Víkurfréttir - 28.08.2003, Síða 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Áföstudag voru þurrkar-ar, eimingatæki og ann-ar tilheyrandi búnaður
Fiskimjölsverksmiðjunnar í
Sandgerði flutt um borð í
flutningaskip í Sandgerði, en
búnaðurinn hefur verið seldur
fyrirtækisins Skeggeyjar á
Höfn í Hornafirði.
Unnið var að því á föstudags-
morgun að hífa þurrkarana á
vörubílskerru, en til verksins
voru notaðir tveir stórir kranar.
Hver þurrkari vegur um 45 tonn.
Hermann Ólafsson verksmiðju-
stjóri hjá Barðsnesi segir að það
sé þungt í starfsmönnum hljóðið
þegar þeir sjá þurrkarana fara.
„Ég hef unnið hér í fimm ár og
sá meðal annars um að koma
þessari verksmiðju upp. Auðvit-
að er það erfitt að horfa á eftir
þessari verksmiðju úr bænum,“
sagði Hermann í samtali við Vík-
urfréttir. Ekki hafa tæki úr mjöl-
húsi enn verið seld, en Hermann
telur að um tveggja mánaða
vinna sé eftir við niðurrif verk-
smiðjunnar.
Í dag hófst hreinsunarátak við
gamla vitann á Hrannargötu í
Keflavík, en þar er ætlunin að
hreinsa upp allskyns drasl sem
safnast hefur upp þar í gegn-
um árin. Það eru Blái herinn,
Hverfisvinir, Reykjanesbær og
eigendur húseigna í nágrenn-
inu sem standa að átakinu. Að
sögn Tómasar Knútssonar for-
svarsmanns Bláa hersins er
þetta hluti af hreinsunarátaki
sem hófst á síðasta ári þar sem
lögð verður áhersla á hreinsun
strandlengjunnar.
VF-ljósmynd: Jóhannes Sig-
urðsson frá Hverfisvinum og
Tómas Knútsson frá Bláa
hernum hefja átakið.
Fiskimjölsbræðslan flutt
Þurrkararnir vega hver um sig 45 tonn,
en fjórir slíkir voru í verksmiðjunni.
Hreinsun strand-
lengjunnar haldið áfram
Úrslit í áskorendakeppniLífsstíls voru tilkynntfyrir skemmstu. Aldrei
hefur keppnin verið eins jöfn
og spennandi eins og nú. Til að
mynda voru tveir hnífjafnir í 1.
sæti í karlaflokki.
Áskorendakeppni Lífsstíls er
líkams- og heilsuræktarkeppni
þar sem fólk keppir um að ná
sem mestum árangri á 12 vikum.
Í upphafi er fólk mælt frá toppi
til táar bæði ummáls- og
f itumælt. Mælingar eru
endurteknar á 4ra vikna fresti til
að sjá hvar fólk stendur og einnig
til að veita aðhald. Í upphafs-
mælingu og í lokamælingu eru
teknar myndir sem stuðst er við
þegar árangur er metinn.
Ekki er eingöngu horft í þann
kílóafjölda sem fólk er að missa,
heldur heildar árangur metinn
svo sem hlutfall fitu af því sem
fólk er að missa, þannig að
ALLIR eiga jafna möguleika á
sigri.
Eins og áður sagði hefur árangur
verið gífurlega góður eða eins og
hér sést á meðfylgjandi myndum:
Karlar:
1.-2. sæti: Gunnlaugur K.
Unnarsson
1.-2. sæti: Valgeir Magnússon
3. sæti: Stefan Swales
Konur:
1. sæti: Hildur Þorgrímsdóttir
2. sæti: Helga Kristmundsdóttir
3. sæti: Ágústa Bjarnadóttir
Fyrir áhugasama þá er ný ásko-
rendakeppni að hefjast og verður
kynningarfundur á Sólsetrinu á
Hótel Keflavík, mánudaginn 8.
september kl. 20.20. - Glæsileg
verðlaun í boði.
Frábær árangur í áskorendakeppni Lífsstíls
Einn af dagskrárliðum Ljósanætur í Reykjanesbæ verður ljósmyndasýning 5 ára stúlku úr Njarðvík, Sölku Bjartar
Kristjánsdóttur. Sýningin, sem haldin verður í húsakynnum Bókasafns Reykjanesbæjar verður formlega opnuð
kl. 16 fimmtudaginn 4. september, á upphafsdegi Ljósanæturhátíðar. Frá því í febrúarbyrjun á þessu ári hefur
Salka Björt gengið reglulega um bæinn sinn, Reykjanesbæ, með myndavél og tekið myndir af því sem henni
hefur þótt flott og merkilegt. Sýningin ber heitið Bærinn minn og spannar 7 mánaða tímabil í sögu bæjarins,
enda má á myndunum sjá ýmsar breytingar í bæjarlífinu á þessum tíma, framkvæmdir við Hafnagötu og eftir
framkvæmdir, mismunandi ásýnd hluta eftir stöðu sólar og gróður á misjöfnu vaxtarstigi, svo eitthvað sé nefnt.
Allar myndirnar eiga þó eitt sameiginlegt, það er bjart yfir þeim öllum, enda ekkert gaman að taka myndir í úr-
komu og roki þegar maður er bara 5 ára. Á sýningunni verða á milli 20 og 30 myndir sem rúlla yfir tölvuskjá til
kl. 18 laugardaginn 6. september.
Bærinn minn
– 5 ára ljósmyndari með sýningu á Ljósanótt
VF KEF 35. tbl. 24 V 27.8.2003 12:43 Page 14