Fréttablaðið - 09.01.2018, Síða 18
Ford hefur framleitt hinn vinsæla
F-150 pallbíl í kraftaútgáfu undir
nafninu Raptor. Nú hefur frést að
Ford ætli að kynna minni Ranger-
bíl sinn einnig í kraftaútfærslu og
það með Raptor nafninu. Ford mun
sýna bílinn þann 7. febrúar og það
á fremur óvenjulegum stað, í Bang-
kok í Taílandi.
Aðalvélarkosturinn í Ranger
Raptor verður 3,5 lítra V6 EcoBoost
vélin og í bílnum mun hún skila 443
hestöflum til allra hjólanna og 691
Nm togi. Það ætti að duga vel til að
koma þessum talsvert léttari bíl en
F-150 vel úr sporunum. Ekki mun
skorta gírafjöldann í nýrri sjálfskipt-
ingu, en þeir verða 10 talsins og það
ætti að tryggja að bíllinn sé ávallt á
réttum snúningi og að allt afl vélar
hans nýtist sem best.
Ford Raptor er að ganga í gegnum
kynslóðaskipti og Raptor- útfærsla
hans verður af nýrri kynslóð bílsins.
Raptor-útfærslan verður, líkt og
með F-150 Raptor, hærri á vegi en
grunnbíllinn og með öflugri fjöðrun
og á stærri dekkjum. Það mun líka
sjást á útlitinu að þar er Raptor á
ferð með meiri hlífðarplötum og
viðeigandi merkingum.
Heyrst hefur að Ford muni kynna
hefðbundna gerð nýrrar kynslóðar
Ranger strax í þessum mánuði á
Detroit Auto Show sem verður
opnuð eftir fimm daga. Líklegt er
þó að Ranger og Ranger Raptor
komi ekki í sölu fyrr en á seinni
helmingi ársins.
Ford Ranger Raptor verður
smíðaður í Wayne-verksmiðju Ford
í Michigan.
Ford Ranger Raptor á leiðinni
Fram að þessu hefur hinn dýri
lúxusjeppi Bentley Bentayga verið
í boði með W12 bensínvél sem
er 600 hestöfl og 429 hestafla V8
dísilvél. Bentley ætlar hins vegar
brátt að bjóða tvo aðra vélarkosti í
jeppann og ekki kemur á óvart að
annar kosturinn sé í formi tengil-
tvinnaflrásar.
Líkt og Porsche tilheyrir Bentley
Volkswagen Group bílasamstæð-
unni og mun Bentayga líklega fá
sömu tengiltvinnaflrás og finna
má í Porsche Panamera E-Hybrid
sem skilar 462 hestöflum til allra
hjólanna. Einnig verður í boði
sama V8 bensínvélin og finna
má í Porsche Cayenne Turbo, en
hún er 550 hestöfl og til að tryggja
yfirburði W12 útgáfunnar þá mun
hún skila ámóta afli í Bentayga og
í Porsche-jeppanum. Báðar þessar
gerðir Bentayga verða ódýrari en
W12 útgáfan og veitir víst ekki af.
Þessi fjölgun vélarkosta ætti að
tryggja aukna sölu á bílnum fríða
þar sem fleiri kaupendur hafa efni á
að kaupa hann. Báðir nýju vélar-
kostirnir ættu að verða í boði frá og
með næsta sumri.
Bentley Bentayga fær
V8 vél og rafmótora
Tvær nýjar vélargerðir eiga að tryggja
aukna sölu með lægra verði.
Bentley Bentayga er dýrasti jeppi sem fá má.
Ford Ranger Raptor í prófunum.
Alfa Romeo hefur aðeins boðið sinn eina og fyrsta jeppa, Stelvio, í rúmt ár en
áformar nú nýja og stærri gerð
jeppa sem byggður verður á sama
undirvagni og Stelvio.
Þessi jeppi verður stærsti bíll
sem Alfa Romeo hefur nokkurn
tíma framleitt og á að hafa rými
fyrir 7 farþega. Ekki er enn komið
nafn á þennan fyrirhugaða jeppa
en hann verður með Mild-Hybrid
kerfi sem fær meðal annars afl frá
48 volta rafmagnsforþjöppu. Búist
er við því að afl jeppans verði á
bilinu 350 til 400 hestöfl þrátt fyrir
að sprengirými hans sé aðeins 2,0
lítrar. Það er nokkru meira en hinn
280 hestafla Stelvio sem þó telst
enginn letingi.
Alfa Romeo horfir til bílanna
Audi Q7 og Volvo XC90 sem
helstu keppinauta nýja jeppans.
Audi býður Q7 jeppa sinn með
3,0 lítra og 333 hestafla vél og
víst er að Alfa Romeo vill ekki að
jeppi þeirra verði eftirbátur hans.
Úr herbúðum Alfa Romeo hefur
einnig heyrst að til greina komi
að hætta smíði 4C-bílsins vegna
dræmrar sölu.
Líkt og hjá mörgum öðrum
bílaframleiðandanum um þessar
mundir telja þeir hjá Alfa Romeo
að stór jeppi sé vænlegri söluvara,
en vonandi mun Alfa Romeo halda
áfram að smíða fallega og öfluga
fólksbíla með mikla akstursgetu.
Sjö sæta Alfa
Romeo jeppi
Verður stærsti bíll sem Alfa Romeo hefur framleitt
og verður vélaraflið á milli 350 og 400 hestöfl.
Nýi jeppi Alfa verður lengri gerð þessa Stelvio bíls.
Seldi tæplega
2,3 milljónir bíla
í fyrra og eykur
fyrir vikið bilið á
BMW og Audi.
Nýliðið ár var ekki bara besta söluár Mercedes Benz frá upphafi heldur sjöunda árið
í röð sem Benz slær eigið sölumet.
Mercedes Benz seldi alls 2.289.344
bíla á síðasta ári og var með því
söluhæsta lúxusbílamerki heims,
líkt og í fyrra. Salan jókst um 9,9% á
milli ára.
Þennan frábæra árangur er ekki
síst að þakka stóraukinni sölu Benz
í Kína, en söluaukningin þar í fyrra
nam 25%, en hún var 6,4% í Evrópu.
Evrópa er samt enn þá stærsta
sölusvæði Benz og seldi fyrirtækið
955.000 bíla þar í fyrra og af þeim
seldust 300.000 í Þýskalandi.
Stöðug og viðvarandi söluaukn-
ing er hjá Benz sem lýsir sér ekki
síst í því að síðasti mánuður, þ.e.
desember, var söluhæsti mánuður
fyrirtækisins frá upphafi og fjórði
ársfjórðungur síðasta árs var einnig
söluhæsti ársfjórðungur Benz frá
upphafi.
Gríðarlega góð sala var í jeppum
Benz á árinu, en engu að síður er
fólksbíllinn C-Class enn söluhæsta
bílgerð Mercedes Benz með yfir
415.000 bíla selda. Nokkuð ljóst
má telja að Mercedes Benz er með
þessari miklu aukningu í fyrra að
fjarlægjast meira Audi, BMW og
Lexus í heildarsölu og með því að
tryggja sig enn betur sem stærsti
lúxusbílaframleiðandi heims. Má
búast við því að Benz haldi þeim
titli á komandi árum.
Besta ár Benz frá upphafi
Líkt og hjá mörgum
öðrum bílafram-
leiðandanum um þessar
mundir telja þeir hjá Alfa
Romeo að stór jeppi sé
vænlegri söluvara.
9 . j A N ú A R 2 0 1 8 Þ R I Ð j U D A G U R4 B í l A R ∙ F R É T T A B l A Ð I Ð
Bílar
0
9
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
B
0
-F
7
3
4
1
E
B
0
-F
5
F
8
1
E
B
0
-F
4
B
C
1
E
B
0
-F
3
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
8
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K