Fréttablaðið - 09.01.2018, Qupperneq 6
Viðskipti Íslendingar búa við hæsta
eldsneytisverð í heimi. Verð á bens-
íni er það annað hæsta í heiminum,
hálfri krónu lægra en í Hong Kong á
sama tíma og verð á dísilolíu er það
hæsta, heilum tíu krónum dýrara en
hjá frændum okkar Norðmönnum.
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri FÍB, segir skatta og álagningu
á eldsneyti hér á landi of háa.
Vefsíðan Global petrol prices
kannar verð á eldsneyti flestra landa
heimsins vikulega. Í byrjun árs búa
Íslendingar við næsthæsta bensín-
verð í heimi og hæsta dísilverðið.
Runólfur segir Ísland hafa ætíð verið
ofarlega á þessum lista en aldrei
verið með hæsta eldsneytisverðið í
heiminum. Nú sé hins vegar komið
að því að við trónum á toppi heims-
listans hvað þetta varðar.
„Það er alveg ljóst þegar maður
horfir á innkaupsverð og opinberar
álögur á eldsneyti að þá er það svo
stór hluti af verðinu til neytandans
að samkeppni verður alltaf tak-
mörkuð,“ segir Óli Björn Kárason,
formaður efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis. „Álögur á olíu og
bensín í mínum huga leiða til lakari
verðsamkeppni en gæti verið hér á
landi. Það segir sig sjálft.“
Runólfur segir þá stöðu ekki fýsi-
lega fyrir Ísland. Verð sé of hátt og
segir hann orsakirnar bæði opinber-
ar álögur sem og óhóflega álagningu
olíufélaga á Íslandi.
„Grundvallaratriðið er það sem
oft hefur verið bent á að við höfum
verið með fákeppni á markaði ef frá
er talin koma Costco. Fákeppnin
hefur haldið uppi hárri álagningu,
meiri álagningu en í nágranna-
löndum okkar,“ segir Runólfur hjá
FÍB. „Skattar sem hlutfall af eðlilegu
útsöluverði eru nokkuð háir. Megin-
niðurstaðan er sú að við þurfum að
Eldsneytisverð
hvergi hærra
en hér á landi
Í upphafi árs er verð á
eldsneyti hvergi hærra
en hér á landi. Fram-
kvæmdastjóri FÍB segir
álagningu og opinberar
álögur þurfa að lækka.
Formaður efnahags- og
viðskiptanefndar segir
opinber gjöld stuðla að
lakari samkeppni.
Seldu á virði en ekki á verði
Þú lærir að stjórna tíma þínum og söluábendingum á áhrifaríkan hátt, að ná til
viðskiptavina, og koma á fundum með lykilfólki. Þú munt selja á virði en ekki verði, leysa
málin með viðskiptavinum og skapa þér sérstöðu. Námskeiðið Árangursrík sala
(Winning with Relationship Selling) er á topp 20 lista Traingindustry.com
Hefst 6. mars • Nánar á dale.is
Copyright © 2018 Dale Carnegie & Associates, Inc. All rights reserved. ad_sales_121317_iceland
Ávinningur:
• Tileinka þér jákvætt viðhorf
• Spyrja réttu spurninganna
• Auka trúverðugleika þinn
• Halda sölukynningu af öryggi
• Ná endursölu og nýjum tengiliðum
• Beina samræðum á rétta braut
• Skapa ný sölutækifæri með eftirfylgni
• Ná fram skuldbindingu og loka sölunni
• Koma auga á leiðandi kauphvata viðskiptavinar
• Taka á spurningum og andmælum af öryggi
✿ Bensín, verð á lítra
Land kr/L
1 Hong Kong 209,36
2 Ísland 208,8
3 Noregur 202,69
4 Mónakó 197,93
5 Holland 195,56
6 Grikkland 193,94
7 Ítalía 193,44
8 Ísrael 192,91
9 Wallis- og Fútúnaeyjar 191,44
10 Danmörk 190,03
✿ Dísil, verð á lítra
Land kr/L
1 Ísland 200,8
2 Noregur 190,54
3 Svíþjóð 188,3
4 Mónakó 181,95
5 Ísrael 177,82
6 Ítalía 177,34
7 Frakkland 174,09
8 Bretland 173,85
9 Wallis- og Fútúnaeyjar 172,28
10 Hong Kong 169,05
lækka skatta. Einnig hefur komið
fram hjá samkeppniseftirlitinu að
álagning hér á landi er allt að 20
krónum hærri en í nágrannalönd-
um okkar.“
Óli Björn segir verðið komið í
hæstu hæðir. „Nú er í farvatninu að
endurskoða alla álagningu þegar
kemur að umferð almennt. Sú end-
urskoðun er í gangi og menn hljóta
að skoða með hvaða hætti opinber
gjöld hafa áhrif á samkeppnina á
neytendamarkaði. Ég tek undir með
Runólfi um að verð sé of hátt.“
sveinn@frettabladid.is
Álögur á olíu og
bensín í mínum
huga leiða til lakari verðsam-
keppni en gæti verið hér.
Óli Björn Kárason, formaður efna-
hags- og viðskiptanefndar Alþingis
20
króna hærri álagning er hér
en í nágrannalöndunum.
Í sól og sumaryl
Meðan vetur konungur ræður ríkjum á norðurhluta jarðar er hásumar á suðurhveli. Það hefur ekki farið fram
hjá íbúum Ástralíu í hitabylgju undanfarna daga. Hitinn hefur mest mælst hátt í 50°C sem sumum þykir í það
mesta en aðrir nutu blíðunnar. Í þeim hópi voru þessir gestir Bondi-strandarinnar í Sydney. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Viðskipti Að minnsta kosti fimm
þúsund Svíar hafa keypt hlutabréf
í sex kanadískum fyrirtækjum sem
framleiða kannabis. Gert er ráð fyrir
að framleiðsla kannabis verði lög-
leidd í Kanada í sumar. Nú er ein-
göngu leyft að framleiða kannabis
þar í lækningaskyni.
Mat endurskoðunarfyrirtækis-
ins Deloitte frá 2016 sýnir að um
milljarðamarkað verði að ræða,
framleiðendur, seljendur og flutn-
ingafyrirtæki muni græða. Ólögleg
viðskipti með kannabis hafa verið
umfangsmikil.
Hlutabréf í kanadísku kannabis-
fyrirtækjunum hafa verið til sölu í
Svíþjóð. Hjá einu þeirra hefur verð
hlutabréfa hækkað um 348 prósent
á tæpum þremur mánuðum. – ibs
Þúsundir Svía vilja hagnast á kannabis
Hlutabréf í félögum kannabisfram-
leiðenda rjúka út. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
9 . j a n ú a r 2 0 1 8 Þ r i ð j U D a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
0
9
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
B
0
-F
2
4
4
1
E
B
0
-F
1
0
8
1
E
B
0
-E
F
C
C
1
E
B
0
-E
E
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
8
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K