Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.07.2017, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.7. 2017
VETTVANGUR
Mig langar að byrja fyrstugrein mína á þessum vett-vangi á að þakka fyrir að
fá tækifæri til að segja fáein orð við
ágæta lesendur Morgunblaðsins
með reglulegu bili. Markmið mitt er
að skrifin verði hæfileg blanda af al-
mennum hugleiðingum um stjórn-
mál annars vegar og umfjöllun um
viðfangsefni dagsins hins vegar.
Reynslan verður að leiða í ljós hvort
þetta gengur eftir. Eins og góðum
stjórnmálamanni sæmir ætla ég
ekki að lofa meiru en ég get staðið
við og læt því duga að heita því að
bera virðingu fyrir tíma og athygli
lesenda.
Hugsjónir og lífsviðhorf eru
leiðarljós hvers og eins okkar um
það hvert við viljum stefna. Á grund-
velli þeirra aðhyllumst við megin-
reglur, sem virka eins og áttaviti á
þeim krossgötum sem verða á vegi
okkar þar sem ekki er augljóst
hvaða leið er farsælust til að ná settu
marki. Meginreglurnar hjálpa okkur
þannig að taka afstöðu til flókinna
viðfangsefna.
Sá sem hefur frjálst samfélag að
hugsjón og trú á einstaklingsfram-
takið að lífsviðhorfi hlýtur að aðhyll-
ast þá meginreglu að frelsi og fram-
taki beri að setja sem allra fæstar
skorður og aðeins
ef brýna nauðsyn
beri til. Fyrsta
hugsun þessa ein-
staklings er ekki:
„Hvaða boð eða
bönn getum við
innleitt?“ – held-
ur: „Getum við
sleppt því?“
En þó að
meginreglurnar
vísi okkur alla
jafna í rétta átt
verðum við að hafa hugfast að fram
undan gætu verið sker sem krækja
þyrfti hjá. Sá sem þrjóskur eltir nál-
ina á áttavitanum, sama hvað tautar
og raular og án þess að gæta að um-
hverfi sínu, hefur gert meginregluna
að kreddu. Hann kemst kannski
hratt yfir um stund en siglir fyrr eða
síðar í strand.
Kreddulausir unnendur frelsis
samþykkja því fúslega að boð, bönn
og önnur opinber afskipti geta vel
samrýmst hugsjóninni um frjálst
samfélag og virðingu fyrir athafna-
frelsi. Það breytir því ekki að það er
góð meginregla að gera strangar
kröfur bæði til þeirra reglna sem
þegar hafa verið settar sem og hug-
mynda um ný boð og bönn, sem eng-
inn hörgull er á; hugleiða vel mögu-
leg neikvæð áhrif þeirra og krefjast
þess að sýnt sé fram á að þau séu
nauðsynleg til að sneiða hjá
skerjum.
Óheftur aðgangur að takmarkaðri
fiskveiðiauðlind er skýrt dæmi um
óviðunandi stöðu sem allir töpuðu á
og hefðu haldið áfram að tapa á
nema vegna þess að stjórnvöld stigu
inn í og hertu leikreglurnar. Breyt-
ingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu
fólu í sér róttæka breytingu sem
kallaði eðlilega á umræðu um grund-
vallaratriði á borð við atvinnufrelsi
og jafnræði en fáir efast um það í
dag að breytingin var bæði nauðsyn-
leg og skynsamleg.
Ótakmarkaður aðgangur ferða-
manna að náttúruperlum landsins
kann í sumum tilvikum að spilla auð-
lindinni og valda því að allir tapi til
lengri tíma litið, annars vegar með
beinum náttúruspjöllum og hins
vegar með skertri upplifun ferða-
manna. Eðlilegt er að ábyrgðar-
aðilar landsvæða – einkaaðilar,
sveitarfélög og
hinir ýmsu
fulltrúar ríkisins
– séu vakandi fyr-
ir þessum mögu-
leika og velti fyrir
sér mögulegum
viðbrögðum.
Miklu má áorka
með innviðum,
skipulagi, land-
vörslu og þess
háttar aðgerðum.
Í einhverjum til-
vikum kann þó að vera nauðsynlegt
að ganga lengra og takmarka að-
gang með einhverjum hætti.
Það skiptir sköpum að hafa
traustar upplýsingar og rannsóknir
til að byggja slíkar ákvarðanir á, rétt
eins og raunin hefur verið í sjávar-
útvegi. Þess vegna legg ég áherslu á
að nýta hluta af því svigrúmi sem ég
vænti að málefni ferðaþjónustunnar
fái á fjárlögum til að efla rannsóknir
í þágu greinarinnar og hef leyft mér
að tala um „litlu Hafró“ í því sam-
bandi. Hugmyndin er ekki að
„stækka báknið“ heldur að uppfylla
lágmarksþarfir atvinnuvegar sem
hefur margfaldast að umfangi á ör-
fáum árum, í því skyni að hámarka
verðmætasköpun og stuðla að sjálf-
bærri nýtingu á einni af dýrmætustu
auðlindum okkar.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og ný-
sköpunarráðherra, er nýr pistlahöf-
undur á þessum vettvangi.
Um leiðarljós og leikreglur
’ Sá sem hefur frjálstsamfélag að hugsjónog trú á einstaklings-framtakið að lífsviðhorfi
hlýtur að aðhyllast þá
meginreglu að frelsi og
framtaki beri að setja
sem allra fæstar skorður
og aðeins ef brýna
nauðsyn beri til.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Úr ólíkum áttum
Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
Pawel Bartoszek, þingmaður
skrifaði á Facebook:
„Óþolandi þegar maður fer í
sund og það er fullt af yngra og
eldra fólki í pott-
inum sem er sér-
staklega frátekinn
fyrir okkur á aldr-
inum 36-38. Kann
þetta lið enga
mannasiði?“
Elísabet Jökulsdóttir rithöf-
undur: „Árneshreppsbúar eru að
bara eyða fé landsmanna með því
heimta veg,“ sagði
lögfræðingur hér
á kaffistofunni í
dag.
Jæja, sagði ein
kona, einu sinni
stóð til að flytja
alla Siglfirðinga burtu því það
þótti fáránlegt að halda uppi
svona litlum bæjarfélögum. En svo
voru gerð göng og nú er Siglu-
fjörður einn aðalfjörðurinn á Ís-
landi, frumlegur,
framsækinn og
yndislegur bær.“
Grínistinn Saga
Garðarsdóttir
tísti: „Af hverju er
það alltaf þannig
að týndasta fólkinu finnst það
best til þess fallið að leiða aðra
áfram?“
Brynjar Níelsson þingmaður
ritar á Facebook: „Gott hjá ferða-
málaráðherra að lögvernda ekki
starfsheiti leiðsögumanna enda
væri það öfugþróun. Gætum alveg
lögverndað starfsheitið bóndi eða
húsmóðir. Ættum heldur að draga
úr þessum lögverndunum öllum.“
Bylgja Bab-
ýlóns grínisti tísti:
„Það er fátt
skemmtilegra en
að fríka starfsfólk
skattsins út með
ofsafenginni kurteisi og hressleika
eftir að hafa verið 5 sinnum á
hold.“
Steinþór Hróar Steinsson,
betur þekktur sem Steindi Jr. tísti:
„Ég mun hlaupa hálfmaraþon fyrir
Neistann, styrktarfélag hjartveikra
barna í Reykjavíkurmaraþoninu
19. ágúst.
21 km or die trying!“
Bragi Valdimar Skúlason, ís-
lenskufræðingur
og tónlist-
armaður, tísti:
„Heimurinn er
ekki alslæmur.
Allavega 3% eru
svona lala.“
Nanna Rögnvaldardóttir,
matargúru með meiru, skrifaði á
Facebook: „kann eitt tungumál
svona þokkalega
og dálítið í öðru
(nóg til að geta
skrifað bækur og
greinar á tak-
mörkuðu sér-
sviði). Get lesið
fjögur í viðbót nokkuð greiðlega
og hugsanlega talað eitt þeirra
(eða sambland úr tveimur eða
þremur) ef ég þarf nauðsynlega.
Jú, og svo get ég kraflað mig fram
úr mataruppskriftum á þremur-
fjórum málum í viðbót. Svona
með ágiskunum í bland.
En ég held að það væri sama
hvað ég kynni mörg tungumál, ég
myndi ekki nenna að lesa Knaus-
gård á neinu þeirra (ég hef
reynt).“
AF NETINU
Gorenje – gæðatæki – gott verð
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–18. Allt fyrir eldhúsið