Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.11.2003, Blaðsíða 24

Víkurfréttir - 13.11.2003, Blaðsíða 24
24 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Kæru Suðurnesjamenn! Nú er komið að niðurstöðum úr söfnuninni hjá okkur í ABC- hjálparstarfi sem fram fór í mars stl. um land allt. Börn úr flestum grunnnskólum landsins tóku þótt í söfnuninni. Alls söfnuðust kr. 8.130.375 sem er enn betri árangur en árið 2002 en þá söfn- uðust kr. 6.167.603 Söfn- unarfénu í ár verður varið að stærstum hluta til skólamála. Strax í sumar var hafist handa við að reisa verkmenntaskóla við Heimili litlu ljósanna á Indlandi og er sá skóli nú fullbúinn. Í verkmenntaskólanum geta nem- endur lært tæknigreinar, heilsu- gæslugreinar og iðngreinar. Upphafi skólastarfsins fylgja miklar væntingar enda gefur þessi skóli unglingunum mikla möguleika á námi sem felur í sér traustan undirbúning fyrir lífið og betri atvinnumöguleika. Í Úg- anda stöndum við einnig í fram- kvæmdum. Nú þegar er búið að byggja fyrir þann hluta söfnunar- fjárins sem sendur var þangað. Reistar hafa verið 5 nýjar kennslustofur fyrir forskólabörn ásamt læknisaðstöðu, lagður grunnur að 3ja hæða grunnskóla- byggingu og lokið við frágang að 2 stofum í þeirri byggingu. Einnig voru keyptar kojur fyrir börnin á El Shaddai barnaheimil- inu á Suður-Indlandi en þau eru um 150 talsins. Hér koma niðurstöður söfnunar- innar á Suðurnesjum: Holtaskóli: 72.359 kr. Myllubakkaskóli: 64.599 kr. Heiðarskóli: 48.716 kr. Njarðvíkurskóli: 71.210 kr. Grindavík: 63.921 kr. Sandgerði: 29.461 kr. Garður: 26.945 kr. Fyrirtæki: 114.630 kr. Samtals: 491.841 kr. Landið alls: 8.130.375 kr. Markmið ABC hjálparstarfs er að veita fátækum og munaðar- lausum börnum varanlega hjálp. Fyrir hjálp íslenskra stuðnings- foreldra eru í dag yfir 3800 börn í 6 löndum sem fá hjálp í formi skólagöngu, læknishjálpar, fæðis og klæða. Þar af eru um 1900 börn sem búa á heimilum sem ABC hjálparstarf hefur byggt upp á Indlandi og í Kambódíu. Enn eru fjölmörg börn á skrá sem vantar stuðningsaðila. Kostnaður er frá kr. 950 - 3.450 á mánuði. Þeir sem óska eftir að taka að sér að styrkja barn geta haft samband við undirritaða eða skrifstofu ABC hjálparstarfs Sól- túni 3, R.vík. sími: 561 6117. ABC hjálparstarf gefur út jóla- kort til styrktar starfinu. Börn munu ganga í hús og selja kort og hvet ég Suðurnejamenn til að taka vel á móti þeim. Kortin fást einnig í ýmsum verslunum svo og hjá undirritaðri. Hjálpum nauðstöddum börnum um leið og við sendum vinum og vanda- mönnum jólakveðju. Við hjá ABC hjálparstarfi viljum færa Suðurnesjamönnum kærar þakkir fyrir ykkar framlag í söfn- unina Börn Hjálpa Börnum. Sérstakar þakkir fá þeir skóla- stjórar, kennarar og grunnskóla- nemendur sem lögðu okkur lið svo og þau fyrirtæki sem tóku þátt í söfnuninni. Bestu kveðjur María Magnúsdóttir framkvæmdastjóri ABC hjálparstarfs. Suðurnesjabörn dugleg að safna S íðustu þrjár vikur hefurlögreglan í Keflavík hafttil afnota lögreglubifreið frá Ríkislögreglustjóra sem er með sérstökum hraðamælinga- búnaði. Bifreiðin er búin ratsjá með upptökubúnaði fyrir hljóð og mynd, en nægilegt er að einn lögreglumaður sé í lög- reglubifreiðinni við hraðamæl- ingar og umferðareftirlit. Í ná- inni framtíð munu allar lög- reglubifreiðar verða með þenn- an búnað innanborðs hjá lög- reglunni í Keflavík. Guðmund- ur Sæmundsson lögreglumað- ur sagði að búnaðurinn væri einfaldur í notkun. „Þessi bún- aður er í raun algjör bylting í öllu umferðareftirliti. Öll brot eru tekin upp með myndavél í bílnum og samtöl lögreglu- manns og ökumanns eru tekin upp inn í lögreglubifreiðinni.” Á 15 dögum hafa 120 ökumenn verðið kærðir þar sem þessi nýi búnaður kemur við sögu og frá 20. október hafa 180 ökumenn verið kærðir fyrir hraðakstur hjá lögreglunni í Keflavík. 120 ökumenn kærðir fyrir um- ferðarlagabrot -nýr búnaður lögreglunnar í Keflavík gefur góða raun VF 46. tbl. 2003 12.11.2003 14:30 Page 24

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.