Víkurfréttir - 28.08.2003, Qupperneq 12
Fyrsta landgræðsluflugPáls Sveinssonar var áSuðurnesin þar sem
áburði var dreift á Stapann,
Miðnesheiði og í nágrenni fyr-
irhugaðs Suðurstrandarvegar í
sumar. Sveinn Runólfsson
landgræðslustjóri segir að Suð-
urnesin séu illa leikin gróður-
farslega og að það sé brýnt
verkefni að halda landgræðslu
þar áfram. „Við erum að dreifa
áburði á Suðurnesjum í sam-
starfi við Samband Sveitarfé-
laga á Suðurnesjum og þetta
samstarf hefur staðið í áratugi.
Samstarfið hófst í kringum
1970 og á árunum 1970 til 1980
vorum við í girðingarfram-
kvæmdum að Vogum frá
Grindavík og friða þar allt
svæðið fyrir vestan gegn lausa-
göngu. Frá árinu 1978 hafa
Landgræðslan og SSS verið í
góðu samstarfi um ýmis land-
bótarverkefni og landgræðslu-
flugið er einn liður í því sam-
starfi,” segir Sveinn.
Mikil áhersla hefur verið lögð á
landgræðslu í nágrenni við
Stapann og á Miðnesheiði.
Sveinn segir að Miðnesheiðin
sé sérstaklega slæm gróðurfars-
lega. “Þetta samstarf hefur
gengið mjög vel og við höfum
lagt áherslu á svæðið við
Stapann og það hefur skilað
miklum árangri. Við höfum
einnig verið að dreifa víðar á
Suðurnesjum, en núna er
áherslusvæðið á Miðnesheið-
inni en heiðin er nokkuð illa
leikin. Landið er magurt vegna
vannæringar og við viljum
koma af stað gróðurframvindu
með því að bera frekar lítinn
áburðarskammt á landið sem
með tíð og tíma leiði af sér að
þarna fari að vaxa víðir. Þetta
land var allt kjarri vaxið áður
og við viljum stuðla að því á
næstu árum að endurheimta
þennan gróður. Það væri ósk-
andi að fólk ætti þess kost að
sjá Miðnesheiðina úr lofti því
það er ansi mikið sjokk því hún
er svo illa farin.”
Nokkuð hefur borið á því að
einstaklingar, hópar, skóla-
bekkir og félagasamtök fari og
beri áburð á svæði sem þess
þurfa. Sveinn segir að vel sé
tekið á móti slíkum hópum og
hefur Landgræðslan veitt ráð
og jafnvel gef ið áburð eða
grasfræ. „Það var ansi
skemmtilegt verkefni í gangi
fyrir nokkrum árum sem hét
Vordagar Vigdísar, en í tengsl-
um við verkefnið fengu skól-
arnir á Suðurnesjum áburð frá
okkur og nemendurnir dreifðu
honum,” segir Sveinn og bætir
því við að landgræðsla á Suð-
urnesjum hafi borið góðan ár-
angur. „Suðurnesin sem heild
eru illa leikin gróðurfarslega.
En allt er það í framför núna og
Landgræðslan vill koma á
framfæri miklu þakklæti til
Sambands Sveitarfélaga á Suð-
urnesjum fyrir mjög gott sam-
starf á sviði landgræðslumála.
Ég vil hvetja einstaklinga og
félagasamtök til að græða land-
ið á Suðurnesjum og ég bendi á
að landgræðsla er langtíma-
verkefni.”
Keppst um að fljúga Páli Sveinssyni
Það er keppst um að fá að
fljúga Páli Sveinssyni og sitja
flugmenn um það, en þeir fljú-
ga allir í sjálfboðastarfi. Flug-
menn í ferðinni á Stapa voru
þeir Sverrir Þórólfsson flug-
stjóri hjá Flugleiðum og Haf-
steinn Heiðarsson flugstjóri hjá
Landhelgisgæslu Íslands.
Blaðamaður Víkurfrétta fór í
landgræðsluflug á Stapann og
tók nokkrar ljósmyndir af stór-
brotnu landslagi Reykjaness-
ins.
Sverrir byrjaði að fljúga fyrir
38 árum síðan með Flugfélagi
Íslands, en þá átti félagið 3 vél-
ar eins og Pál Sveinsson. Sverr-
ir segir að það sé mikil ánægja
að fljúga fyrir landgræðsluna
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Landið grætt á Suðurnesjum
Sverrri Runólfsson, flugstjóri hjá Flugleiðum og Hafsteinn Heiðarsson flugstjóri hjá Landhelgisgæslu Íslands
um borð í Páli Sveinssyni, en það er hörð barátta á milli flugmanna um að fá að fljúga vélinni.
VF-myndir: Jóhannes Kr. Kristjánsson
Atli Karl Sigur-
bjartsson, 6 ára
Hlakkar þig
til að byrja í
skólanum?
Já dáldið.
Hvað hlakkar
þig mest til að læra?
Íþróttir.
Hvaða íþróttir?
Fótbolta.
Með hvaða íslenska liði held-
ur þú?
Njarðvík.
En í ensku?
Arsenal auðvitað.
Guðmundur
Kristjánsson, 5
ára
Hlakkar þig
til að byrja í
skólanum?
Já soldið.
Hvað hlakkar
þig mest til að læra?
Eitthvað bara. Dáldið spenntur
fyrir að læra að lesa.
Með hvaða fótboltaliði á Ís-
landi heldur þú?
Sama og pabbi.
Ellen Hilda Sig-
urðardóttir, 6
ára
Hlakkar þig
til að byrja í
skólanum?
Jáhá.
Hvað hlakkar þig mest til að
læra?
Mig langar mest til að læra að
teikna flott.
Eru margir vinir þínir að
byrja í skólanum?
Já, frænka mín sem heitir
Anna og vinur minn sem heitir
Teitur og fullt af öðrum.
Hvaða íþróttir langar þig
mest að læra?
Fimleika.
Karlotta Scholl,
alveg að verða 7
ára
Hlakkar þig
til að byrja í skólanum?
Já
Hvað hlakkar þig mest til að
læra?
Hlakka bara til að læra.
Ertu ekki spennt?
Jú, mest að hitta krakkana.
Skólastarf Grunnskóla á
Suðurnesjum hófst í vikunni
Skólastarf Grunnskóla á Suðurnesjum hófst í byrjun vikunnar og
voru um 175 börn að setjast í fyrsta sinn á skólabekk í Reykja-
nesbæ. Það mátti greina spennu úr augum krakkanna þegar þau
komu með foreldrum sínum í fyrsta sinn í skólann. Víkurfréttir
litu við í Njarðvíkurskóla sl. mánudag og hittu þar nokkra 6 ára
krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í skólagöngunni.
VF KEF 35. tbl. 24 V 27.8.2003 13:41 Page 12