Fréttablaðið - 09.01.2018, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 09.01.2018, Blaðsíða 22
Á akstrinum um suðurströndina mætti bílnum töluverð ófærð sem hann kláraði með sóma. Nú má velja um nýja þriggja lítra, sex strokka, 265 hestafla dísilvél. Er 55 kílóum léttari með auk- inni notkun áls og koltrefja. Bílaumboðið BL kynnir nú á laugardag, 13. janúar milli klukkan 12 og 16, þriðju kyn- slóð sport jeppans BMW X3 sem mörgum hér á landi er að góðu kunnur í núverandi xDrive-útgáfu. X3-bíllinn hefur verið einn af sölu- hæstu bílum BMW mörg undan- farin ár. Nefna má að rúmlega 1,5 milljónir af X3 hafa verið seldar síðan bíllinn kom á markað 2003 og skömmu fyrir áramót völdu lesendur Auto Zeitung hann sem besta sport- og útvistarbílinn í sínum flokki. Með nýrri kynslóð X3 leitast BMW við að fylgja eftir vinsældum bílsins, m.a. með því að auka staðalbúnað, litaúrval og aðra kosti við samsetningu á útfærslum í samræmi við óskir viðskiptavina. Einnig hefur tæknilausnum fjölgað, m.a. hvað varðar aðstoð við akstur og síðast en ekki síst hafa verið gerðar ýmsar útlitsbreytingar til að skerpa á nýjungunum og sport- legum eiginleikum bílsins. Aukin notkun áls og koltrefja Við smíði nýja bílsins hefur BMW aukið notkun áls og koltrefja í undir- og yfirbyggingu auk notk- unar annarra efna í innréttingu sem gera að verkum að nýr X3 er 55 kg léttari en fyrri gerð. Þá hefur litaúrval einnig verið aukið. Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á útliti bílsins, m.a. til að minnka loftmót- stöðu. Nýrnalaga framgrillið hefur verið stækkað auk þess sem lóð- réttir rimlar þess gegna enn virkara hlutverki við stjórnun loftflæðis. Bíllinn hefur fengið stærri fram- luktir með LED-lýsingu ásamt því að sambyggður stuðari og svunta með innbyggðu þokuljósunum hafa tekið ferskum breytingum sem skerpa á afgerandi línunum. Að aftan er helsta breytingin sú að komin eru ný afturljós og nú eru allra útfærslur bílsins með tvöfalt púst. Í farþegarýmið eru komin ný efni í innréttingu, geymslupláss í miðjustokki hefur verið aukið og komið er nýtt leðurklætt fjöl- aðgerðastýri. 265 hestafla dísilvél Eins og áður er grunngerð X3 búin ríkulegum staðalbúnaði. BMW hefur þó aukið við staðal- búnað nýja bílsins, svo sem með 18” álfelgum, rafdrifnum afturhlera, nálgunarvara, bakkmyndavél, sjálfvirkri stæðalögn og rúmlega 10 tommu litaskjá í mælaborði. BL býður nýjan X3 þar sem velja má um tvær dísilvélar með forþjöppu sem báðar eru búnar 8 gíra Step- tronic-sjálfskiptingu BMW. Annars vegar er um að ræða uppfærslu á tveggja lítra, fjögurra strokka 190 hestafla xDrive-vélinni og hins vegar má velja um nýja þriggja lítra, sex strokka, 265 hestafla dísilvél. BMW X3 xDrive 20d kostar frá 7.590 þús. króna. Nýr og breyttur BMW X3 kynntur Tími jeppa, jepplinga og pall-bíla hefur líklega aldrei verið bjartari í heiminum og nú og bílaframleiðendur keppast við að tefla fleiri bílum fram til að svara eftirspurninni. Mercedes Benz hefur á síðustu árum fjölgað mjög bílgerðum sínum í jeppa- og jepp- lingaflokki, en hefur fram að þessu ekki teflt fram pallbíl. Það hefur nú breyst og mikið hefur verið fjallað um væntanlega komu X-Class pall- bíls Benz, en hann er nú kominn til Íslands. Tilkoma þessa pallbíls markar þau tímamót að hér er kominn fyrsti pallbíllinn í lúxus- flokki frá upphafi, en allir bílar Mercedes Benz falla í lúxusflokk. Bíllinn prófaður á Suðurlandinu Askja bauð greinarritara og öðrum bílablaðamönnum að reyna þennan nýja og spennandi bíl fyrir skömmu á Suðurlandinu og þar var honum boðið upp á torfærur og heilmikinn snjó til að glíma við. Reyndist hann afar dugandi bíll sem einstaklega gaman er að leika sér á við erfiðar aðstæður, en einn- ig var hann ljúflingur á malbikinu. Bíllinn er með hátt og lágt drif sem gagnaðist vel í slarkinu og flestir X-Class bílar sem Askja mun flytja inn verða að auki með splittað drif að aftan. Fyrstu bílarnir sem komnir eru til landsins fengust þó ekki þannig búnir. Þessir bílar er með 190 hestafla og 2,3 lítra og fjögurra strokka dísilvél sem togar 450 Nm. Benz framleiðir einnig bílinn með 163 hestafla útgáfu þessarar vélar og heitir bíllinn þá X 220d og bílarnir sem prófaðir voru bera stafina X 250d. Með þessari stærri vél er X-Class 10,9 sekúndur í hundraðið en tveimur sekúndum seinni með aflminni vélinni. Hámarkhraðinn með aflmeiri vélinni er 184 km/klst. Burðargetan yfir tonn og 3.250 kg dráttargeta Það eru þó ekki þessar tölur sem mesta athygli vekja, bíllinn er fær um að bera meira en tonn á pallinum og draga 3.250 kg aftaní- vagn. Þarna er því því kominn heilmikill vinnuhestur. En talandi um vinnuhest þá er það ekki það fyrsta sem ökumanni dettur í hug þegar hann situr í bílnum og horfir yfir glæsta innréttingu hans, enda eins og áður segir er hér lúxus- bíll á ferð. Hann skynjast líka sem lúxusbíll við aksturinn og gorma- fjöðrunin að aftan eykur mjög við akstursgæðin. Þó svo að þessi X-Class sé framleiddur í samstarfi við Nissan og bíllinn eigi ansi margt sameiginlegt með Nissan Navara þá hefur Mercedes Benz þó gert margar jákvæðar breytingar á bílnum, sem farið var yfir með sérfræðingum í Arctic Trucks. Voru þeir heimsóttir til að kynnast þeim 33 og 35 tommu breytingum sem Arctic Trucks ætlar að annast og er allt til reiðu til að þjónusta nýja kaupendur á X-Class í þeim efnum. Benz X-Class er mættur Mikil eftirvænting hefur verið eftir fyrsta pallbíl heims í lúxusflokki, Mercedes Benz X-Class. Hann er nú mættur til landsins og verður kynntur hjá Öskju um næstu helgi. 9 . j a N ú a r 2 0 1 8 Þ r I Ð j U D a G U r8 B í l a r ∙ F r É T T a B l a Ð I Ð Bílar 0 9 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :2 4 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E B 0 -E 8 6 4 1 E B 0 -E 7 2 8 1 E B 0 -E 5 E C 1 E B 0 -E 4 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 8 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.