Fréttablaðið - 09.01.2018, Síða 24

Fréttablaðið - 09.01.2018, Síða 24
Þó að einungis þrjú ár séu liðin frá því að Lexus kynnti NX-jepplinginn er strax komið að uppfærslu hans. Ekki nóg með það heldur hefur hann einnig gengið í gegnum nafnbreytingu því NX 200t bíllinn heitir nú NX 300 og ef hann er einnig búinn Hybrid-kerfi ber hann nafnið NX 300h. Svo vel hefur NX-jepplingnum verið tekið að hann stendur fyrir meira en 30% allra seldra Lexus-bíla í Evrópu alveg frá því hann var kynntur árið 2014. Hann hefur einnig selst miklu betur en Lexus-menn þorðu að vona á öðrum bílamörkuðum. Svo vel seljast reyndar Hybrid-bílar Lexus að þeir eru með 40% alls Hybrid-bílamarkaðarins í Evrópu. Til að tryggja áframhaldandi vin- sældir NX hefur hann nú fengið andlitslyftingu og þrátt fyrir að djarfar og sterkar línur hans haldi sér að mestu þá er bíllinn kominn með nýtt grill og framstuðara, ný LED-framljós, ný afturljós, nýjar afar flottar álfelgur, stærri 10,3 tommu aðgerðaskjá, nýja stórgóða fjöðrun, betri hljóðeinangrun og síðast en ekki síst er bíllinn kominn með Lexus Safety System+ öryggis- kerfið. Þá eru komnir fleiri litir að velja úr í vandaðri innréttingunni. Dugandi og sparneytin aflrás Lexus NX er með 2,5 lítra bensín- vél og rafmótora sem saman skila 197 hestöflum. Með þessa aflrás eyðir bíllinn aðeins 5,0 lítrum á hverja 100 km í blönduðum akstri og verður það að teljast gott fyrir svo stóran bíl. Mengunin er aðeins 116 g/km og hjálpar svo lág tala við að halda niðri verði á bílnum. Til að forðast allan misskilning þá er NX 300h ekki Plug-in-Hybrid bíll sem stinga má í samband við rafhleðslustöð, heldur nýtir Hybrid-kerfið í NX þá hreyfiorku sem fæst við hemlun og rennsli bílsins, en hjálpar samt verulega til við minnkun eyðslu bílsins. Þessi aflrás telst kannski seint ofuröflug en nær samt að skila honum hressi- lega áfram, til dæmis í 100 km hraða á 9,2 sekúndum og að 180 km hámarkshraða. Við hæfilega inngjöf er bíllinn bestur og lúxustil- finningin lekur af honum, en þegar gefið er hressilega inn heyrist full mikið í vélinni og hún virðist erfiða talsvert. Flestir kaupendur NX hafa það örugglega frekar að markmiði að láta bílinn eyða litlu og eru penir við inngjöfina, en þeir sem kjósa ofurafl ættu fremur að velja sér talsvert dýrari bíla með mikið afl, eins og Audi SQ5. Þessi aflrás dugar bílnum ágætlega, en gerir hann ekki að sportbíl. Lipur borgarjeppi Lexus NX 300h sendir allt afl bens- ínvélarinnar til framhjólanna en rafmagnsmótorar knýja bæði aftari og fremri öxulinn. Því er ekki hægt að segja að NX sé hreinræktaður fjórhjóladrifsbíll, heldur aðstoðar rafmótorinn að aftan við drifgetu bílsins, en fyrir vikið er hann ekki mjög hæfur til torfæruaksturs. Það hjálpar honum þó að undir lægsta punkt eru 18,5 sentimetrar. Lexus NX 300h er því öðru fremur svo- kallaður borgarjeppi, en af betri gerðinni, því hreinn unaður er að aka honum í borgarumferðinni og var það reynt á dögunum í Madrid þar sem umferðin er sannarlega þung. Þar sannaði hann ágæti sitt og lipurð og vel þurfti að vanda sig við að komast leiðar sinnar sem í raun er ekki draumaveröld þess sem ekki er vanur þéttri borgar- umferð stórborga meginlandsins. Það sem vakti einna mestu gleðina við akstur NX 300h er hversu hljóð- látur bíllinn er og þar undirstrikar Lexus hve mikla lúxusbíla þeir framleiða. Að auki virkar allt svo vel smíðað og stífni yfirbyggingar bílsins færir enn meiri lúxustil- finningu. Þá var ekki slæmt að aka einungis á hljóðlátu rafmagninu þegar umferðin var svo þung að silast var áfram. Þegar tekið er hins vegar vel á bílnum finnst fyrir 1.900 kg þunga hans og fyrir vikið er hann ekki sá fimasti í krefjandi akstri. Ávallt vandaðar innréttingar Innréttingar Lexus-bíla eru í raun sérkapítuli, svo vel eru þær smíð- aðar og yfirleitt skemmir efnisvalið ekki fyrir. Það gildir sannarlega um NX 300h. Ef aksturinn við NX 300h er ekki nóg til að sannfæra öku- mann um að hann sé að aka lúxus- bíl, er nóg að galopna augun og renna þeim yfir innréttingu bílsins. Þar er sko allt til háborinnar fyrir- myndar. Almennt eru bílar Lexus svo vel smíðaðir að þeir toppa oftast lista yfir minnstu bilanatíðni bíla heimsins. Í síðustu mælingu Auto Power í Bretlandi trónaði Lexus til dæmis hæst og engin bilun mældist í bílum Lexus í rannsókn- um þeirra. Heilt yfir er Lexus NX 300h svo mörgum kostum búinn að vega upp þann ókost bílsins að vera ekki sá fimasti í hressilegum akstri. NX á eftir að finna miklu fleiri glaða kaupendur og sú staðreynd að 75% kaupenda Lexus-bíla í Evrópu hafa aldrei átt Lexus áður er líklega því til sönnunar. Sá kantaði batnar enn Aðeins eru 3 ár liðin frá tilkomu Lexus NX en strax er komin fram endurbætt gerð hans og þar fer enn betri lúxusbíll. Þó NX 300h sé ekki fimasti akstursbíllinn í jepplingaflokki vega margir kostir hans upp þann galla. KoStir og gaLLar LexuS nx 300h l 2,5 lítra bensínvél l 197 hestöfl l fjórhjóladrif eyðsla frá: 5,0 l/100 km í bl. akstri Mengun: 116 g/km CO2 hröðun: 9,2 sek. hámarkshraði: 180 km/klst. verð frá: 6.930.000 kr. Umboð: Lexus á Íslandi l eyðsla l Frágangur l Verð l Lág bilanatíðni l Þyngd bílsins hamlar akstursfimi reynsluakstur Finnur Thorlacius finnurth@365.is 9 . j a n ú a r 2 0 1 8 Þ r i Ð j U d a G U r10 b í l a r ∙ f r é t t a b l a Ð i Ð Bílar 0 9 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :2 4 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E B 0 -F C 2 4 1 E B 0 -F A E 8 1 E B 0 -F 9 A C 1 E B 0 -F 8 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 8 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.