Morgunblaðið - 24.06.2017, Síða 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2017
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
„Þetta byrjaði þannig að ég fór í
Skam-partí fyrir fullorðna í Nor-
ræna húsinu fyrir nokkrum mán-
uðum. Það var svo ótrúlega gaman
og mikil stemning að ég ákvað að
stofna fullorðinsaðdáendaklúbb
Skam á Íslandi,“ segir Ása Bald-
ursdóttir sem í kvöld stendur fyrir
lokapartíi fyrir fjórðu seríu þátt-
anna í samstarfi við Bíó Paradís,
RÚV og norska sendiráðið á Íslandi.
Blaðamaður heyrði í Ásu ásamt
Dagbjörtu Hákonardóttur sem er
varaformaður aðdáendaklúbbsins,
þar sem aldurstakmarkið er 25 ára.
„Aldurstakmarkið er til þess að
sannfæra fólk sem er eldra en það
um að þetta er ekki „guilty pleas-
ure“. Vandamálin sem eru til staðar
í Skam eru svo gjörsamlega án
landamæra hvað aldur varðar. Ung-
lingarnir takast á við hluti eins og
ofbeldi, einelti, ástarsorg og útskúf-
un sem við erum líka að takast á við
á vinnustöðum og í vinahópum okk-
ar,“ segir Dagbjört og tekur sem
dæmi þegar Eva var að kljást við að
eiga kærasta en vera algjörlega
vinalaus í fyrstu seríu. „Þetta er
eitthvað sem konur á mínum aldri
eru að lenda í þegar þær skilja við
mennina sína.“
Skam-safarí í Ósló í verðlaun
Ása og Dagbjört segjast hafa
ákveðið að koma saman til þess að
horfa á lokaþátt fjórðu seríu þátt-
anna, sem er jafnframt lokaþáttur
Skam í heild sinni.
Í partíinu verður boðið upp á for-
drykk áður en þátturinn verður
sýndur og að honum loknum verða
tilboð á barnum auk pub-quiz þar
sem aðalvinningurinn er ekki af
verri endanum. „Aðalvinningurinn
er Skam-safarí í Ósló fyrir tvo þar
sem farið verður á alla tökustaði
þáttanna og endað á djamminu þar
sem fylgst verður með norskum
unglingum nánast eins og einhverri
dýrategund í dýralífsþætti,“ segir
Ása.
En hvað finnst þeim um að þetta
sé alger lokaþáttur Skam?
„Ég er bara að reyna að hugsa
sem minnst um það. Mér finnst eins
og ég sé að missa góðan vin,“ segir
Dagbjört en það sé auðvitað ástæða
fyrir því. Julie Andem, höfundur
þáttanna, er nú að fara á fullt með
bandarísku útgáfu þáttanna og
finnst Dagbjörtu spennandi hvernig
hún ætli að gera það. „Ég hef enga
trú á þessu. Það sem gerir Skam
svona æðislegt er þessi skandinav-
íski sósíalrealismi. Þó að þetta séu
unglingar í ríkramannaskóla í rík-
ustu höfuðborg heims er yfirbragðið
ekki þannig. Ef þau fara með þetta
til „Upper East Side“ í New York
verður þetta aldrei eins.“
Afbygging staðalímynda
Ása er sammála Dagbjörtu og
finnst líka áhugavert hvernig And-
em ætlar að takast á við tungumálið
og slanguryrðin sem gera þættina
svo sérstaka. „Bandarísk unglinga-
menning hefur náttúrlega tröllriðið
öllu á mjög söluvænlegan máta. Per-
sónusköpunin verður oft mjög flöt
því það er svo mikið um staðal-
ímyndir en það sem Skam er að
gera er að afbyggja þessar staðal-
ímyndir,“ segir hún.
„Mér finnst líka svo hræðilegt að
kveðja persónurnar á þessum tíma-
punkti vegna þess að við fáum ekki
að fylgjast með „rússinu“ á næsta
ári og við eigum eftir að kynnast
mörgum persónum svo miklu bet-
ur,“ segir Dagbjört og nefnir Chris,
Even og William sem dæmi um per-
sónur sem hún vill kynnast betur.
„Mér finnst Chris eiga sérstak-
lega mikið inni. Hún er þybbna og
fyndna vinkonan og ekki sæta stelp-
an ef við erum að tala um afbygg-
ingu staðalímynda, sérstaklega nú á
tímum líkamsvirðingar,“ segir Ása
sem heldur þó enn í vonina um að
fleiri seríur verði gerðar.
Ása og Dagbjört hvetja ömmur til
að mæta og biðja fólk að vera ekki
feimið. „Nú er tíminn til að koma út
úr Skam-skápnum,“ segir Dagbjört
að lokum.
Morgunblaðið/Eggert
Tilbúnar Ása og Dagbjört hlakka mikið til partísins í Bíó Paradís í kvöld.
Hvetja ömmur
til að mæta
Fullorðinsaðdáendaklúbbur Skam
heldur partí í tilefni lokaþáttarins
Öðruvísi Aðalpersóna síðustu seríu Skam er múslimsk unglingsstúlka en
markmið þáttanna er einmitt að afbyggja staðalímyndir.
Hjartasteinn
Örlagarík þroskasaga sem
fjallar um sterka vináttu
tveggja drengja.
Morgunblaðið bbbbm
IMDb 7,8/10
Bíó Paradís 22.15
Sing Street
Ungur drengur sem elst upp
í Dublin á níunda áratugnum
fer að heiman og stofnar
hljómsveit.
Metacritic 79/100
IMDb 8,0/10
Bíó Paradís 18.00, 20.00
Knight of Cups
Kvikmynd um mann sem er
fangi frægðarinnar í Holly-
wood.
Morgunblaðið bbmnn
Metacritic 53/100
IMDb 5,7/10
Bíó Paradís 22.00
Heima
Bíó Paradís 18.00
Gremlins
Bíó Paradís 20.00, 22.00
SKAM lokaþáttur
seríu 4
Bíó Paradís 18.00, 20.00
Hunter’s Prayer 16
Launmorðingi er ráðinn til
að bana ungri stúlku en fær
sig hins vegar ekki til að taka
í gikkinn og ákveður að
þyrma lífi hennar.
Metacritic 35/100
IMDb 5,5/10
Smárabíó 20.10, 22.30
Borgarbíó Akureyri 20.00
How to Be a Latin
Lover 12
Karli er dömpað og cið þessi
kaflaskil byrjar hann að skilja
mikilvægi fjölskyldunnar
Metacritic 54/100
IMDb 5,7/10
Laugarásbíó 17.00
Háskólabíó 18.10, 20.50
Borgarbíó Akureyri 20.00
The Mummy 16
Forn drottning, sem var
svipt örlögum sínum á órétt-
látan hátt vaknar upp í nú-
tímanum.
Metacritic 34/100
IMDb 5,8/10
Laugarásbíó 20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 22.30
Borgarbíó Akureyri 22.00
Rough Night 12
Fimm vinkonur úr háskól-
anum koma saman eftir 10
ára aðskilnað í tilefni af gæs-
un einnar þeirra í Miami.
Metacritic 52/100
IMDb 5,5/10
Smárabíó 17.40, 20.00,
22.20
Háskólabíó 18.10, 21.10
Borgarbíó Akureyri 22.10
Ég man þig 16
Ungt fólk sem er að gera
upp hús á Hesteyri um miðj-
an vetur fer að gruna að þau
séu ekki einu gestirnir í
þessu eyðiþorpi.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 8,0/10
Laugarásbíó 17.40, 20.00,
22.20
Smárabíó 17.50
Háskólabíó 15.30, 17.50,
20.30
Borgarbíó Akureyri 17.50
Bíó Paradís 20.00
Guardians of the
Galaxy Vol. 2 12
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 67/100
IMDb 8,1/10
Sambíóin Álfabakka 22.20
Pirates of the
Caribbean: Salazar’s
Revenge 12
Jack Sparrow skipstjóri á á
brattann að sækja enn á ný
þegar illvígir draugar.
Metacritic 39/100
IMDb 7,0/10
Sambíóin Álfabakka 17.15
Sambíóin Egilshöll 14.00,
19.50
Sambíóin Kringlunni 19.30
Sambíóin Akureyri 22.30
Snatched 12
Þegar kærastinn Emily
sparkar henni ákveður hún
að fá varkára móður sína
með sér í frí til Ekvador.
Morgunblaðið mnnnn
Metacritic 45/100
IMDb 3,6/10
Háskólabíó 21.00
Spólað yfir hafið
Morgunblaðið bbbbn
Borgarbíó Akureyri 17.50
Bílar 3 Leiftur McQueen þarf að
víkja fyrir nýrri kynslóð hrað-
skreiðra kappakstursbíla.
Metacritic 59/100
IMDb 7,4/10
Sambíóin Álfabakka 13.00,
14.00, 15.00, 15.20, 17.40,
20.00
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.15, 17.30
Sambíóin Kringlunni 13.00,
14.00, 15.20, 17.40, 20.00
Sambíóin Akureyri 13.00,
14.00, 15.20, 17.40
Sambíóin Keflavík 13.00,
14.00, 15.20, 17.40
Smárabíó 12.50, 13.30,
15.00, 15.40, 17.10
Stubbur stjóri Sjö ára drengur verður af-
brýðisamur út í ofvitann, litla
bróður sinn.
Metacritic 50/100
IMDb 6,4/10
Smárabíó 13.00, 15.20
Háskólabíó 15.30, 17.50
Heiða
Hjartnæm kvikmynd um
Heiðu, sem býr hjá afa sín-
um í Svissnesku Ölpunum.
IMDb 7,4/10
Laugarásbíó 14.00
Háskólabíó 15.10
Spark: A Space Tail Metacritic 22/100
IMDb 4,4/10
Sambíóin Álfabakka 13.30,
15.30
Strumparnir:
Gleymda þorpið Strympa og félagar hennar
finna dularfullt landakort
sem leiðir þau í gegnum
drungalega skóginn. Á leið-
arenda er stærsta leynd-
armál Strumpasögunnar að
finna.
Metacritic 45/100
IMDb 5,9/10
Háskólabíó 15.30
Optimus Prime finnur heimaplánetu sína sem nú er dauð, og hann
kemst að því að hann ber ábyrgð á ástandinu. Hann finnur leið til
að lífga plánetuna við en þarf að finna helgigrip, sem er á Jörðinni.
Metacritic 30/100
IMDb 5,6/10
Laugarásbíó 15.00, 18.00, 21.00
Sambíóin Álfab. 14.00, 15.30, 17.00, 18.30, 20.00, 21.30, 23.00
Sambíóin Egilshöll 13.00, 16.30, 19.30, 22.30
Sambíóin Kringlunni 14.00, 17.00, 20.00, 22.20,
23.00
Sambíóin Akureyri 17.00, 20.00, 23.00
Sambíóin Keflavík 17.00, 20.00, 23.00
Smárabíó 13.00, 15.30, 16.30, 18.50, 19.15, 19.50,
22.00, 22.30, 22.55
Transformers:
The Last Knight 12
Baywatch 12
Mitch Buchannon, sem lendir upp á kant við nýliðann Matt
Brody. Þeir neyðast þó til að starfa saman.
Morgunblaðið bbnnn
Metacritic 37/100
IMDb 5,7/10
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00,
22.30
Sambíóin Kringlunni 17.00
Sambíóin Akureyri 20.00
Sambíóin Keflavík 20.00
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna
Wonder Woman 12
Herkonan Diana, prinsessa Amazonanna,
yfirgefur heimili sitt í leit að örlögunum.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 76/100
IMDb 8,1/10
Sambíóin Álfabakka 17.00, 20.00,
23.00
Sambíóin Egilshöll 14.00, 17.00, 19.50,
22.40
Sambíóin Kringlunni 22.10
Sambíóin Keflavík 22.30