Fréttablaðið - 09.01.2018, Síða 28
Árið 2017 var viðburðaríkt hjá Arnari Péturssyni, sigursælasta langhlaupara Íslend
inga. Hann sigraði m.a. í Reykja
víkurmaraþoni Íslandsbanka á
besta tíma Íslendings á íslenskri
grundu, varð nífaldur Íslands
meistari og var heiðraður sem
mikilvægasti frjálsíþróttamaður
inn á uppskeruhátíð Frjálsíþrótta
sambandsins sem er nafnbót sem
honum þykir mjög vænt um að
eigin sögn. Hann ætlar sér stóra
hluti í ár á hlaupasviðinu en lífið
er þó ekki bara hlaup hjá þessum
26 ára gamla Kópavogsbúa. Hann
vinnur um þessar mundir að því að
taka þrjár mastersgráður á þremur
árum við Háskóla Íslands. Nú
þegar hefur hann lokið masters
gráðu í endurskoðun og reiknings
skilum og stefnir á að klára á þessu
ári master í fjármálum fyrirtækja
og kennsluréttindum.
Hann segist mjög spenntur
fyrir nýbyrjuðu ári enda nokkur
skemmtileg verkefni komin á dag
skrá. „Í mars er planið að hlaupa
10 km hlaup í Þýskalandi og í lok
sama mánaðar keppi ég á í hálfu
maraþoni á Heimsmeistaramótinu
í Valencia. Í kjölfarið fer ég svo
í æfingabúðir, annaðhvort til
Eþíópíu eða Portúgals. Þetta er allt
liður í undirbúningi fyrir mara
þonhlaup í Hamborg í lok apríl
þar sem mig langar að hlaupa gott
maraþon. Tímamarkmið koma
svo þegar nær dregur hlaupunum
en ég ætla fyrst og fremst að bæta
núverandi tíma mína eins og get.“
Gott ár að baki
Þótt árangur síðasta árs hafi verið
góður segir hann að velgengnin
hafi komið skemmtilega á óvart.
„Um hver áramót förum við fjöl
skyldan yfir árið og hvað næsta ár
muni bera í skauti sér. Seinustu
áramót voru mjög eftirminnileg
hvað þetta varðar því ég sagði að
2017 myndi ólíklega toppa síðasta
ár og var þetta í fyrsta skipti á
ævinni sem ég hafði áhyggjur af
því. Þarna var ég nýkominn heim
úr skiptináminu í Köln þar sem
ég hjálpaði skólanum að vinna í
fyrsta skipti í 12 ár mótaröð milli
háskólanna í sambandslandinu
NordrheinWestfalen með því að
vinna tvö af fjórum hlaupum.“
Hann segist vissulega hafa sett
sér markmið í byrjun árs 2017
til að halda sér við efnið. „Ég var
mjög heppinn með hvað margt
gekk upp. Utan fyrrnefndra sigra
var einnig mjög gaman að bæta sig
tvisvar í 5 km götuhlaupi á árinu.
Helstu vonbrigðin eru líklega að
lenda í öðru sæti á Íslandsmótinu
í 1.500 m innanhús því þá hefði ég
getað bætt tíunda Íslandsmeistara
titlinum í safnið, en það kemur
bara vonandi næst.“
Markmiðin mikilvæg
Vafalaust ætla margir landsmenn
að hefja hlaup í fyrsta skipti á
vormánuðum. Hvaða ráð getur
hann gefið þeim sem eru að stíga
sín fyrstu skref? „Mikilvægast er að
setja sér markmið. Án markmiða
gerist ósköp lítið. Ef lesendur hafa
virkilega áhuga geta þeir haft sam
band við mig í gegnum Instagram
síðuna mína (@arnarpetur) og ég
get eflaust hjálpað þeim að komast
af stað. Hlaup eru fyrir alla og eru
einfaldasta hreyfingin. Stundum
þarf bara smá aðhald og að fá fólk
af stað. Áður en flestir vita af eru
þeir kolfallnir hlaupafíklar.“
Hann segir langhlaupin vera ótrú
lega heillandi íþrótt. „Á sama tíma
og þetta er hreyfingin mín þá nota
ég hlaupin líka til að hugleiða,
skipuleggja mig og skoða heiminn.
Það er fátt skemmtilegra en að
ferðast um heiminn og skoða nýja
staði hlaupandi. Þetta eru mjög
stór viðbrigði frá því úr körfu
„Hlaup eru fyrir alla og eru einfaldasta hreyfingin. Stundum þarf bara smá að-
hald og að fá fólk af stað,“ segir Arnar Pétursson langhlaupari.
Skoðar heiminn á hlaupum
boltanum þegar ég sá stundum
bara eitt íþróttahús meirihluta
ferðarinnar.“
Byrjaði seint að hlaupa
Arnar byrjaði frekar seint að
stunda langhlaup en einbeitti sér
að fótbolta og körfubolta þegar
hann var yngri. „Ég æfði með
Breiðabliki upp alla yngri flokk
ana í bæði körfubolta og fótbolta
og hætti ekki í körfunni fyrr en
árið 2012. Ég er ótrúlega þakk
látur fyrir það sem liðsíþróttirnar
hafa gefið mér. Liðsíþróttir kenna
manni svo margt sem einstaklings
íþróttamenn fara klárlega á mis
við. Svo jafnast ekkert á við að
fagna saman sem lið. Þegar maður
vinnur í einstaklingsíþrótt er erfitt
fyrir aðra að setja sig fullkomlega
í sömu spor og þú. Eftirminni
legustu augnablikin voru klárlega
að fá að upplifa að verða Íslands
meistari í 4. flokki í fótbolta árið
2004 og skora tvö mörk í úrslita
leiknum. Úr körfunni þykir mér
mjög vænt um þegar ég var valinn
mikilvægasti leikmaðurinn í
Íslandsmeistaraliði minniboltaliðs
Breiðabliks í körfubolta árið 2002
og svo að verða tvisvar sinnum
Norðurlandameistari með U16 og
U18 landsliðinu.“
Hvernig er dæmigerð helgi? Hvað
æfingar snertir er oftast rólegur
dagur á föstudögum þar sem ég tek
kannski léttar lyftingar og 1015
km rólega. Á laugardögum er erfið
æfing sem er allt upp í 25 km löng
og á sunnudögum er langur túr,
um 2534 km og svo 90 mínútna
jóga. Annars reynir maður að spara
bæinn og slíkt þangað til eftir
keppnistímabilið.
Hvað færðu þér í morgunmat?
Ég byrja alla daga á um einum lítra
af vatni. Svo fæ ég mér eiginlega
alltaf það sama, tvær brauðsneiðar
með smjöri og sultu og annaðhvort
banana, avókadó eða örsjaldan ost.
Svo nota ég Sportþrennu og Lýsi
sem ég skola niður með vatni.
Hvað finnst þér gott að fá þér í
kvöldmat þegar þú ætlar að gera
vel við þig? Það er bara flatbakan
eins og vagnverjinn og fyrrverandi
körfuboltaþjálfarinn minn Gyl
force orðaði það svo eftirminni
lega: pitsuveislur eru alveg jafn
mikil snilld og þegar ég var tíu ára.
Hvernig kemur þú þér í gírinn
fyrir keppnishlaup? Ég nota sömu
upphitun og ég geri fyrir erfiðar
æfingar. Andlegi parturinn er samt
mikilvægari. Mér finnst gott að
sjá fyrir mér hlaupið, hvernig það
muni þróast og hvernig ég muni
bregðast við ef það kemur mótlæti
í hlaupinu. Svo bara stútfylli ég
mig af jákvæðum hugsunum, geri
nokkrar jógaöndunaræfingar og þá
er maður klár í sársaukann sem er
fram undan.
Ertu morgunhani eða sefur þú
út? Mér finnst best að stilla enga
vekjaraklukku og vakna bara þegar
ég vakna. Þetta getur maður gert í
æfingabúðum. Þá er bara vaknað,
borðað og svo út að hlaupa. Einfalt
líf.
Ertu nammigrís? Ég borða bara
nammi þegar mig langar í það, eins
og t.d. þegar ég fer í bíó. Hlaupin
virka ágætlega sem vörn gegn
óhóflegum nammiskömmtum.
Arnar Pétursson hlaupari átti gott
hlaupaár 2017 þar sem hann varð m.a.
nífaldur Íslandsmeistari. Hann stefnir á
enn betra hlaupaár í ár auk þess að klára
þrjár mastersgráður fyrir lok árs.
Ég er ótrúlega
þakklátur fyrir allt
það sem liðsíþróttirnar
hafa gefið mér.
Arnar Pétursson varð nífaldur
Íslandsmeistari á síðasta ári.Námið er sniðið að fagfólki í heilbrigðis- og félagsgreinum, íþróttakennurum,
einkaþjálfum, markþjálfum, fíknirráðgjöfum og öðrum þeim sem vilja auka
þekkingu sína á ráðgjöf og meðferðum við þessum vanda.
Opinn kynningarfundur verður haldinn fimmtudag-
inn 11. janúar kl. 17-18 í Síðumúla 33, önnur hæð.
Eftirfarandi eru m.a. nokkrir af þeim fjölmörgu þáttum sem teknir verða fyrir
í náminu. Grunnþekking á át- og matarfíkn, meðferðarinntökur, skimanir,
greiningar og uppsetning á meðferðarprógrömmum. Kynning á helstu ráðg-
jafatækni, áfallavinnu, forvörnum, gerð fræðsluefnis, endurkomum, 12 spora
bataferlinu, meðvirkni og fjölskyldunni, siðfræði og líffræði.
Nánari upplýsingar hjá stjórnanda náms, Esther Helgu í síma 699-2676 eða
esther@mfm.is og á www.infact.is
Kennarar við skólann eru þverfaglegur hópur sérfræðinga í meðferðum við
matarfíkn og átröskunum.
Dr. Marty Learner sálfræðingur frá Bandaríkjunum.
Theresa Wright MS, RD, LDN, næringarsérfræðingur frá Bandaríkjunum.
Vera Tarman MD, M.Sc., FCFP, CASAM, ABAM frá Kanada.
Bitten Jonsson hjúkrunarfræðingur og fíknisérfræðingur frá Svíþjóð.
Philip Werdell MA, frá Bandaríkjunum. Mary Foushi CENAPS frá Bandaríkju-
num. Esther Helga Guðmundsdóttir M.Sc. frá Íslandi.
www.infact.is
INFACT International School for Food Addiction Counseling and Treatment.
Síðumúli 33, 108, Reykjavík, Ísland.• esther@mfm.is 699-2676
INFACT Fjölþjóðlegur skóli sem býður uppá
nám í ráðgjöf og meðferðum við matarfíkn.
ÚTSALAN
er hafin
30-50%
afsláttur
Gerið góð kaup á flottum
fatnaði á frábæru verði.
Laugavegi 178 | Sími 555 1516
Opið: Virkir dagar 11-18 | Laugardagar 11-15
Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga kl
. 11–18
Opið laugardaga k
l. 11-15
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . jA N úA R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R
0
9
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
B
0
-E
3
7
4
1
E
B
0
-E
2
3
8
1
E
B
0
-E
0
F
C
1
E
B
0
-D
F
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
8
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K