Fréttablaðið - 09.01.2018, Side 4
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
Rexton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum
og auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu
og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
LögregLumáL Rannsókn héraðs-
saksóknara á meintum fjárdrætti
úr Afli sparisjóði, sparisjóði Siglu-
fjarðar, ætti að ljúka í næsta mán-
uði. Þetta segir Ólafur Þór Hauks-
son héraðssaksóknari og staðfestir
að tekist hafi að yfirheyra Magnús
Jónasson, fyrrverandi skrifstofu-
stjóra sparisjóðsins, í desember.
Ólafur Þór vill ekki svara því
hvort aðrir liggi undir grun í mál-
inu. Tveir menn voru handtekn-
ir og þar á meðal Magnús í septem-
ber 2015 vegna gruns um fjárdrátt
en skrifstofustjórinn fyrrverandi
lét af störfum í sparisjóðnum í júní
það ár við yfirtöku Arion banka á
fyrirtækinu. Kom þá fram að rök-
studdur grunur hefði komið upp
vegna fyrirspurnar Embættis sér-
staks saksóknara í alls óskyldu
máli.
Rúmum mánuði síðar var greint
frá því að Magnús væri grunaður
um að hafa dregið sér rúmar 100
milljónir króna í starfi og baðst
hann lausnar sem forseti bæjar-
stjórnar Fjallabyggðar.
Ráðist var í húsleitir á Siglufirði í
desember 2016 og aðrir tveir menn
handteknir. Annar þeirra var Ólaf-
ur Jónsson, fyrrverandi sparisjóðs-
stjóri Afls.
Rannsóknin hafði legið á ís vegna
alvarlegra veikinda Magnúsar þegar
Fréttablaðið fjallaði síðast um
málið eða í mars í fyrra. Í sama
mánuði felldi Hæstiréttur úr gildi
úrskurð Héraðsdóms Norðurlands
eystra um að fresta skaðabótamáli
þar til rannsókn á meintum brot-
um Magnúsar, sem talið er að hafi
staðið yfir á nokkurra ára tímabili,
væri lokið. Var þeirri niðurstöðu
mótmælt bæði af lögmanni hans
og Arion banka sem rekur nú útibú
á Siglufirði undir sínum merkjum.
– hg
Rannsókn á meintum fjárdrætti á Siglufirði er nú á lokametrunum
Afl varð til við samruna tveggja
sparisjóða. FréttAblAðið/SteFán
StjórnmáL Áhugi er fyrir því bæði
innan Viðreisnar og Bjartrar fram-
tíðar að vinna saman að því markmiði
að halda íhaldsöflunum frá völdum í
þeim sveitarfélögum þar sem það
er mögulegt. Þetta herma heimildir
Fréttablaðsins.
Þannig hafa forystumenn innan
Viðreisnar og Bjartrar framtíðar átt
óformleg samtöl um samstarf í borg-
inni og í öðrum stærstu sveitarfélög-
um landsins; Hafnarfirði, Kópavogi,
Akureyri og mögulega í Reykjanesbæ.
Fátt er þó um fína drætti þegar
kemur að frambjóðendum fyrir
flokkana tvo, þótt mörgum nöfnum
hafi verið haldið á lofti í umræðunni.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
gefa sitjandi borgarfulltrúar Bjartrar
framtíðar ekki kost á sér í forystusæti
fyrir flokkinn í Reykjavík. Nichole
Leigh Mosty er hins vegar sögð mjög
líkleg.
„Ég er að hugsa um það en ekki
endanlega búin að gefa það út,“
segir Nichole, aðspurð um framboð.
Nichole býr í Breiðholti og hefur
nýverið tekið við stöðu
verkefnastjóra samfélags-
þróunar í hverfinu. „Mér
finnst mjög spennandi
hlutir hafa verið að
gerast hér í Breiðholti.
Það hefur verið svo
jákvæð þróun hér og
gerjun sem ég myndi
vilja að héldi áfram
í borginni,“ segir
Nich ole og bætir
við um framboð:
„Ég viðurkenni að ég er enn að sleikja
sárin eftir reynsluna af þinginu. Ég
mætti miklu mótlæti fyrir að vera
með, en Björt framtíð skiptir mig mjög
miklu máli og ef kallið kemur þaðan,
þá er ég til,“ segir Nichole.
Nafni Pawels Bartoszek hefur
verið haldið á lofti síðan hann datt
út af þingi í haust. Að eigin sögn er
Pawel að leita sér að starfi og hefur
ekki gert upp hug sinn um framboð.
Heimildir blaðsins herma að hann
muni þó ekki sækjast eftir fyrsta sæti
á lista. Hins vegar þykir ekki ólíklegt
að María Rut Kristinsdóttir, aðstoðar-
maður Þorgerðar Katrínar Gunnars-
dóttur, muni sækjast eftir forystu
í borginni fyrir Viðreisn. Áður
en María hóf að aðstoða Þor-
gerði Katrínu starfaði hún
sem sérfræðingur í dóms-
málaráðuneytinu og leiddi
meðal annars samráðshóp
um meðferð kynferðisbrota
í réttarvörslukerfinu.
Ekki er að vænta mikillar endur-
nýjunar hjá Samfylkingunni í Reykja-
vík en enginn sitjandi borgarfulltrúa
flokksins hefur gefið út að hann hygg-
ist hætta. Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri og Hjálmar Sveinsson hafa setið
tvö kjörtímabil en hinir borgarfull-
trúarnir, Skúli Helgason, Kristín Soffía
Jónsdóttir og Heiða Björg Hilmisdótt-
ir, hafa setið eitt kjörtímabil.
Kristín segist þó enn vera að hugsa
málið. „Það er bara pínu erfitt að fara
í fæðingarorlof í pólitík og koma til
baka,“ segir Kristín og tekur dæmi úr
borgarpólitíkinni um Sveinbjörgu
Birnu, Þorbjörgu Helgu og Oddnýju
Sturludóttur. „Ætli maður sé ekki bara
svo hræddur við að það hafi áhrif á
gengið að hafa farið í fæðingarorlof
að maður þorir varla að taka slaginn,“
segir Kristín sem hugsar nú málið í
ljósi #metoo-byltingarinnar.
Þórlaug Ágústsdóttir hefur form-
lega gefið kost á sér til forystu fyrir
Pírata í borginni en Halldór Auðar
Svansson, eini borgarfulltrúi flokks-
ins, hefur gefið út að hann ætli ekki
aftur í framboð. Þórlaug hefur verið
virk í flokknum lengi og skipaði þriðja
sæti á lista flokksins í síðustu borgar-
stjórnarkosningum.
Enn liggur ekki fyrir hverjir gefa
kost á sér í leiðtogakjöri Sjálfstæðis-
flokksins aðrir en Áslaug Friðriks-
dóttir og Kjartan Magnússon, sitjandi
borgarfulltrúar, en framboðsfrestur
rennur út á morgun. Eyþór Arnalds
liggur enn undir feldi en margir lík-
legir frambjóðendur hafa helst úr
lestinni undanfarna daga. Þannig hafa
Unnur Brá Konráðsdóttir og Jón Karl
Ólafsson bæði lýst því yfir að þau fari
ekki fram, þrátt fyrir fjölda áskorana.
adalheidur@frettabladid.is
Viðreisn og Björt framtíð ræða
samvinnu á sveitarstjórnarstigi
Frjálslyndu miðjuflokkarnir ræða sín á milli um komandi kosningar. Engin endurnýjun er í kortunum hjá
Samfylkingunni í borginni. Nichole Mosty íhugar alvarlega framboð í Reykjavík. María Rut Kristinsdóttir
er orðuð við oddvitasæti Viðreisnar en Pawel hugsar enn málið. Þórlaug vill leiða lista Pírata í Reykjavík.
Pawel bartoszek,
fyrrverandi þing-
maður Viðreisnar.
nichole leigh Mosty,
fyrrverandi þingmaður
bjartrar fram-
tíðar.
Ætli maður sé ekki
bara svo hræddur
við að það hafi áhrif á gengið
að hafa farið í fæðingarorlof
að maður
þorir varla að
taka slaginn.
Kristín Soffía
Jónsdóttir,
borgarfulltrúi
Samfylkingarinnar
LögregLumáL Grunur leikur á að
kveikt hafi verið í húsunum í Stardal
við Þingvallaveg aðfaranótt eða að
morgni þrettánda dags jóla sem bar
upp á síðastliðinn laugardag. Óskar
lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
eftir vitnum að mannaferðum við
Stardal vegna rannsóknar á brun-
anum sem varð bæði í íbúðarhúsi
og útihúsum.
Fram kemur í frétt frá lögreglunni
að tilkynnt hafi verið um eldinn
klukkan 9.59 á laugardagsmorg-
uninn. Húsin á staðnum eru afar
illa farin. Samanlagt brunabóta-
mat húsanna er um 167 milljónir
króna. – gar
Grunar íkveikju
í Stardalsbruna
Stardalur eru illa leikinn. Mynd/böddi
veður Gert er ráð fyrir að mikið
hvassviðri gangi yfir landið
sunnanvert og vestanvert í dag og
miðhálendið sömuleiðis. Veður-
stofan hefur gefið úr svokallaða
appelsínugula viðvörun sem gildir
fyrir höfuðborgarsvæðið á mesta
umferðartímanum fyrir hádegi, eða
frá klukkan sex til tíu.
Spáð er að vindhraðinn verði 18
til 25 metrar á sekúndu. Veðurstof-
an segir að mjög hvasst og hviðótt
verði í efri byggðum þegar umferð
fer af stað og börn haldi í skóla.
Einnig verði mjög hvasst á leiðum til
borgarinnar, til dæmis á Kjalarnesi,
Hellisheiði og á Reykjanesbraut. – gar
Illviðri skellur á
höfuðborginni
9 . j a n ú a r 2 0 1 8 Þ r I ð j u D a g u r4 f r é t t I r ∙ f r é t t a B L a ð I ð
0
9
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
B
0
-D
E
8
4
1
E
B
0
-D
D
4
8
1
E
B
0
-D
C
0
C
1
E
B
0
-D
A
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
8
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K