Morgunblaðið - 24.06.2017, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 24.06.2017, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2017 EITT ER VÍST: ALNO Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is Guðni Einarsson gudni@mbl.is Fjöldi bílaleigubíla hefur meira en tvöfaldast á fimm árum. Í byrjun júní voru 24.388 bílaleiguökutæki á skrá en þau voru 11.038 í byrjun júní 2013, samkvæmt Samgöngu- stofu. Nýskráningar bílaleigu- ökutækja hafa aukist hratt á sama tímabili. Breiður bílaleigubíla hafa blasað við vegfarendum vestast í Keflavík. Það kann að skýrast af því að mesti annatíminn í ferðaþjónustu sé geng- inn í garð. Sú spurning er líka áleit- in hvort bílaleigur séu að lenda í því sama og sum gistihús, það er að bókunum sé að fækka. 75 milljarða bílafloti Sé meðalverð hvers bílaleigubíls áætlað um þrjár milljónir króna er verðmæti alls flotans ekki langt frá 75 milljörðum. Til samanburðar var áætlað í byrjun árs 2014 að nýr Landspítali með tækjum kostaði um 65 milljarða. Styrking krónunnar gerir tang- arsókn að bílaleigunum. Óbreyttar verðskrár í erlendri mynt skila tals- vert færri krónum í kassann en áður vegna styrkingar krónunnar. Marg- ir hafa auk þess þurft að lækka verð vegna harðnandi samkeppni. Innkaupsverð bíla hefur lækkað vegna styrkingar krónunnar og það leiðir til lækkunar á verði notaðra bíla. Varlega má ætla að 75% af bílaleigubílum séu fjármögnuð með lánsfé sem er þá a.m.k. 56 milljarðar króna. Lán í íslenskum krónum lækka hins vegar ekki. Því er viðbú- ið að lækkun á markaðsverði bílanna við endursölu muni rýra efnahag bílaleiganna svo um munar. Mikil offjárfesting í greininni „Það hefur verið mikil offjárfest- ing í þessum geira. Menn munu súpa seyðið af því í haust. Það er mikið offramboð af bílaleigubílum,“ sagði Garðar K. Vilhjálmsson, eig- andi Bílaleigunnar Geysis. „Menn eru að keyra niður verð. Ég sé ekki annað en að einhverjar leigur týni tölunni þegar kemur fram á vetur. Ég tala ekki um ef gengið þróast áfram eins og það hefur gert.“ Garðar sagði útlit fyrir að bíla- leigur muni standa frammi fyrir því að notaðir bílar standi ekki undir lánum sem á þeim hvíla. Einstakar bílaleigur eru nú þegar í vandræð- um með að endurnýja bílana. Offjár- festing er að koma mörgum í koll og Garðar sagði að menn reyni í ör- væntingu að koma bílunum í leigu og lækki verðið. Hinir verði að fylgja á eftir. Algengt meðalverð fyrir vikuleigu á smábíl hjá Geysi er nú 10-20% lægra í evrum en í fyrra. Auk þess skilar evran 15-20% færri krónum en þá. Garðar kvaðst sjá tilboð frá öðrum leigum um vikuleigu upp á 300-350 evrur á háannatíma. Fyrir nokkrum árum heyrði til tíðinda ef það fannst vikuverð undir 500 evr- um á háannatíma. Garðar sagði að algengt vikuverð á ódýrasta bíl hafi verið 450-550 evrur. Framlegðin hefur minnkað mikið en kostnaður aukist. „Tryggingar hafa hækkað um 50% og laun um 40-50% á þrem- ur árum,“ sagði Garðar. Fjölguðu ekki bílum í sumar „Við hjá Bílaleigu Akureyrar ákváðum að fjölga ekki bílum í sum- ar,“ sagði Bergþór Karlsson, fram- kvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar sem situr í bílaleigunefnd Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF). Hann sagði sterka stöðu krónunnar hafa ráðið mestu um að þeir héldu að sér höndum í bílakaupum. Bílaleiga Ak- ureyrar er stærsta bílaleiga lands- ins með nálægt því 4.500 bíla. Bergþór kvaðst hafa á tilfinning- unni að leiga á bílaleigubílum sé að dragast saman frekar en að aukast. „Það kæmi mér ekki á óvart ef einhverjir eru komnir með of- framboð af bílum,“ sagði Bergþór. Hann sagði alveg ljóst að sterk staða krónunnar fari verst með bíla- leigurnar. Bílaleiga Akureyrar hef- ur mætt styrkingu krónunnar með því að lækka verð í erlendri mynt. Bergþór sagði ljóst að fjár- mögnun bílakaupa á næsta ári muni kalla á aukið eigið fé hjá bílaleig- unum og að erfitt geti orðið að fjár- magna bílakaup. „Ég held að það sé komið að endastöð í fjölgun bíla- leigubíla, í bili að minnsta kosti,“ sagði Bergþór. Afsláttur af vöru- gjöldum á bílaleigubíla á að falla niður um áramótin. Það mun þyngja enn róðurinn hjá bílaleigunum. Bergþór sagði að bílaleigunefnd SAF hafi miklar áhyggjur af stöðu greinarinnar. Í næstu viku verður fundur þar sem farið verður yfir þessi mál. „Þetta er verulegt áhyggjuefni. Ég held að þessi rekst- ur verði miklu erfiðari en hann hef- ur verið hingað til,“ sagði Bergþór. Hann sagði að sér kæmi ekki á óvart ef bílaleigum myndi fækka í haust. Leigja út ódýra, notaða bíla Bílaleigan SADcars leigir eldri notaða bíla. Hún gefur sig út fyrir að vera ódýrasta bílaleigan á Ís- landi. Sigurður Smári Gylfason framkvæmdastjóri sagði að þeir væru með 350 - 400 bíla í útleigu. „Það var meiri lægð en við höfum átt að venjast eftir páska og út maí. En frá byrjun júní hefur ástandið verið nokkuð eðlilegt. Það sem við sjáum fram á í sumar er nokkuð í takti við það sem við eigum að venj- ast,“ sagði Sigurður. Hann sagði að verðskrá SADcars hafi hækkað fyrstu fimm mánuði ársins um 5-6% miðað við sama tíma í fyrra. Evran hefur hins vegar veikst um nærri 20% gagnvart krónu á sama tíma. Sigurður sagði að fyrirtækið fái því umtalsvert minna í krónum út úr hverri leigu. Það sé aðalvandinn og ekkert svig- rúm til að lækka leiguverðið. SAD- cars hefur mætt þessu með stækk- un flotans og fleiri útleigum. Sigurður sagði að þeir hafi lítið keypt af nýjum bílum á lánum. Þeir finna því lítið fyrir því þótt inn- kaupsverð nýrra bíla lækki með styrkingu krónunnar. „Við fáum ekki það högg í efna- hagsreikning okkar sem ég reikna með að margir aðrir séu að fá. Þetta hlýtur að vera vandamál fyrir þá sem eru með flota sem voru keyptir á allt öðru gengi krónu en gildir nú. Það þarf einhvern veginn að af- skrifa það,“ sagði Sigurður. Styrkist krónan meir þurfi að afskrifa enn meira. „Bókunarstaðan er þokkaleg hjá okkur en framlegðin hefur minnkað og það kemur ofan í kostnaðaraukn- ingu vegna launahækkana og trygg- inga,“ sagði Sigurður. Blikur eru á lofti hjá bílaleigunum  Offjárfesting sögð munu koma mönnum í koll  Sterkari króna gerir tangarsókn að bílaleigunum  Minna fæst í krónum fyrir hverja leigu en áður  Verðlækkun á bílum lækkar endursöluverðið Ljósmynd/Víkurfréttir Keflavík Vestast í Keflavík hafa staðið stórir flotar bílaleigubíla í vetur. Talsvert var eftir af bílum þegar myndin var tekin um miðjan maí. Miðgengi gjaldmiðla í íslenskum krónum Heimild: Seðlabanki Íslands Banda- ríkjadalur Sterlings- pund Evra 23. júní 2017 103,89 132,28 116,00 23. júní 2016 120,72 180,13 137,85 Styrking krónunnar 16% 36% 19% Fjöldi og nýskráningar bílaleiguökutækja Þúsundir ökutækja 2013–2017 25 20 15 10 5 0 11,0 13,2 16,4 22,0 24,4 *Nýskráningar 1.1.2017-21.6.2017. Búast má við að nýskráningum í maí og júní 2017 fjölgi, þar sem þær tölur eru bráðabirgðatölur. Fjöldi ökutækja á skrá í byrjun júní Nýskráningar í janúar–júní Heimild: Samgöngustofa 2013 2014 2015 2016 2017 *

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.