Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.07.2017, Blaðsíða 35
2.7. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
Í kynningu á bókinni Pínulítil kenopsía –
Varúð hér leynast krókódílar eftir Jó-
hönnu Maríu Einarsdóttur nefnir útgef-
andi hennar að verkið sé nýstárleg bók-
menntatilraun, „uppreisn gegn hefðinni
að því leyti að það er andstæða við flest
það sem má kallast „góður skáld-
skapur“.“
Jóhanna María Einarsdóttir hefur
lært bókmenntafræði og ritlist, birt sög-
ur og ljóð í tímaritum og á vefnum og starfað við þáttagerð
fyrir útvarp. Bókaútgáfan Sæmundur gefur út.
Uppreisn gegn hefðinni
Sænski rithöfundurinn Henning Mankell
naut mikillar hylli hér á landi, en hann
lést 2015. Skáldsaga hans Ítalskir skór
kom út á íslensku fyrir stuttu og segir
frá Fredrik Welin, sem býr einn á eyju í
sænska skerjagarðinum og hefur ein-
angrað sig frá umheiminum. Dag einn
stendur kona sem hann hefur ekki séð í
rúm þrjátíu ár, úti á ísnum við eyjuna.
Hún heitir Harriet og er komin til að
láta hann efna gamalt loforð.
Hilmar Hilmarsson þýddi, Mál og menning gefur út.
Ítalskir skór Mankells
Breska skáldkonan Kate Eberlen sló í
gegn með fyrstu skáldsögu sinni, Miss
You, sem kom nýverið út á íslensku sem
Hvít fiðrildi. Í bókinni segir frá þeim
Gus og Tess, sem hittast á tjaldstæði á
Ítalíu sem táningar og eru eins og sköp-
uð hvort fyrir annað. Örlögin koma þó í
veg fyrir að þau nái saman þá og í mörg
ár eftir það, þó að oft muni litlu.
Kate Eberlen starfaði sem enskukenn-
ari áður en hún sneri sér að ritstörfum. Halla Sverrisdóttir
þýddi bókina, JPV útgáfa gefur út.
Leiksoppar örlaganna
BÓKSALA 21.-27. JÚNÍ
Listinn er tekinn saman af Eymundsson.
1 NorninCamilla Läckberg
2 Með lífið að veðiYeonmi Park
3 Talin afSara Blædel
4 Ítalskir skórHenning Mankell
5
Allt í himnalagi hjá
Eleanor
Gail Honeyman
6 BrestirFredrik Backman
7 Stúlkan á undanJ.P. Delaney
8
Litla bakaríið við
Strandgötu
Jenny Colgan
9 EftirlýsturLee Child
10 Gestir utan úr geimnumÆvar Þór Benediktsson
1 Gestir utan úr geimnumÆvar Þór Benediktsson
2 Risasyrpa - RánsferðirWalt Disney
3 Kuggur 16 AfmælisgjöfSigrún Eldjárn
4
Vísnabókin - Ný
Ýmsir / Halldór Pétursson
myndskreytti
5 Risasyrpa - Glóandi gullWalt Disney
6 Vaiana þrautabókWalt Disney
7
Harry Potter og
viskusteinninn
J.K. Rowling
8
Álfheimar leikja og
litabók
Penny Worms
9 Linda og lundinnJenny Coulgan
10 Leyndarmálin mín
Allar bækur
Barnabækur
Stundum velti ég fyrir mér hvernig
fólk fer að sem ekki eignast vini
eins og Línu og Lottu og bræðurna
Ljónshjarta, Sölku
Völku og Harry Pott-
er og Harry Hole,
Hamlet og Elizabeth
Bennet, og kynnist
ekki stöðum sem
eru alvöru eða
ímyndun, voru einu sinni til og eru
ennþá til. Bækur eru dásamleg
ferðalög og þroskaleikföng „par
excellence“!
Ég var loksins að
lesa Raddir úr húsi
loftskeytamannsins
sem kom mér
skemmtilega á
óvart. Sögurnar
mynda fallegan sveig.
Guð hins smáa er á náttborðinu
og ég er farin að hlakka að fara
heim til að halda áfram með hana.
Nýr heimur, fram-
andi og undarlegur
til að byrja með en
svo, eftir hæga byrj-
un, þá er maður
fluttur inn.
Mannsævi eftir R.
Seethaler er sú af nýútkomnum
bókum þetta vorið sem situr best í
mér. Eitthvað órætt en heillandi
við þessa frásögn.
ÉG ER AÐ LESA
Heiðrún
Eyvindardóttir
Heiðrún D. Eyvindardóttir er
bókasafnsfræðingur.
Í bókinni Heilbrigðis-
stefna til framtíðar,
sem kom út á vordög-
um, er að finna safn
greina um heilbrigðis-
mál sem dr. Ingimar
Einarsson, félags- og
stjórnmálafræðingur,
hefur skrifað.
Fjallað er, segir í til-
kynningu. „á gagnrýn-
inn hátt um ýmsar
hliðar heilbrigðismála og íslenska
heilbrigðiskerfisins, jafnt stefnu-
mótun og fjármál, lýðheilsu, al-
þjóðasamvinnu og upplýsingatækni
í heilbrigðisþjónustu. Jafnframt er
bent á að eitt af því
sem einkennir íslenskt
þjóðfélag í saman-
burði við mörg þróuð
þjóðfélög er skortur á
langtímasýn.“
Ingimar segir þetta
eiga jafnt við í heil-
brigðis- og velferð-
armálum og öðrum
málaflokkum. „Ein af-
leiðing þess er sú að
það sem af er þessari öld hefur ekki
tekist að byggja upp og treysta nú-
tíma heilbrigðiskerfi á Íslandi.“
Það er Höfundaútgáfan sem gef-
ur bók Ingimars út.
HEILBRIGÐISSTEFNA TIL FRAMTÍÐAR
Langtímasýn skortir
Dr. Ingimar Einarsson.
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Ný kynslóð
málningarefna
Eru rakavandamál?
u Almatta síloxan útimálningin hleypir rakanum út en ekki inn.
u Fæst einnig teygjanleg á netsprungna fleti
u Einstök lausn á steypta veggi og
múrklæðningar sem eru
einangraðar utanfrá
SÍLOXAN