Víkurfréttir - 28.08.2003, Síða 4
NÚ ER UM AÐ GERA fyrir Suðurnesja-
menn að fara að senda Kallinum ábendingar
um mál sem hann getur tekið fyrir hér í pistl-
um sínum. Kallinn er
kominn að austan og far-
inn aftur að starfa hér á
Suðurnesjum - og pistl-
arnir munu áfram birtast.
AF HVERJU Í ósköp-
unum er víkingaskipinu
Íslendingi ekki hampað
meira hér á Suðurnesj-
um? Þegar Kallinn fór austur í vor var Íslend-
ingur ný kominn úr bátaskýlinu og lá við fest-
ar í Keflavíkurhöfn. Enn liggur hann þar og
hreyfist ekki. Af hverju er ekki boðið upp á
siglingar einu sinni eða tvisvar í viku? Auð-
vitað á að gera það og Kallinn vonar að svo
verði!
ÞAÐ ER HREINT út sagt ótrúlegt að lesa
um það á vf.is að einhverjir ribbaldar hafi
verið að skemma hluti á lóð Þroskahjálpar á
Suðurnesjum. Það eru algerir aumingjar sem
leggjast svona lágt og ef lesendur Víkurfrétta
hafa einhverjar upplýsingar um það hverjir
þarna voru að verki - látið Kallinn þá vita.
Það á að sjálfsögðu að taka svona aumingja í
gegn og láta þá svara fyrir gerðir sínar.
LJÓSANÓTTIN nálgast! Dagskráin er
meiriháttar og Kallinn er þegar farinn að
skipuleggja sig varðandi þátttöku í öllum
þessum menningarlegu atriðum. Tökum öll
þátt!
HAFNARGATAN er hreint út sagt frábær.
Það er yndislegt að ganga um þann hluta
hennar sem búið er að laga. Kallinn hrósar
bæjarstjórninni í hástert fyrir góða ákvörðun.
OG EKKI ER síður gaman að sjá uppfyll-
inguna fyrir neðan Hafnargötuna. Bæjarstjórn
- enn og aftur til hamingju!
BLÁI HERINN er að gera frábæra hluti. Það
er með ólíkindum hvað Tommi Knúts er dug-
legur við að finna hreinsunarverkefni. Kallinn
ræddi við íbúa á Suðurnesjum í dag sem fitj-
aði upp á verkefnum Bláa Hersins að fyrra
bragði og hann vildi að sveitarfélög á Suður-
nesjum myndu styðja almennilega við bakið á
þessari vösku sveit. Kallinn tekur heilshugar
undir það og hvetur sveitarstjórnir til að taka
höndum saman og styðja Bláa Herinn í orði -
og á borði!
MUNIÐ AÐ senda Kallinum tips!
Kveðja, kallinn@vf.is
Upptök jarðskjálftanssem reið yfir Suð-Vest-urland um klukkan tvö
í nótt eru við Krísuvíkurskóla,
en jarðskjálftinn mældist 5 á
Richter.
Júlíus Fossberg staðarhaldari í
skólanum segir að honum hafi
brugðið mjög þegar skjálftinn
reið yfir. „Ég sofnaði um mið-
nætti, en vaknaði við skjálftann
og þá hélt ég að húsið væri hrein-
lega að springa, lætin voru því-
lík,“ segir Júlíus en hann býr í
húsi sem er um 300 metra frá
skólanum. Júlíus segir að skjálft-
inn hafi verið óratíma að ganga
yfir. „Mér fannst eins og jörðin
skylfi á meðan ég hentist í fötin
og dreif mig niður í skóla. Ég er
eini maðurinn sem er á bíl hér og
það kom upp í hugann að fara
með alla vistmennina af svæð-
inu, en það eru 17 manns í vist
hér núna.“ Þegar Júlíus kom að
skólanum voru flestir vistmenn
komnir út á tröppur. „Það var
skelfingarsvipur á fólkinu þegar
ég kom niður eftir, enda voru all-
ir dauðskelkaðir. Á meðan við
stóðum þarna úti fundum við eft-
irskjálftana vel, enda voru það
ágætis kippir,“ segir Júlíus en
enn þá eru eftirskjálftar og klukk-
an rúmlega 10 lau-
gardagsmorgun reið einn yfir
sem var upp á 3 á Ricther. Að
sögn Júlíusar eru skemmdir á
húsnæði óverulegar, en eitthvað
var um að hlutir færu úr hillum.
Júlíus segir að vistmenn séu
orðnir rólegir, en fylgst verði vel
með þróun mála. „Þetta var
óskemmtileg upplifun, en við
tökum þessu með æðruleysi,“
sagði Júlíus í samtali við Víkur-
fréttir.
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Ferskasta blaðið á Suðurnesjum í sumar!
stuttar
F R É T T I R
MUNDI
Ljósanótt verður
örugglega 5,1 á Richter!
Kallinn á kassanum
Þegar jarðskjálftinn sem átti
upptök sín við Krísuvík reið
yf ir um klukkan 2 á lau-
gardagsnótt var Kristín Sigur-
jónsdóttir eigandi verslunarinn-
ar Aðalbrautar í Grindavík ný-
komin upp í rúm en var ekki
sofnuð. „Rétt áður en ég sofn-
aði kom svakalegur hávaði og
rúmið gjörsamlega nötraði á
meðan skjálftinn reið yfir. Við
erum með ljósakrónu í loftinu
og hún sveiflaðist til,“ segir
Kristín, en hún segist ekki hafa
orðið hrædd. „Ég er ekki hrædd
við jarðskjálfta, en sonur minn
kom mikið skelkaður inn í her-
bergi til okkar.“ Aðeins eru um
23 kílómetrar frá Krísuvíkur-
skóla til Grindavíkur ef ekið er
um Krísuvíkurveg og er ljóst að
skjálftinn hafi fundist vel í
Grindavík eins og Kristín lýsir.
Hún segir að einn viðskiptavina
hennar í morgun hafi sagt sér
að sonur hennar hefði dottið út
úr rúminu í nótt þegar skjálftinn
reið yf ir. „Þó að við hér í
Grindavík séum á svona virku
svæði, þá finnst mér íbúarnir
hér taka þessu með ró. Það eru
margir sem búast við stóra
skjálftanum, en það er engin
hræðsla við hann hér, allavega
ekki sem ég veit um,“ sagði
Kristín í samtali við Víkurfrétt-
ir.
„Hélt að húsið
væri að springa“
- segir Júlíus Fossberg staðarhaldari
í Krísuvíkurskóla
Skjálftinn fannst vel í Grindavík
VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjáns-
son: Þórður Sigurðsson og Kristín
Sigurjónsdóttir í verslun sinni
Aðalbraut í Grindavík.
-lj s J s r. ristj s-
s : r r i r ss ristí
i rj s ttir í rsl si i
l r t í ri í .
Bátur í Grinda-
vík upp í fjöru
Rétt fyrir klukkan tíu á
sunnudagsmorgun varð bátur
vélarvana í höfninni í
Grindavík þar sem verið var
að færa bátinn Guðbjörgu
GK-517 frá Eyjabakka að
Miðgarði. Á leiðinni að Mið-
garði drapst á vél bátsins
með þeim afleiðingum að
Guðbjörgin rakst með fram-
endann á Þröst GK sem lá
við festar. Guðbjörgina rak
síðan upp í fjöru norður af
Miðgarði, en hafnsögubátur
náði að draga bátinn úr fjör-
unni.
Töluverður erill var hjá Lög-
reglunni í Keflavík aðfara-
nótt sunnudags en meðal
annars var tilkynnt um
hópslagsmál fyrir utan
skemmtistaðinn Casino í
Keflavík. Tveir menn hófu
slagsmálin og þurfti að færa
annan þeirra til skoðunar á
Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja þar sem hann hafði
hlotið skurð á augabrún.
Hópslagsmál
fyrir utan Casino
Fjölgun
nýnema í FS
Í kringum 850 nýir nemendur
hófu nám í dagskóla í Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja þegar haustönn
hófst í síðustu viku og er það um
120 fleiri nemendur en hófu nám
síðasta haust. Í Öldungadeild
fjölgar einnig en alls skráðu 230
nemendur sig í Öldungadeildina
á móti 180 nemendum í fyrra.
Ljósanótt
2003
- sérblað Víkurfrétta
Síminn er 421 0000
VF KEF 35. tbl. 24 V 27.8.2003 12:26 Page 4