Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.07.2017, Page 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.07.2017, Page 15
að fljúga bjóða þeir upp á jeppaferðir með ferðamenn. Dave segir að sér leiðist aldrei. „Það er allt- af eitthvað að gera hérna, kjafta við fólkið, drekka bjór og spila frisbígolf. Svo eltist ég við sætu þjónustustúlkurnar hér. Þær segja mér að hypja mig í burtu,“ segir hann í gríni. Ertu eitthvað að fara á stefnumót með ís- lenskum konum? „Nei, en ég er á Tinder ef einhver hefur áhuga!“ segir hann og brosir. Að komast lifandi heim Daginn eftir á blaðamaður aftur leið um Vík og nú svífa litríkir vængir um himininn í rjómablíðu. Þá er ekkert annað að gera en að sjá hvað er svona stórkostlegt við þetta. Aft- ur keyra þeir Gísli og Dave upp á fjall, en í þetta sinn fer í gegnum huga blaðamanns hvort hann komist lifandi frá þessu. Gísli lof- ar því. „Annars máttu berja mig,“ segir hann og hlær. Við göngum saman út á brún og áð- ur en hægt er að depla auga er búið að festa blaðamann við svifvæng, og Gísla. Grampa Dave fullvissar mig um að allt verði í lagi. Við hlaupum nokkra metra út á brún. „Þetta mun breyta lífi þínu...,“ heyrist í Grampa Dave þegar jörðin er ekki lengur undir fót- um okkar. Reynisfjara blasir við beint fyrir neðan. Við fljúgum hljóðlega um og útsýnið er stórkostlegt. Gísli tekur nokkrar skarpar beygjur og blaðamaður fær í magann og skríkir eins og barn í rússibana. Eftir lend- ingu horfum við upp í fjallið. Þar má sjá Grampa Dave svífa vel og lengi. Frjáls eins og fuglinn. Grampa Dave nýtur lífsins í Vík í Mýrdal og vill hvergi annars staðar vera á sumrin. Hér sést hann svífa yfir kirkjunni og er engu líkara en hann ætli sér að lenda á kirkjuturninum. Morgunblaðið/Ásdís Grampa Dave býr í afturhluta trukks í Vík í Mýrdal yfir sumartím- ann og er alsæll með vistarver- urnar. Hann losaði sig við allar ver- aldlegar eigur fyrir nokkrum árum og finnst hann frjálsari fyrir vikið. Gísli Steinar Jóhannesson, svifvængjamaður og stofnandi True Adventure, segir Grampa Dave mikla hjálparhellu og góðan vin. Þeir félagar sjá um að svífa með ferðamenn yfir Vík og nágrenni. 2.7. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.