Fréttablaðið - 09.01.2018, Blaðsíða 26
Bílar Volkswagen
eru framleiddir í 50
verksmiðjum í 14 lönd-
um heim allan
Þó svo að sumir fólksbílar Ford
af stærri gerðinni seljist illa og
miklar líkur séu á að Ford muni
hætta framleiðslu Mondeo, að
minnsta kosti fyrir Bandaríkja-
markað, þá hefur fyrirtækið vart
undan að framleiða hinn talsvert
minni Fiesta. Hann er framleiddur
í verksmiðju Ford í Köln í Þýska-
landi og þar þarf að slá undir nára
til að anna eftirspurn. Ford Fiesta
er til að mynda mest selda bíl-
gerðin í Bretlandi og í nóvember
seldust 6.434 eintök af bílnum og
ef svo ágæt sala heldur áfram þar í
landi er árssala bílsins þar ríflega
77.000 eintök. Fiesta selst líka
vel í Þýskalandi og í nóvember
tryggðu 4.660 nýir eigendur sér
þar eintak af bílnum. Þessi góða
eftirspurn hefur orðið til þess að í
verksmiðjunni í Köln hefur þurft
að auka framleiðsluna um 100
bíla á dag og þurft hefur að setja á
aukavaktir til að sinna allri þessari
framleiðslu. Ekki slæmt vandamál
þar á ferð.
Ford eykur
framleiðslu
á Fiesta
Elon Musk, forstjóri og stærsti
eigandi rafbílaframleiðandans
Tesla, segir að næsti framleiðslu-
bíll á eftir Model Y jepplingnum
verði pallbíllinn Model U. Hann á
sannarlega ekki að verða nein písl
því fullyrt er að hann verði stærri
en söluhæsti bíll Bandaríkjanna
síðustu áratugi, Ford F-150. Model
Y á að koma árið 2019 og því má
allt eins búast við að Model U
pallbíllinn líti ekki dagsins ljós
fyrr en árið 2021. Bandaríkjamenn
eru einkar hungraðir í pallbíla
um þessar mundir og bara Ford
F-150 pallbíllinn seldist í 820.799
eintökum í fyrra. Það er því ekki
skrítið að Elon Musk hafi hug á
að krækja í sneið af þeirri stóru
köku. Miðað við hversu illa gengur
að framleiða allra nýjustu bílgerð
Tesla, Model 3, gæti biðin eftir pall-
bíl fyrirtækisins orðið löng.
Pallbíll Tesla
stærri en
Ford F-150
Volkswagen Group bílasam-stæðan framleiðir yfir 10 milljónir bíla á ári og þar af
er Volkswagen merkið eitt með
yfir 6 milljónir af þeim en það tak-
mark náðist rétt fyrir áramótin.
Til að átta sig á hve Volkswagen
er stórt fyrirtæki þá eru bílar
þess framleiddir í 50 verk-
smiðjum í 14 löndum um heim
allan og hjá fyrir tækinu störfuðu
626.715 manns við lok síðasta
árs. Volkswagen hefur frá upphafi
framleitt 150 milljónir bíla og eiga
Bjallan og Golf þar stóran skerf í,
en á seinni árum hefur Polo aukið
hlutdeild sína í sölu Volkswagen-
bíla.
Á næsta ári má búast við að sjá
nýjar gerðir Volkswagen-bíla eiga
vænan skerf í heildarsölunni, bíla
eins og T-Roc, Arteon og Atlas.
Áherslur í framleiðslu Volkswagen
bíla breyttust mjög við uppgötvun
dísilvélasvindls Volkswagen fyrir
ríflega tveimur árum og hafa þær
breyst í átt til rafmagns- og tengil-
tvinnbíla og ætlar Volks wagen
að selja eina milljón bíla á ári án
hefðbundinnar brunavélar um
miðjan næsta áratug.
Volkswagen yfir 6 milljóna bíla markið
Ford Fiesta grimmselst.
Svona gæti pallbíll Tesla litið út.
VAKA HF | Skútuvogi 8 | 104 Reykjavík | Sími: 567 6700 | vakahf.is
VIÐGERÐAÞJÓNUSTA
VARAHLUTAÞJÓNUSTA
DEKKJAÞJÓNUSTA
BIFREIÐAFLUTNINGAR
VIÐ ERUM KLÁR FYRIR ÞIG!
9 . j a n ú a r 2 0 1 8 Þ r I Ð j U D a G U r12 B í l a r ∙ F r É T T a B l a Ð I Ð
Bílar
0
9
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
B
0
-F
7
3
4
1
E
B
0
-F
5
F
8
1
E
B
0
-F
4
B
C
1
E
B
0
-F
3
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
8
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K