Fréttablaðið - 09.01.2018, Qupperneq 24
Þó að einungis þrjú ár séu liðin frá því að Lexus kynnti NX-jepplinginn er strax komið að
uppfærslu hans. Ekki nóg með það
heldur hefur hann einnig gengið
í gegnum nafnbreytingu því NX
200t bíllinn heitir nú NX 300 og ef
hann er einnig búinn Hybrid-kerfi
ber hann nafnið NX 300h. Svo vel
hefur NX-jepplingnum verið tekið
að hann stendur fyrir meira en 30%
allra seldra Lexus-bíla í Evrópu
alveg frá því hann var kynntur
árið 2014. Hann hefur einnig selst
miklu betur en Lexus-menn þorðu
að vona á öðrum bílamörkuðum.
Svo vel seljast reyndar Hybrid-bílar
Lexus að þeir eru með 40% alls
Hybrid-bílamarkaðarins í Evrópu.
Til að tryggja áframhaldandi vin-
sældir NX hefur hann nú fengið
andlitslyftingu og þrátt fyrir að
djarfar og sterkar línur hans haldi
sér að mestu þá er bíllinn kominn
með nýtt grill og framstuðara, ný
LED-framljós, ný afturljós, nýjar
afar flottar álfelgur, stærri 10,3
tommu aðgerðaskjá, nýja stórgóða
fjöðrun, betri hljóðeinangrun og
síðast en ekki síst er bíllinn kominn
með Lexus Safety System+ öryggis-
kerfið. Þá eru komnir fleiri litir að
velja úr í vandaðri innréttingunni.
Dugandi og sparneytin aflrás
Lexus NX er með 2,5 lítra bensín-
vél og rafmótora sem saman skila
197 hestöflum. Með þessa aflrás
eyðir bíllinn aðeins 5,0 lítrum á
hverja 100 km í blönduðum akstri
og verður það að teljast gott fyrir
svo stóran bíl. Mengunin er aðeins
116 g/km og hjálpar svo lág tala
við að halda niðri verði á bílnum.
Til að forðast allan misskilning þá
er NX 300h ekki Plug-in-Hybrid
bíll sem stinga má í samband
við rafhleðslustöð, heldur nýtir
Hybrid-kerfið í NX þá hreyfiorku
sem fæst við hemlun og rennsli
bílsins, en hjálpar samt verulega til
við minnkun eyðslu bílsins. Þessi
aflrás telst kannski seint ofuröflug
en nær samt að skila honum hressi-
lega áfram, til dæmis í 100 km
hraða á 9,2 sekúndum og að 180
km hámarkshraða. Við hæfilega
inngjöf er bíllinn bestur og lúxustil-
finningin lekur af honum, en þegar
gefið er hressilega inn heyrist full
mikið í vélinni og hún virðist erfiða
talsvert. Flestir kaupendur NX hafa
það örugglega frekar að markmiði
að láta bílinn eyða litlu og eru
penir við inngjöfina, en þeir sem
kjósa ofurafl ættu fremur að velja
sér talsvert dýrari bíla með mikið
afl, eins og Audi SQ5. Þessi aflrás
dugar bílnum ágætlega, en gerir
hann ekki að sportbíl.
Lipur borgarjeppi
Lexus NX 300h sendir allt afl bens-
ínvélarinnar til framhjólanna en
rafmagnsmótorar knýja bæði aftari
og fremri öxulinn. Því er ekki hægt
að segja að NX sé hreinræktaður
fjórhjóladrifsbíll, heldur aðstoðar
rafmótorinn að aftan við drifgetu
bílsins, en fyrir vikið er hann ekki
mjög hæfur til torfæruaksturs. Það
hjálpar honum þó að undir lægsta
punkt eru 18,5 sentimetrar. Lexus
NX 300h er því öðru fremur svo-
kallaður borgarjeppi, en af betri
gerðinni, því hreinn unaður er að
aka honum í borgarumferðinni og
var það reynt á dögunum í Madrid
þar sem umferðin er sannarlega
þung. Þar sannaði hann ágæti sitt
og lipurð og vel þurfti að vanda sig
við að komast leiðar sinnar sem
í raun er ekki draumaveröld þess
sem ekki er vanur þéttri borgar-
umferð stórborga meginlandsins.
Það sem vakti einna mestu gleðina
við akstur NX 300h er hversu hljóð-
látur bíllinn er og þar undirstrikar
Lexus hve mikla lúxusbíla þeir
framleiða. Að auki virkar allt svo
vel smíðað og stífni yfirbyggingar
bílsins færir enn meiri lúxustil-
finningu. Þá var ekki slæmt að aka
einungis á hljóðlátu rafmagninu
þegar umferðin var svo þung að
silast var áfram. Þegar tekið er
hins vegar vel á bílnum finnst fyrir
1.900 kg þunga hans og fyrir vikið
er hann ekki sá fimasti í krefjandi
akstri.
Ávallt vandaðar innréttingar
Innréttingar Lexus-bíla eru í raun
sérkapítuli, svo vel eru þær smíð-
aðar og yfirleitt skemmir efnisvalið
ekki fyrir. Það gildir sannarlega um
NX 300h. Ef aksturinn við NX 300h
er ekki nóg til að sannfæra öku-
mann um að hann sé að aka lúxus-
bíl, er nóg að galopna augun og
renna þeim yfir innréttingu bílsins.
Þar er sko allt til háborinnar fyrir-
myndar. Almennt eru bílar Lexus
svo vel smíðaðir að þeir toppa
oftast lista yfir minnstu bilanatíðni
bíla heimsins. Í síðustu mælingu
Auto Power í Bretlandi trónaði
Lexus til dæmis hæst og engin bilun
mældist í bílum Lexus í rannsókn-
um þeirra. Heilt yfir er Lexus NX
300h svo mörgum kostum búinn að
vega upp þann ókost bílsins að vera
ekki sá fimasti í hressilegum akstri.
NX á eftir að finna miklu fleiri glaða
kaupendur og sú staðreynd að 75%
kaupenda Lexus-bíla í Evrópu hafa
aldrei átt Lexus áður er líklega því
til sönnunar.
Sá kantaði batnar enn
Aðeins eru 3 ár liðin frá tilkomu Lexus NX en strax er komin fram endurbætt gerð hans og þar fer enn betri
lúxusbíll. Þó NX 300h sé ekki fimasti akstursbíllinn í jepplingaflokki vega margir kostir hans upp þann galla.
KoStir og gaLLar
LexuS nx 300h
l 2,5 lítra bensínvél
l 197 hestöfl
l fjórhjóladrif
eyðsla frá: 5,0 l/100 km í bl. akstri
Mengun: 116 g/km CO2
hröðun: 9,2 sek.
hámarkshraði: 180 km/klst.
verð frá: 6.930.000 kr.
Umboð: Lexus á Íslandi
l eyðsla
l Frágangur
l Verð
l Lág bilanatíðni
l Þyngd bílsins hamlar
akstursfimi
reynsluakstur
Finnur
Thorlacius
finnurth@365.is
9 . j a n ú a r 2 0 1 8 Þ r i Ð j U d a G U r10 b í l a r ∙ f r é t t a b l a Ð i Ð
Bílar
0
9
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
B
0
-F
C
2
4
1
E
B
0
-F
A
E
8
1
E
B
0
-F
9
A
C
1
E
B
0
-F
8
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
8
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K