Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.08.2003, Qupperneq 11

Víkurfréttir - 28.08.2003, Qupperneq 11
VÍKURFRÉTTIR I 35. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 28. ÁGÚST 2003 I 11 Getraunir opna aftur eftir sumar- lokun í K-húsi við Hringbraut. Opið frá 20:00-22:00 á fös- tudögum og laugardögum 11:00- 13:00. Hvetjum alla til að mæta. Unglingaráð Knattspyrnudeildar Keflavík Á sunnudag var haldin torfærukeppni í Stapafelli og var baráttan hörð á milli keppenda. Tveir Suðurnesjamenn tóku þátt í keppninni, þeir Gunn- ar Gunnarsson og Gunnar Ásgeirsson. Tilþrif þeirra voru glæsileg, en Gunnar Ásgeirsson lenti í einhverjum vandræðum með bílinn sinn. Staða þeirra í heimsbikar- og Íslandsmótinu er ágæt, en Gunnar Gunn- arsson er efstur í götubílaflokknum og í heildina er hann í 4. sæti. Gunn- ar Ásgeirsson er í 7. sæti yfir heildina og í 5. sæti í sérútbúna flokknum. Björgunarsveitin Þor-björn í Grindavík varkölluð til sex sinnum frá laugardegi til mánudags. Á laugardag var björgunarskipið Oddur V. Gíslason fengið til að- stoðar hafnsögubátnum Villa við að snúa til flutningaskipinu Vytautas, sem var á útleið. Vegna hvassviðris réðst illa við skipið og var ákveðið að fresta brottför. Laust eftir miðnætti að- faranótt sunnudags var sveitin kölluð til aðstoðar eigendum ein- býlishúss sem höfðu ætlað að skipta um þakjárn en náðu því ekki áður en fór að rigna. Björg- unarsveitarmenn aðstoðuðu fólk- ið við að breiða segl og plastdúka yfir þakið. Einhverjar skemmdir urðu að völdum vatns. Að morgni sunnudags var sveitin aft- ur kölluð út þegar mb. Guðbjörg GK strandaði innan hafnar. Út- kallið var afturkallað þegar verið var að undirbúa brottför á Oddi V. Gíslasyni, en hafnsögubátur- inn Villi náði Guðbjörgu GK af strandstað. Um kl. 15 á sunnudag var Oddur V. Gíslason kallaður til aðstoðar við að snúa flutninga- skipinu Vytautas og tókst nú að koma skipinu til hafs. Rétt fyrir miðnætti á sunndag barst aðstoð- arbeiðni til sveitarinnar frá eig- anda bifreiðar sem festist við Sandvík á Reykjanesi. Patrol jeppi sveitarinnar var sendur á staðinn og losaði bílinn. Á mánu- dagsmorgun barst beiðni til sveit- arinnar vegna umferðarslyss við Borganes þegar flutningabíll fór út af Borgarfjarðarbrúnni og hafnaði í sjónum með þeim af- leiðingum að ökumaðurinn lést. Sveitin sendi kafara á vettvang. Björgunarmenn komu til baka um kvöldmatarleytið. Einu sinni var lítið sveitarfélag sem skuldaði lítið. HEPPIÐ! Svo fékk það lán til að geta fram- kvæmt það, sem það vildi. HEPPIÐ! Svo fékk það enn meiri lán, til að geta framkvæmt enn meira. HEPPIÐ! Svo veðsetti það eignir sínar til að geta greitt laun. HEPPIÐ! Með einum gjaldaga eftir 5 ár. HEPPIÐ! Sem næsta hreppsnefnd þarf að hafa áhyggjur af, ekki þeir. HEPPNIR! Svo ætla þeir að selja eignir sínar til að skulda ekki alveg eins mik- ið, HEPPNIR! Þá þarf sveitarfélagið ekki lengur að hafa áhyggjur af hlutabréfum sínum í Hitaveitunni. HEPPIÐ! Ef hlutabréf in margfaldast í verði, eins og margir gera ráð fyrir, er það ekki þeirra mál. HEPPNIR! Þá þarf ekki að taka við arð- greiðslum þaðan. HEPPNIR! Svo ætla þeir að ...............? HEPPNIR! Eða er ég sá eini sem finnst þetta vera eins og að pissa í skóna sína? Höfundur er áhyggjufullur íbúi í Vatnsleysustrandarhreppi. Kjartan Hilmisson Hörð barátta í Stapafelli Getraunir 1X2 í K-húsi AÐSENT Einu sinni var . . . Nóg að gera hjá björgunar- sveitarmönnum í Grindavík VF-ljósmynd: Agnar VF KEF 35. tbl. 24 V 27.8.2003 13:22 Page 11

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.