og Elmar sprella hér saman á góðri stundu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.