Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.11.2003, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 13.11.2003, Blaðsíða 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Blaðamaður Víkurfrétta ákvað að kynnast þessum snjalla leik- manni betur og mælti sér mót við Brandon á heimili hans í Njarðvík þar sem hann býr ásamt eiginkonu sinni. Brandon segir okkur að hann sé frá litlum bæ í Iowa sem heitir Orange City og búa þar einung- is um 6000 manns. Það er þá bara eins og þú sért að flytja í stórborgina Reykja- nesbæ! -Já eiginlega, segir Brandon og hlær.-Það auðveldar okkur auð- vitað að aðlagast lífinu hér á landi að við erum vön smábæj- arlífinu en erum ekki frá stór- borgum eins og sumir aðrir leik- menn sem spila hér eins og Brenton sem er frá New York. Brandon fór í háskóla í heima- bæ sínum þar sem faðir hans var aðstoðarþjálfari í áraraðir. Þar lagði hann stund á við- skiptafræði og hyggst leggja slíkt fyrir sig að loknum körfuknattleiksferlinum. Hon- um liggur þó ekki á því vegna þess að hann segist njóta þess að vinna við það sem honum fnnst skemmtilegast. Körfubolt- inn gefur honum líka tækifæri til að ferðast og sjá framandi staði og kynnast nýju fólki. Af hverju Ísland? -Þegar mér bauðst fyrst að koma hingað gerðu vinir mínir grín að mér og spurðu hvort menn spiluðu körfubolta á skautum á Íslandi! Ég fór því á netið til að leita mér upplýsinga og komst að því að veturnir eru í raun mildari hér en á mínum heimslóðum. Svo er landið ótrúlega fallegt. Við erum búin að ferðast nokkuð síðan við komum og m.a. búin að fara að Geysi og Gullfossi. Hvernig finnst þér íslenska deildin? -Hún er afskaplega krefjandi líkamlega. Maður finnur líka fyrir því að leikmennirnir eru að spila fyrir sitt lið frá sínum heimabæ og spila því með hjart- anu og gefa sig alla í leikinn. Hafið þið samband við sam- landa ykkar hér á landi og kemur það í veg fyrir heim- þrá? -Við erum ekki í svo miklu sambandi við þá og við höfum ekki farið oft upp á herstöð, ég umgengst mest strákana í liðinu. Við höfum ekki þjáðst enn af heimþrá en ég sakna þess kannski mest að geta fylgst með ameríska fótboltanum og há- skólakörfunni. Hefur þú fundið fyrir rígnum sem er á milli Keflavíkur og Njarðvíkur? -Já, þessir leikir eru allt öðruvísi en hinir. Fólk er lengi að spá í þá bæði fyrir og eftir leikina og liðin hata að tapa fyrir hvort öðru. Ég þekki þessa stöðu vegna þess að þegar ég var að spila í háskóla var annað lið úr næsta bæ sem við spiluðum oft við og þá var alltaf hart barist eins og í leikjum Keflavíkur og Njarðvíkur. Er mikill munur á Íslending- um og fólki á þínum heima- slóðum? -Ekki endilega svo mikill, en fólkið sem við höfum kynnst hefur verið ofboðslega gott við okkur og vill allt fyrir okkur gera til að okkur líði sem best. Hvað er erfiðast við að vera á Íslandi? Það er auðvitað mjög erfitt að vera fjarri ættingjum sínum og vinum svo lengi, en foreldrar mínir og systkini komu í heim- sókn til okkar um daginn. Þeim fannst mjög gaman að koma hingað, enda ekki á hverjum degi sem þau fara erlendis. En við erum svo heppin að vera vön fámenni eins og hér þannig að það er ekki það erfiðasta. Konan mín, Kyndara, ólst upp á sveitabæ og er mikil hesta- manneskja og við höfum yndi af því að fara í ökuferðir um ná- grennið og skoða hestana og fara og horfa á norðurljósin á kvöldin. Margt smátt... Nafn: Brandon Woudstra Hæð:190 sm Skóstærð: 12 Uppáhalds hljómsveit:Weezer Uppáhalds matur: Nautasteik Uppáhalds drykkur: Mountain Dew Uppáhalds kvikmynd: Forest Gump Uppáhalds bók: Biblían Uppáhalds lið í NBA: Ég hef hald- ið með Celtics síðan ég var krakki og Larry Bird var uppáhalds leik- maðurinn minn, en ég held líka svo- lítið með Timberwolves vegna þess að þeir eru næstir minni heimasveit af öllum liðunum. SPORTSPJALL B R A N D O N W O U D S T R A • N J A R Ð V Í K Rígurinn milli Keflavíkur og Njarð- víkur á sér hliðstæðu í Ameríku Brandon Woudstra gekk til liðs við Njarðvíkinga í september síðastliðnum og hefur byrjaðtímabilið með miklum látum. Þrátt fyrir að hafa átt við smávægileg meiðsl að stríða undan-farið hefur hann engu að síður spilað stórvel og var öðrum fremur maðurinn á bak við góð- an sigur Njarðvíkinga á erkifjendunum úr Keflavík á dögunum. Íþróttafréttir Víkurfrétta ÞORGILS JÓNSSON GSM 868 7712 VF 46. tbl. 2003 12.11.2003 14:45 Page 22

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.