Morgunblaðið - 24.06.2017, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 24.06.2017, Qupperneq 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2017 Nú er hann Jói Svavars, kær vinur okkar, farinn á vit feðra sinna og margs að minnast. Þegar okkur fjölskyldunni leist ekki á að tjalda á unglingalands- móti á Sauðárkróki og spurðum heimamanninn Jóa hvar væri best að fá gistingu svaraði hann strax: húsið mitt er tómt og eins gott að það nýtist einhverjum meðan við Sigríður erum hérna á Patreks- Jóhann Sigurður Svavarsson ✝ Jóhann Sigurð-ur Svavarsson fæddist 4. mars 1946. Hann and- aðist 2. júní 2017. Útför Jóhanns fór fram 23. júní 2017. firði. Það hefðu ekki allir boðist til að lána húsið sitt undir níu manna fjölskyldu heila verslunar- mannahelgi og er þetta aðeins eitt dæmi um greiðasemi Jóa. Látrabjarg og eggjataka var mikil ástríða Jóa. Seig hann niður eða klifr- aði upp frá sjó á nærri alla þá staði sem þekktir voru að menn hefðu komist á í gegnum aldirnar. Ég hitti Jóa í fyrsta skipti á Hvallátr- um þegar ég var að koma úr eggja- ferð úr Látrabjargi, en hann var þá að fara undir bjargið á bát í ljós- myndaferð með Guðmundi Páli Ólafssyni heitnum. Hann hafði allt- af mikinn áhuga á hvar væri verið að fara í bjargið þó svo að hann væri hættur sjálfur. Síðasta skiptið sem Jói hringdi í mig var ég uppi í Látrabjargi í svokallaðri Vondu- kleif. Hann sagði að nú hefði verið gaman að vera með mér en hann fengi egg í staðinn. Þremur dögum síðar vorum við að fara aftur í egg og Margrét hringdi í mig og til- kynnti mér andlát Jóa. Þá stóð ég nánast á sama stað á Hvallátrum og ég hitti hann fyrst fyrir 18 árum. Í þessari ferð í bjargið vék Jói ekki úr undirmeðvitund minni. Horfði á einn af uppáhaldsstöðum hans upp í Miðlandahilluna, svarta syllu af fugli með um 200 m af þverhníptu bergi bæði fyrir ofan og neðan, þar hlyti Jói að vera kominn að kanna gömlu tökin sín. Við hjónin viljum minnast vinar okkar og styðja aðstandendur í sorginni. Margrét og Eyjólfur. Kveðja frá Rótarýklúbbi Sauðárkróks Árið 1981 kom ungur Vestfirð- ingur til starfa hjá RARIK á Sauð- árkróki, glaðbeittur náungi og starfsamur, og ætlaði að verða þar svo sem hálft ár. Þau urðu hins vegar 34 þegar upp var staðið. Hann var áhugasamur um um- hverfi sitt, skipaði sér í sveit vinstrimanna og gerðist virkur í fé- lagsmálastarfi. Jóhann Svavarsson varð félagi í Rótarýklúbbi Sauðárkróks árið 1996. Þar gegndi hann forsetaemb- ætti starfsárið 2001-2002, reyndist ávallt nýtur félagi og áhugasamur, ræðinn og gamansamur. Þegar hann fluttist alfarinn frá Sauðár- króki vestur á Patreksfjörð árið 2015 sagði hann ekki skilið við fé- lagsskapinn, heldur var áfram í klúbbnum með frjálsa mætingu. Hann kom til okkar á fund 17. nóv- ember sl. og þar var lagt á ráðin um heimsókn klúbbfélaga með mökum í lok maí 2017. Margir voru áhugasamir um þessa ferð, ekki síst Jóhann sjálfur, sem skipulagði heimsóknina frá föstudegi til sunnudags með skoðunarferð um nágrenni Patreksfjarðar þar sem hann ætlaði sjálfur að aka okkur og leiðsegja, enda sjóðfróður um sögu og umhverfi svæðisins. Þegar nær dró kom í ljós að Jó- hann var orðinn veikur og kominn undir læknishendi í Reykjavík svo að honum varð ógerlegt að taka á móti okkur félögum sínum. Allt að einu fórum við vestur á Patreks- fjörð og þótt við söknuðum vinar í stað var ferðin að öðru leyti vel heppnuð, enda hafði Jóhann und- irbúið hana svo sem kostur var og mágur hans tók að sér leiðsögn á laugardeginum fyrir hópinn. Þarna komumst við að raun um hvílíkt starf þau Sigga höfðu leyst af hendi við uppbyggingu Hótel West í gamla kaupfélagshúsinu. Heim kominn sunnudags- kvöldið 28. maí talaði ég við Jó- hann í síma og þá tjáði hann mér að hann hefði um tíma hugleitt að skrifa eitthvað af minningum sín- um og úr því sem komið væri tala þær a.m.k. inn á upptökutæki. Hvatti ég hann til þessa, enda lífs- hlaup Jóhanns með þeim hætti að hann hafði frá ýmsu að segja. Tæpri viku síðar komu boð um að hann væri dáinn. Í ljósi samtals okkar þótti mér næsta sérkennilegt að sem ég var að skrifa þessa grein dreymdi mig Jóhann næstu nótt. Hann sat and- spænis mér við borð og var að blaða í pappírum. Ég virti hann fyrir mér og hugsaði hvað hann liti vel út. Orðaskipti voru engin svo að ég muni. Kannski var hann með á blöðum sínum æviminning- arnar sem aldrei verða skrifaðar. Rótarýfélagar á Sauðárkróki minnast Jóhanns sem góðs vinar og félaga og þakka honum góða kynningu. Aðstandendum hans vottum við samúð og biðjum allrar blessunar. Hjalti Pálsson. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför KOLBRÚNAR ÓLAFSDÓTTUR, Grandavegi 47, Reykjavík, sem lést mánudaginn 29. maí og var jarðsungin 14. júní. Áslaug Stefánsdóttir Einar Örn Kristinsson Ingibjörg Þórðardóttir Einar Baldvin Stefánsson Ragnhildur Steinbach barnabörn og langömmubörn Innilegar þakkir fyrir samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langmömmu, ELÍNAR FRIÐRIKSDÓTTUR hússtjórnarkennara frá Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sunnuhlíðar. Ágúst Óskarsson Helga Sigurðardóttir Hermann Óskarsson Karín M. Sveinbjörnsdóttir Knútur Óskarsson Guðný Jónsdóttir Una María Óskarsdóttir Helgi Birgisson barnabörn og barnabarnabörn Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför fósturföður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS SIGURVINS PÉTURSSONAR Bröttugötu 2, Borgarnesi. Fyrir hönd aðstandenda, Jakobína S. Stefánsdóttir Sverrir Hjaltason Pétur Valgarð Hannesson María Erla Guðmundsdóttir Friðþjófur Th. Ruiz Birna Rúna Ingimarsdóttir Öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ELÍASAR ARASONAR frá Valstrýtu, til heimilis á Hrafnistu Hafnarfirði, áður Hellisgötu 19, færum við okkar bestu þakkir. Sérstakar þakkir til starfsfólks og vistmanna Hrafnistu og starfsfólks lungnadeildar Landspítala fyrir frábæra hjúkrun og aðhlynningu. Guð blessi ykkur öll. Guðný, Sigurður, Erna og fjölskyldur Við færum vinum og ættingjum innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulegu móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, DÓRU OTTESEN JÓSAFATSDÓTTUR, áður til heimilis að Ljósheimum 6, Reykjavík. Kærar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Mörk fyrir elskulegheit og umhyggju. Erla Haraldsdóttir Sigurður Einarsson Jóna Haraldsdóttir Thelma Sigurðardóttir Jón Otti Jónsson Hrönn Sigurðardóttir Haraldur V. Haraldsson Margrét Gunnlaugsdóttir Sigurhans Vignir Halldór Gunnlaugsson Hildur Sveinsdóttir og barnabarnabörn Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNU MARGRÉTAR JÚLÍUSDÓTTUR, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum. Sérstaklega þökkum við starfsfólki Hraunbúða fyrir góða umönnun á liðnum árum. Júlía Tryggvadóttir Ólafur Tryggvason Karen Tryggvadóttir Sigurlás Þorleifsson barnabörn og langömmubörn Kæru ættingjar og vinir. Þökkum auðsýnda samúð, kveðjur og hlýhug við andlát og útför bróður okkar, mágs og frænda, EIÐS B. GUÐVINSSONAR, Dvalarheimilinu á Sauðárkróki, á Sauðárhæðum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilisins fyrir alúð og umönnun. Guð blessi ykkur öll. Margrét Guðvinsdóttir Haukur Björnsson Stella Guðvinsdóttir systurbörn og fjölskyldur Bróðir okkar og frændi, AÐALSTEINN BJÖRGVIN JÓHANNSSON, Hrísalundi 8f, Akureyri, lést 19. júní. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 30. júní klukkan 13.30. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri, reikn. 0565-26-10321, kt. 640216-0500. Sigrún Jóhannsdóttir Snjólaug Jóhannsdóttir Áslaug Jóhannsdóttir Bryndís Jóhannsdóttir og frændsystkini Aðeins 18 dagar liðu frá því að Jónína lést þar til að Ágúst fylgdi henni, slíkt er fjarri því að vera óþekkt á meðal hjóna sem fylgj- ast að sína ævi. Pétur eiginmaður minn var náinn afa og ömmu, hann bjó fyrsta æviárið á heimili þeirra og voru þau miklir þátt- takendur í uppvexti hans. Oft rifjar hann upp þessa dýrmætu tíma úr æsku sinni. Stríðni og ✝ Ágúst Krist-manns (Kristján Ágúst Kristmanns) fæddist 17. febr- úar 1931. Hann lést 7. júní 2017. Útför Ágústs Kristmanns fór fram 15. júní 2017. Jónína Erna Guðlaugsdóttir fæddist 15. nóvember 1933. Hún lést 20. maí 2017. Útför Jónínu Ernu fór fram 29. maí 2017 fyrirferð afa, og nýbakaðar vöffl- ur og ljúfar kvöldstundir hjá ömmu kunni hann að meta. Á heimili þeirra voru fleiri val- möguleikar um sjónvarpsefni í boði en almennt var á þeim tíma, þau fengu reglulega sendar sjón- varpsupptökur frá Bassa, þetta þótti litlum pjakk merkilegt. Afi sinnti Pétri alla tíð vel, smitaði hann ungan að árum af „veiði- bakteríunni“ – þær voru ófáar veiðiferðirnar þar sem rennt var fyrir lax. Minnisstæðustu veiði- ferðirnar voru í Sandá í Þistils- firði. Ferðalögin sjálf voru ekki síður minnisstæð í huga Péturs en dvölin við ána. Hjónin voru gestrisin, alþýðleg í samskiptum og buðu af sér góðan þokka. Ágúst, framámaður í viðskiptalíf- inu til margra ára, var þrjóskur, skapríkur og hlýr, og Jónína hefðarfrú af gamla skólanum, prúð, smekkleg og listfeng. Sam- ræðuhefðin var órjúfanlegur hluti af hjónabandinu og fór því fjarri að hjónin væru steypt í sama mót, beittu þau kaldhæðni og kímni í bland. Seint verða of- metin þau áhrif sem orðsnjöll og kjarnyrt afi og amma hafa, þau veittu oft heilræði, og kunnum við þeim þakkir fyrir. Heimili þeirra var óvenju nútímavætt enda Ágúst mjög áhugasamur um tækniframfarir. Mér er minnis- stætt fallegt heimili þeirra og mikið af óvenjulegum og falleg- um munum sem þau höfðu m.a. keypt á ferðalögum á framandi slóðum. Starfsvettvangur Ágústs sem heildsala kallaði á ferðir er- lendis, jafnframt gerðu öll systk- ini hans sér heimili á erlendri grund, tvíburasystur hans í Bandaríkjunum og bróðir hans í Skotlandi. Þau ferðuðust því meira en margir jafnaldrar þeirra. Mér var einstaklega vel tekið af þeim hjónum og ekki leið á löngu þar til við vorum orðin fjögur í heimsókn til ömmu og afa. Úr Eskiholtinu er þrennt sterkast í huga sona okkar, upp- stoppaði fálkinn í sólstofunni, formkakan hjá ömmu og garður- inn að sumarlagi með árstraumn- um. Þeir upplifðu sig á heimavelli hjá ömmu og afa. Oft var Pétur gáttaður yfir því sem Guðlaugi og Ríkharði var leyft umfram hann sjálfan úr æsku, en það er vel þekkt að fólk mildast með árun- um gagnvart barnaskaranum sín- um. Ágúst og Jónína áttu fjögur börn, eignuðust fjölda afkomenda og nutu góðs af, þeim var vel sinnt. Jónína sinnti gjafakaupum til áttræðisafmælisins, afmælis- gjafir, jólagjafir, páskaegg og tækifærisgjafir keypti hún handa barnaskaranum öllum. Hjónin glöddust við hvern gullmolann sem bættist í fjölskylduna og fylgdust vel með þeim. Ágúst og Jónína hafa kvatt þennan heim eftir langa og innihaldsríka ævi. Þau skilja eftir sig sterkan legg sem lætur til sín taka og þau geta verið stolt af. Sumarsólstöður eru handan við hornið og hafa þær vakið athygli og lotningu í sögu mannkyns frá örófi alda, þetta er kveðjustund sem sæmir ykkur, kæru hjón. Við Pétur trúum að þið skiljið við jarðvistina sátt og til þess er gott að hugsa við leið- arlok og ylja sér við allar góðu og litríku minningarnar. Blessuð sé minning Ágústs og Jónínu, með þökk fyrir allt og allt. Áslaug og Pétur. Ágúst Kristmanns og Jónína Erna Guðlaugsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.