Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.07.2017, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.07.2017, Blaðsíða 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.7. 2017 V indar blása um Vík daginn sem blaðamann ber að garði. Svif- vængjafólk kemst ekki í flug og því er nógur tími til að spjalla. Erindið er að hitta Grampa Dave, Kanadamann sem orðinn er þekktur í Vík í Mýrdal og setur sinn svip á bæinn. Þessi tæplega sjötugi ævintýramaður er sannur töff- ari; veðurbarinn með grátt skegg og speglasól- gleraugu á höfði. Hann fékk nýlega gefins ís- lenska lopapeysu sem hann fer ekki úr. Á gallabuxunum hangir kringlóttur hátalari sem úr glymur tónlist af og til. Hann býður í bíltúr upp á Reynisfjall og svifvængjamaðurinn Gísli Steinar Jóhannesson, einn stofnenda svif- vængjafyrirtækisins True Adventure, kemur með. Úr hátalaranum glymur hávær bluegrass-tónlist og við hossumst upp mjög grýttan veg sem liggur upp á fjallstopp. Á leið- inni upp segja þeir sögu af kínverskum ferða- manni sem álpaðist þessa leið en endaði á að velta bílnum niður bratta hlíðina. Traustvekj- andi saga. Uppi á toppi er yfirgefið hús sem eitt sinn hýsti ratsjárstöð bandaríska hersins. Þeir fé- lagar segja að þar muni einn vinur þeirra koma upp aðsetri fyrir svifvængjafólk í fram- tíðinni. Tréspýtur eru fyrir gluggana og á einn hlemminn er skrifað: Grampa Dave is a dick- hedd. Á hinum við hliðina á hafði Dave svarað: The only dickhead is the dickhead who can’t spell dickhead. Svifvængjahúmor. Við göngum nálægt brúninni og Reynis- drangar blasa tignarlegir við langt fyrir neðan. Dave stillir sér upp á brúninni og leyfir myndatöku og er ekki laust við að fari um mann smá ónotatilfinning. Lofthræðsla heitir það víst. Þarna eru þeir félagar vanir að láta sig flakka fram af og svífa niður til jarðar. Í þetta sinn látum við nægja að keyra og kom- umst klakklaust niður og setjumst inn á kaffi- hús. Sér eftir að hafa valið þetta nafn Þegar spurður um nafn svarar Grampa Dave að það fari eftir því hvaðan fólk sé, sums staðar er hann einfaldlega Dave, annars staðar Grampa Dave. „Ef þú hefðir þekkt mig þegar ég var ungur var ég kallaður Lucas þannig að sumir þekkja mig undir því nafni. Svo eru aðr- ir, í svifvængjaheiminum í Kanada, sem kalla mig bara gamla geit,“ segir hann og brosir. Hvernig festist viðurnefnið Grampa Dave við þig? „Það var út af Facebook, ég sór að ég myndi aldrei fara á Facebook. En svo þegar dóttir mín flutti til Suður-Afríku var þetta eina leiðin til að fylgjast með henni. Og hún var nýbúin að eign- ast fyrsta barnið og ég var orðinn afi. Mér er illa við að vera með sjálfan mig á veraldarvefnum þannig að ég bjó til nafn. Eitthvað sem er mér kært. Og úr varð Grampa Dave (Afi Dave).“ Og ertu kallaður það? „Já, því miður. Ég sé núna smá eftir að hafa valið þetta nafn,“ segir hann og hlær. Fjallahjól of hættulegt Grampa Dave er frá Ottawa-svæði Kanada og bjó þar í fjörutíu ár. Fyrir fjórum árum tók hann upp á því að stökkva fram af fjalli í svif- væng. „Það gjörbreytti lífi mínu. Það voru reyndar tvö atriði sem breyttu lífi mínu; ég eignaðist barnabörn, og tók upp svifvængja- flug. Þannig að ég flutti á vesturströnd Kan- ada, þar sem hægt er að stunda svifvængja- flug.“ Dave er einhleypur í dag en var eitt sinn giftur og á eina dóttur og tvær afastelpur. Hann rak sitt eigið fyrirtæki sem hannaði og byggði viðarhús. „Eftir að ég fór á eftirlaun var ég allt í einu frír og frjáls og svo fæddist fyrsta barnabarnið og ég fór að hugsa um að láta líf mitt fara í allt aðrar áttir. Og ég gerði það og fór að stunda svifvængjaflug 64 ára,“ segir hann. Af hverju svifvængjaflug, af hverju ekki frekar að fá sér mótorhjól? „Þegar ég byggði eitt af síðustu húsunum mínum var það á vesturströndinni. Og þegar ég kom þangað fékk ég íbúð og fjallahjól, en þarna var mikið um fólk á fjallahjólum. Þannig að ég hjólaði upp fjallið og dó næstum á leið- inni upp og drap mig næstum á leiðinni niður. Þann dag sá ég nokkra svifvængi svífa í loft- inu. Og ég bað vini mína að kynna mig fyrir því fólki, því þessi fjallahjólamennska var aðeins of hættuleg fyrir mig. Og þannig byrjaði þetta allt saman,“ segir hann. Íslendingar í Suður-Afríku Einkadóttirin býr enn í Suður-Afríku og þar dvelur hann á veturna. „Þegar ég kom þangað þetta ár fór ég á námskeið að læra á svifvæng í Höfðaborg og Sammi og Aníta, svifvængjafólk hér í Vík, voru þar að hjálpa til við kennsluna. Og þannig kynntist ég Íslendingum, en Sammi fer þangað árlega og ég hitti hann oft. Fyrir þremur misserum ákvað ég að koma við hér á landi og dvaldi hér í þrjár vikur. Þá var verið að byggja tvo kofa í Vík, í sambandi við far- fuglaheimilið, og þar sem það var sérgrein mín í Kanada fór ég að hjálpa til. Ég eignaðist góða vini og kom aftur í fyrra í þrjár vikur og fór að hjálpa strákunum í True Adventure við að keyra fólk upp fjallið. Ég fór svo heim og komst að því að það var búið að skera niður eftirlaunin mín og þá hringdu þeir í mig og báðu mig að koma aftur. Svo ég gerði það,“ segir hann, en í ár mun hann dvelja hér á landi í fimm mánuði, með einu hléi. Eins konar hugleiðsluástand Dave tók ástfóstri við flugið og flýgur hvern dag sem viðrar til flugs. „Það er þrennt sem heillar mig við flugið. Í fyrsta lagi að þegar ég stekk fram af fjallinu hugsa ég ekki um neitt annað. Maður er algjörlega einbeittur og þannig verður það eins konar hugleiðsluást- and. Maður fókuserar á hreyfingu loftsins og hvernig vængurinn bregst við vindinum, mað- ur hugsar ekki um neitt annað. Númer tvö er fólkið sem ég hitti sem er í þessu. Allir hugsa svipað. Ég myndi kannski ekki segja að fólkið sé klikkað, en vissulega klikkaðra en venjulegt fólk. Það er frábært að vera með þessu fólki, þetta verður eins konar fjölskylda. Og númer þrjú, bjórinn í lok dags,“ segir hann og brosir út í annað. Hann segist hafa eignast vini um allan heim eftir að hann tók upp svifvængja- flug, en hann hefur ferðast til Mexíkó, Síle, Spánar, Tyrklands, Suður-Afríku, Evrópu og víða í Bandaríkjunum. „Ég skipulegg ferðir mínir með því markmiði að komast alltaf til Suður-Afríku þar sem barnabörnin búa, en þær eru átta og tveggja ára.“ Hundurinn át fingurinn Þar sem við sitjum yfir kaffibolla tek ég eftir að á hann vantar hálfan vísifingur og spyr hvað hafi gerst. „Ómerkileg saga. Þetta gerðist fyrir fjörutíu árum við sveitastörf,“ segir hann. „Það merkilega er að puttinn datt af og á jörðina og hundurinn kom og át hann. Þannig að það var ekki hægt að sauma hann aftur á. En sagan sem ég segi börnum er að þetta komi fyrir ef maður borar of mikið í nefið,“ segir hann og setur fingurinn, eða það sem eftir er af honum, upp í aðra nösina og leikur það með tilþrifum. „Ekki bora í nefið! Ef þú gerir það gerist þetta!“ segir hann og dregur stubbinn úr nefinu. Hann skellihlær. Sat fastur á trjátoppi Hefurðu einhvern tímann komist í hann krappann við svifvængjaflugið? „Nei. Ef við lítum á jaðarsport og hættur er mun hættulegra að stunda fjallahjólamennsku. Þar sem ég flýg á vesturströnd Kanada er sí- fellt verið að gera að sárum fjallahjólafólks; beinbrot, rispur og sár. Það er ekki oft sem svifvængjafólk þarf að leita til lækna. Þetta er frekar hættulaust jaðarsport.“ Gísli hvíslar að mér að eitt sinn hafi Dave verið einn að svífa yfir háum trjám í Kanada og það vildi þannig til að hann lenti á trjátoppi og sat þar fastur. Nú voru góð ráð dýr þar sem hann dinglaði þarna, en frá neðstu grein og niður á jörð voru tíu metrar og trjástofninn þykkur. Enginn var nálægt til að koma honum til bjargar. Hann dó ekki ráðalaus heldur tók af sér beltið, slengdi því í kringum stofninn og náði að fikra sig niður á jörðina. Hann var með lítinn vasahníf til að saga og skera greinar til að ná vængnum úr trénu og var nokkra klukkutíma að komast niður, að sögn Gísla. Gaf allar veraldlegar eigur Hvar býrðu hérna í Vík? „Ég gerði upp afturpart af trukki,“ segir hann. Ekkert bað eða klósett er í vagninum en Dave er sáttur og fær að nota baðið á heimili sem er rétt hjá. „Þessar vistarverur eru frá- bærar,“ segir hann og sýnir blaðamanni rauð- an vagn sem hann hefur smíðað smá pall í kringum. Hann býður inn í þennan 8-10 fer- metra vagn. Þar má finna rúm, smá hillu, úti- legustól, tölvu og að sjálfsögðu svifvænginn hans. Meira þarf ekki Grampa Dave. „Fyrir svona fimm árum, þegar allt líf mitt breyttist, losaði ég mig við allar veraldlegar eigur. Ég á einn trukk í Kanada sem ég bý í þegar ég er þar og ég á reyndar enn hús sem ég leigi út, en ég losaði mig við alla hluti. Ég gaf allt sem ég átti og á bara svifvæng og smá tösku með fötum. Það er ótrúlega frelsandi til- finning.“ Hvernig er að bera saman svifvængja- mennsku hér og annars staðar sem þú hefur verið? „Þetta er eins og villta vestrið. Annars stað- ar er mun meira regluverk. Það fallega hér er viðhorf Íslendinga. Bóndinn hinum megin við götuna er sáttur; á meðan þú ert ekki að trufla dýrin hans er allt í lagi. Víða annars staðar er fólk tortryggið í garð okkar, landeigendur til dæmis. Þeir eru hræddir við að verða lögsóttir, ef einhver myndi slasast á landi þeirra. Hér er það þannig að ef maður virðir rétt annarra er það nóg og þeim er sama um okkur.“ Eltist við þjónustustúlkurnar Nú er Vík ansi lítill bær. Leiðist þér aldrei? „Nei. Mér líkar ekki að fara til Reykjavík- ur,“ segir hann og útskýrir að hann sé sveita- strákur í eðli sínu. Ég spyr Gísla hvort það sé mikil hjálp í Grampa Dave. „Það er aðallega svo skemmti- legt að hafa hann,“ segir hann og hlær en bæt- ir við að hann sé mjög góður starfskraftur. Til dæmis hyggjast þeir byggja hús og Dave kem- ur þar sterkur inn sem fyrrverandi hönnuður og húsasmíðameistari. Einnig eru þeir að skipuleggja 380 metra „zipline“, sem er stálvír sem verður strengdur yfir gil sem fólk getur rennt sér eftir. Og á dögum sem ekki er hægt Svifvængjaflug breytti lífinu Sumir þurfa minna en aðrir til að vera hamingjusamir. Íslandsvinurinn Grampa Dave er einn af þeim. Fyrir nokkrum árum gaf hann nánast allar eigur sínar og skiptir nú tíma sínum á milli Íslands og Suður-Afríku. Á báðum stöðum gerir hann það sem honum finnst skemmtilegast; að svífa um loftin blá í svifvæng. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’ Þannig að ég hjólaði uppfjallið og dó næstum á leið-inni upp og drap mig næstum áleiðinni niður. Þann dag sá ég nokkra svifvængi svífa í loftinu. Og ég bað vini mína að kynna mig fyrir því fólki, því þessi fjallahjólamennska var aðeins of hættuleg fyrir mig. Og þannig byrjaði þetta allt saman.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.