Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.11.2003, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 13.11.2003, Blaðsíða 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! M ikið upphlaup varð ísíðustu viku þegarArnar Dór Hannesson keppandi í Idol stjörnuleit var rekinn úr keppni vegna viðtals sem birtist í Víkurfréttum. Suðurnesjamenn virðast sætta sig illa við að Arnar Dór hafi verið rekinn úr keppni og hafa símalínur Víkurfrétta verið rauð glóandi síðan ákvörðun um brottreksturinn var tekin þar sem reiðir íbúar lýstu van- þóknun sinni á brottrekstrin- um.Aðrir fjölmiðlar fjölluðu um málið og má með sanni segja að Arnar Dór sé einn um- talaðasti einstaklingur landsins þessa dagana. Arnar Dór segist vera hálfskelk- aður yfir öllu þessu uppnámi. „Auðvitað líður mér ekki vel, en ég læt þetta ekki stoppa mig í því sem ég ætla mér að gera. Að mínu mati er um rosalega mikinn misskilning að ræða hjá báðum aðilum, en við því er ekkert að gera eins og staðan er í dag,” seg- ir Arnar Dór en hann telur að hann hefði átt að fá að halda áfram. „Samkvæmt því sem áður hefur komið fram varðandi þessa tvo einstaklinga þá finnst mér að ég hefði átt að fá að halda áfram. En ég er hættur að velta mér upp úr þessu. Ég vil þó taka það skýrt fram að ég kann rosalega vel við Karl í Grindavík og tel hann frá- bæran söngvara. Mér þykir leitt að hann hefði dregist inn í þessa umræðu, en ég varð að benda á atriðið varðandi hann til að sýna tvískinnungsháttinn í málinu.” Arnar segist hafa vitað að með því að veita Víkurfréttum viðtal að þá væri hann að fara inn á grátt svæði. „Ég vissi að þetta væri á gráu svæði, en ég vildi líka vekja athygli á því hve mis- munandi umfjöllun keppendur hafa fengið. Ég vil þó taka það skýrt fram að ég tel Víkurfréttir ekki eiga neina sök á málum, enda var blaðið í raun að styðja við bakið á mér með umfjöllun sinni. Víkurfréttir hefðu aldrei birt viðtalið og ég aldrei sam- þykkt það ef það hefði verið vit- að að svona myndi fara,” segir Arnar Dór og brosir. Arnar segist hafa fundið fyrir miklum stuðningi frá því hann var rekinn úr keppninni. „Síminn hefur ekki stoppað hjá mér. Það hefur fullt af fólki sent mér sms, tölvupóst og margir hafa hringt. Ég vil bara þakka þann stuðning sem mér hefur verið sýndur,” segir Arnar og hann er staðráðinn í því að halda áfram á tónlistar- brautinni. „Í gærkvöldi og í dag [sl. föstudag] hef ég verið að fá tilboð sem ég er að skoða. Ég mun t.d. syngja í Stapanum um jólin, mér bauðst að syngja tvö lög í hljóðveri og það er ýmislegt annað í skoðun,” segir Arnar en eins og komið hefur fram í fjöl- miðlum mun Arnar Dór fara með eitt af hlutverkunum í söngleikn- um Hárinu sem settur verður upp af Fjölbrautaskólanum í Breið- holti eftir áramótin. En ætlar Arnar Dór að fylgjast áfram með Idol keppninni á Stöð 2? „Já að sjálfsögðu. Fólkið sem þar er að keppa eru allt vinir mínir og ég óska þeim öllum góðs geng- is.” STÓRU IDOL-TÍÐINDIN GERAST HJÁ VÍKURFRÉTTUM! Keflvíkingnum ArnariDór Hannessyni var vís-að úr keppninni Idol- Stjörnuleit á Stöð 2 eftir að við- tal birtist við hann í Víkurfrétt- um í síðustu viku. Dagskrár- deild Stöðvar 2 hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu vegna málsins: Til að tryggja hag allra keppenda í Idol - Stjörnuleit hefur dag- skrárdeild Stöðvar 2 vísað einum þátttakanda úr keppninni. Við- komandi heitir Arnar Dór Hann- esson en hann braut reglu um fjölmiðlabann. Dagskrárdeild Stöðvar 2 tekur ekki afstöðu til þess hvort um ásetning umrædds keppanda hafi verið að ræða. Fjölmiðlabann er sett fram til þess að keppendur í Idol - Stjörnuleit hái ekki kosningabar- áttu. Slíkt dregur úr trúverðug- leika þáttarins og kemur í veg fyrir sanngjarna kosningu. Af fyrrgreindum ástæðum sá dag- skrárdeild Stöðvar 2 sér ekki annað fært en bregðast við með þessum hætti. Einn megintil- gangur keppnisreglna er að tryggja jafnræði allra keppenda. Áður en Idol - Stjörnuleit hóf göngu sína á Stöð 2 veittu allir þátttakendur skriflegt samþykki sitt þar sem því var heitið að virða keppnisreglur. Tilboðin streyma til Arnars Dórs Arnar Dór rekinn úr Idol-keppninni eftir viðtal við Víkurfréttir: Yfirlýsing frá Víkurfréttum vegna Idol Víkurfréttir harma það mjög að Arnar Dór Hannesson, fyrrverandi keppandi í Idol stjörnuleit hafi verið vikið úr keppni í síðustu viku vegna viðtals sem birtist við hann í Víkurfréttum. Blaðið frábiður sér alla umræðu um það að það hafi ætlað sér að koma Arnari Dór úr keppninni. Þvert á móti voru Víkurfréttir að vekja athygli á full- trúa Suðurnesja og vildu styðja hann þannig. Blaðamenn Víkurfrétta vissu ekki um fjölmiðlabannið sem sett hefur verið á keppendur í Idol stjörnuleit og að sjálfsögðu hefði viðtalið ekki verið birt ef af- leiðingarnar hefðu verið fyrirsjáanlegar. Páll Ketilsson ritstjóri Vísað úr Idol-Stjörnuleit eftir viðtal við Víkurfréttir Idol ljósmynd samsett á Víkurfréttum. VF 46. tbl. 2003 12.11.2003 14:16 Page 20

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.