Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.11.2003, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 13.11.2003, Blaðsíða 1
40% MEIRAMAGN 10Gljástig 3.990 BYGGIR MEÐ ÞÉR Sadolin, gljástig 10, ljósir litir, 7 lítrar á verði 5 lítra. 40% meira magn. Málning Vnr.89010170-270 S T Æ R S T A V I K U L E G A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M Aðsetur: Grundarvegi 23 • 2. hæð • 260 Reykjanesbæ • Sími: 421 0000 • www.vf.is • Fréttavakt: 898 2222 Inn á öll heimili á Suðurnesjum í hverri viku. Öflugasti auglýsingamiðill Suðurnesja. 46. tölublað • 24. árgangur Fimmtudagurinn 6 . nóvember 2003 Garðmenn stórhuga í upp- byggingu öldrunarmála - Sjá frétt og myndir á bls. 4 í blaðinu í dag. Varnarliðið vildi bjóða þeim90 starfsmönnum sem sagtvar upp störfum á dögun- um að hætta strax og að þeim yrði greidd laun út uppsagnar- tímann, allt að þremur mánuð- um. Boð um þetta kom beint frá æðstu yfirmönnum Varnarliðs- ins, m.a. Aðmíráli og Kafteini. Samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum Víkurfrétta afþakkaði starfsmannastjóri Varnarliðsins boðið og sagði að slíkt tíðkaðist ekki á Íslandi og væri ekki sam- kvæmt íslenskum venjum. Starfsmannastjórinn er ráðgjafi Varnarliðsins og var farið eftir hans tilmælum. Samkvæmt heimildum Víkurfrétta hefur nokkur fjöldi þeirra starfs- manna sem sagt var upp störfum útvegað sér læknisvottorð til að geta hætt störfum, en fengið laun greidd út uppsagnarfrestinn. Heim- ildarmenn blaðsins segja að mjög slæmt andrúmsloft sé meðal starfs- manna innan Varnarliðsins þar sem erfitt sé fyrir þá sem sagt var upp störfum að sinna vinnu sinni. „Margir þeirra sem sagt var upp störfum hanga í vinnunni og eru ekki til neins gagns. Þeir vilja kom- ast burt,” sagði heimildarmaður blaðsins Kristján Gunnarsson formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis sagði í samtali við Víkurfréttir að hann hefði ekki heyrt um að æðstu yfir- menn Varnarliðsins hafi boðið að þeim sem sagt var upp hættu strax. Kristján sagðist hinsvegar hafa spurt starfsmannastjóra Varnarliðs- ins að því, í aðdraganda þess þegar 90 starfsmönnum var sagt upp, hvort starfsmennirnir fengju að hætta strax. „Svör starfsmanna- stjórans voru afdráttarlaus. Hann sagði að allir starfsmennirnir þyrftu að vinna út uppsagnarfrestinn,” sagði Kristján. Æ Ð S T U Y F I R M E N N V A R N A R L I Ð S I N S : Vildu starfslok strax og greiða uppsagnarfrestinn VF 46. tbl. 2003 #4 12.11.2003 15:55 Page 1

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.