Víkurfréttir - 13.11.2003, Blaðsíða 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
SPURT&SVARAÐ
Gerðahreppur afhenti umhelgina sex nýjar íbúðiraf tíu sem sérstaklega
hafa verið byggðar fyrir aldr-
aða í Garðinum. Það er Húsa-
gerðin ehf. sem byggði íbúðirn-
ar en þær standa við Melteig í
Garði, sem er framtíðarupp-
byggingarsvæði í málefnum
aldraðra vestan við Garðvang í
Garði. Samhliða afhendingu
íbúðanna var kynnt ný fram-
tíðarsýn sem gerir ráð fyrir
stórfelldri uppbygginu á svæð-
inu við Garðvang í Garði. Það
eru VA arkitektar sem unnið
hafa framtíðarsýnina fyrir
sveitarstjórnina í Garði. Sig-
urður Ingvarsson, formaður
bygginganefndar íbúða aldr-
aðra í Garði, sagði við þetta
tækifæri að uppbygging öldr-
unarmála væri í raun sú stór-
iðja sem Garðmenn ættu að
fara í.
Allt að 70 nýjar íbúðir fyrir aldraða
Það kom skýrt fram við afhend-
ingu íbúðanna um sl. helgi að
hreppsnefnd Gerðahrepps vill sjá
frekari uppbyggingu á svæðinu
vestan við Garð og með það að
leiðarljósi hefur sveitarstjórn lát-
ið vinna skipulag að framtíðar-
uppbyggingu svæðisins vestan
Garðvangs Það var Sigríður Sig-
þórsdóttir arkitekt sem kynnti
hugmyndirnar fyrir gestum í
Garðinum um helgina. Framtíð-
arsýnin gerir ráð fyrir töluverðri
stækkun hjúkrunarheimilisins,
fjölbreyttu þjónusturými og um
70 íbúðum annað hvort í sérbýl-
um eða þjónustuíbúðum í tveggja
og þriggja hæða húsum á svæð-
inu.
Stoltur af þessu verkefni
Ingimundur Þ. Guðnason, odd-
viti Gerðahrepps, sagðist við af-
hendingu íbúðanna vera stoltur af
því að fá að taka þátt í því að af-
henda fyrstu íbúðirnar sem sér-
staklega eru ætlaðar öldruðum í
Garði. Þá sagði Ingimundur að
stórt skref hafi verið stigið í þágu
aldraðra og hann sagði það von
sína að þau ættu eftir að vera
fleiri.
Ríkisvaldið styðji frekari uppbyggingu
Ingimundur benti á að ríkisvaldið
hafi látið í veðri vaka að sveitar-
félögin hafi ekki staðið sig sem
skildi í uppbyggingu á ýmis kon-
ar þjónustu fyrir aldraða og skor-
að á þau að gera betur. „Við sem
sitjum í hreppsnefnd Gerða-
hrepps teljum að við séum að
koma til móts við þau sjónarmið
með þeim íbúðum sem nú eru af-
hentar og væntum þess af ríkis-
valdinu að það styðji okkur í
framtíðinni til uppbyggingar
svæðisins”, sagði Ingimundur
við þetta tækifæri.
Bygginganefnd íbúða aldraðra í
Garði er skipuð þeim Sigurði
Ingvarssyni, Ólafi Kjartanssyni
og Arnari Sigurjónssyni. Starfs-
maður nefndarinnar er Sigurður
Jónsson sveitarstjóri í Garði.
➤ U P P B Y G G I N G Í Ö L D R U N A R M Á L U M Í G A R Ð I
Garðmenn stórhuga í öldrunarmálum
Tíu nýjar íbúðir aldraðra afhentar í Garðinum:
S igurður Jónsson sveitar-stjóri og starfsmaðurbygginganefndar íbúða
aldraðra í Garði.
- Hefur öllum íbúðunum verið
úthlutað?
Gerðahreppur hefur afhent sex af
tíu íbúðum sem sérstaklega eru
byggðar fyrir aldraða og staðsett-
ar á svæði vestan Garðvangs.
Fjórar íbúðir stærðinni 93 ferm.
eru lausar til umsóknar. Allar
nánari upplýsingar um verð og
leigukjör eru hjá sveitarstjóra.
- Kaupir fólk eða leigir íbúð-
irnar?
Íbúðirnar eru með svokölluðu
kaupleiguformi. Fólk borgar að
minnsta kosti 10 % útborgun og
síðan ákveðna upphæð í leigu á
mánuði. Leiguupphæð getur ver-
ið svolítið mismunandi og fer
það eftir því hvaða rétt viðkom-
andi á til vaxtabóta og afsláttar af
fasteignagjöldum. Útborgun er
greidd til baka með verðbótum ef
íbúi fer úr íbúðinni. Verð á minni
íbúðunum er tæpar 12 milljónir
og verð á stærri íbúðunum er
tæpar 14 milljónir.
- Nú hafa VA arkitektar teikn-
að upp framtíðarskipulag á
svæðinu við Garðvang. Hvern-
ig sjáið þið fyrir ykkur þróun
mála á svæðinu. Hvað sjáið þið
fyrir ykkur að uppbygging
gæti tekið langan tíma?
Við höfum viljað sýna með
skipulagsvinnu að hægt er að
nýta svæðið í nágrenni við hjúkr-
unarheimilið Garðvang til mikill-
ar uppbyggingar í þágu aldraðra
hér á Suðurnesjum. Við sýnum
fram á með skipulaginu að hægt
er að byggja upp mjög öfluga
þjónustu. Við höfum sótt um að
byggja 9 íbúðir til viðbótar. Varð-
andi byggingu þjónustukjarna
höfum við átt viðræður við eign-
araðila Garðvangs þ.e. nágranna-
sveitarfélög okkar án þess að nið-
urstaða sé komin. Gerðahreppur
tekur þátt í sameiginlegri upp-
byggingu sveitarfélaganna af
fullum þunga og má þar nefna
stækkun Fjölbrautaskóla Suður-
nesja og nýbyggingu Sorpeyð-
ingarstöðvarinnar í Helguvík.
- Ætlar Garðurinn að taka for-
ystu í öldrunarmálum á Suð-
urnesjum?
Bestu möguleikar fyrir uppbygg-
ingu öldrunarmála eru hér í
Garði. Mér finnst því eðlilegt að
sveitarfélögin styðji okkur af
fullum heilindum í uppbygging-
unni. Eins og kunnugt er hefur
það verið mjög erfitt að koma
þessum málum áfram. Garð-
vangur er eigandi að lóðinni og
þarf því að veita leyfi til að fram-
kvæmdir megi fara fram. Það tók
langan tíma að koma því í gegn
að þessar 10 íbúðir yrðu byggðar
en það hafðist. Ég vil trúa því að
okkar ágæta samstarf sveitarfé-
laganna verði áfram og það muni
sjást í uppbyggingu öldrunar-
mála hér í Garði.
- Hvernig verður staðið að
frekari uppbyggingu öldrunar-
mála í Garði?
Stefnan er sú að stofna sérstakt
félag í kringum íbúðirnar og
frekari uppbyggingu á þessu
svæði. Það hefur engin ákvörðun
verið tekin um einkarekstur eða
slíkt. Við viljum trúa því að við
getum náð góðu samstarfi við
okkar nágrannasveitarfélög.
Samkvæmt nýjustu tölum frá
þjónustuhópi aldraðra kemur í
ljós að á biðlista eftir þjónustu-
húsnæði eru 41. Þetta sýnir svo
sannarlega að það er þörf fyrir
uppbyggingu á svæðinu.
U M U P P B Y G G I N G U Ö L D R U N A R M Á L A Í G A R Ð I N U M
Framtíðarsýn Garðmanna á svæðinu við Garðvang. Tölvumynd frá VA arkitektum.
Nýir íbúar íbúða aldraðra í Garði.
Ingimundur Þ. Guðnason,
oddviti Gerðahrepps, veitti
lyklunum móttöku frá þeim
Áskeli Agnarssyni og Antoni
Jónssyni í Húsagerðinni.
VF 46. tbl. 2003 12.11.2003 14:51 Page 4