Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.07.2017, Qupperneq 40
SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 2017
Um helgina stendur yfir hátíð tileinkuð tísku og tækni í
París. Tilgangurinn með hátíðinni er að sýna allt það nýj-
asta sem er að gerast á mörkum tísku og tækni en hún er
haldin í samvinnu borgaryfirvalda og Institut Français de la
Mode. Á meðal þess sem tekið er fyrir á hátíðinni í ár er
hvaða áhrif gervigreind, þrívíddarprentun og leysigeisla-
skurður hefur á tískuiðnaðinn.
Ennfremur verða veitt ýmis verðlaun á hátíðinni en á
meðal þeirra verkefna sem eru tilnefnd eru nærföt fyrir
karlmenn sem vernda frjósemi þeirra með því að skýla þeim
gegn rafsegulbylgjum, skanni sem hannar þægilegan hæl á
skó sem tekur tillit til hæðar konunnar og lögunar fótarins
og vél sem prentar hvaða mynd sem er úr símanum þínum á
neglur.
AFP
Mörk tísku og tækni
Verk pólska listamannsins Kasia Mola heitir
„Mannlegur mælir“ en fatnaðurinn mælir mengun.
AFP
Hátíð tileinkuð tísku fer fram í París um
helgina en þar er tekið fyrir hvaða áhrif
nýjasta tækni hefur á framtíð iðnaðarins.
Hátíðin fer fram í
París og lýkur
sunnudaginn 2. júlí.
Greint er frá komu ísbjörns í
Sædýrasafnið í Hafnarfirði í
frétt frá apríl 1970 en í fyrstu
var ekki ljóst hvers kyns hann
væri.
„Þegar verið var að reyna að
komast að því hvort þetta væri
herra eða dama veitti húnninn
svo harða mótstöðu að „sér-
fræðingurinn“ slapp allur risp-
aður á handleggjunum. En
niðurstaðan varð sú að þetta
væri dama.
Litla birnan, sem er ekki
meira en nokkurra mánaða
gömul, var flutt um borð í flug-
vélina í trékassa og þótt hún
væri prúð á meðan á ferðalag-
inu stóð leikur grunur á að hún
hafi verið flugveik, því ekki leið
henni vel fyrst eftir komuna til
Íslands,“ segir í fréttinni.
Birnan hresstist eftir að hún
fékk mjólk, lýsi og svolítið af
nýju kjöti og fiski að borða.
„Sædýrasafnsmenn hafa leitað
upplýsinga um bjarndýrafæði
hjá dýragarðinum í Kaup-
mannahöfn,“ segir í fréttinni,
sem lýkur á þessum orðum:
„Er því næst að athuga hvort
ekki reynist unnt að útvega
henni félagsskap – jafnaldra
börn.“
GAMLA FRÉTTIN
Flugveik
birna
Eftir að hafa fengið sér að
borða og drekka og tekið
sundsprett fór litla birnan
að kanna umhverfið.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Jennifer Lopez
tónlistarkona
Kolbrún Pálína Helgadóttir
blaðakona
Jessica Alba
leikkonaSkeif | |u .
Hægt að fá í mismunandi
stærðum og viðartegundum.
Viður/Corian Toppur GM 7700
Hnota 220x92 stækkun 1 x 100 cm.
Plank GM3200
Gegnheil eik
L270 D100 H74
stækkanlegt um 2x50cm
Hægt að fá í fleiri
stærðum og viðartegundum.
Hægt að fá í mismunandi
stærðum og viðartegundum.
Glæsileg borðstof
uborð frá
naver collection
í Danmörku
Þar sem hefðir og h
andverk fara saman
Oval GM 9900
L200 D100 H74
Stækkanlegt, hver stækkun 50cm