Víkurfréttir - 13.11.2003, Blaðsíða 8
ÞAÐ ER STAÐREYND að 105 manns verður sagt
upp hjá Varnarliðinu um mánaðarmótin. Hagræðing
hjá Varnarliðinu er skýringin! Er herinn að fara á haus-
inn? Búast má við enn frekari uppsögnum á næstunni
þar sem varnarliðið segir að
einungis sé búið að skera nið-
ur um 1/3 af því sem á að
skera niður. Búast má við því
að verktakar missi vinnuna,
þar sem búist er við að varn-
arliðið segi upp samningum
við ÍAV og KV.
ÞAÐ ER LJÓST að það
þýðir ekkert að ræða við
varnarliðið um að draga uppsagnirnar til baka til fram-
búðar. Það þarf að finna önnur störf fyrir það fólk sem
nú hefur misst vinnuna - og kemur til með að missa
vinnuna á næstu mánuðum. En hvað er hægt að gera?
Hvað á að gera í svona aðstæðum? Kallinn hefur ekki
einhverja einhlíta lausn, en að hans mati þarf að koma
fjármagni til ungs fólks með hugmyndir.
ÞAÐ HEFUR NEFNILEGA sýnt sig að þegar fjár-
magn er lagt til frumkvöðla og sprotafyrirtækja, þá
mun það skila sér margfalt til baka. Fyrirtækið Kaffi-
tár, sem er nú að byggja glæsilega byggingu við Fitjar
er dæmi um slíkt fyrirtæki. Þar kom einn einstaklingur
fram með hugmynd og nú er hugmyndin orðin að einu
þekktasta fyrirtæki Suðurnesja - og þar er selt besta
kaffi landsins.
MARGIR FRUMKVÖÐLAR kvarta undan því að
aðgangur að fjármagni sé ekki nægjanlegur. Og upp-
hæðirnar sem settar eru til frumkvöðla eða sprotafyrir-
tækja eru af skornum skammti. Þetta fyrirkomulag
gengur ekki - það þarf að gera eitthvað!
KALLINN ELUR þá von í brjósti sér að sveitarfélög,
ríki og stærstu fyrirtækin á svæðinu komi upp sjóði þar
sem meginmarkmiðið verður að styðja við bakið á
frumkvöðlum með viðskiptahugmyndir. Þar þarf ein
manneskja að vera á launum hjá sjóðnum. Hennar
hlutverk verður að sjá um samskipti við frumkvöðl-
ana, taka á móti umsóknum og hvetja þá áfram.
SJÓÐSSTJÓRN mun sjá um að veita styrki, en um
leið eignast sjóðurinn hlut í viðkomandi viðskiptahug-
mynd. Þannig verður sjóðurinn beinn þátttakandi í
uppbyggingu viðskiptahugmyndar sem síðan verður
að fyrirtæki, sem síðan þarf að ráða til sín fólk.
KALLINN ER VISS um að viðskiptahugmyndir
myndu streyma inn til slíks sjóðs, allt frá hátækni hug-
myndum til viðskiptahugmynda í ferðaþjónustu og
sjávarútvegi og allt þar á milli. Á Suðurnesjum býr
kraftmikið fólk og þessi landshluti er orðinn hluti af
höfuðborgarsvæðinu. Kallinn hvetur alla til að huga að
stofnun slíks sjóðs. Hjálmar Árnason alþingismaður
hefur haft frumkvæði að því að koma með nýjar hug-
myndir á svæðið. Hjálmar er kraftmikill maður sem
Kallinn hefur mikla trú á. Hann þarf að fá Jón Gunn-
arsson þingmann í lið með sér og þeir saman þurfa að
leita leiða til að koma slíkum sjóði á laggirnar.
OG TENGT ÞESSU! Kallinn fékk bréf frá nemanda í
Tækniháskóla Íslands sem sagði að skólinn væri búinn
að sprengja utan af sér húsnæðið og væri í leit að nýju.
Nú er tækifærið fyrir sveitarfélögin hér á svæðinu og
bjóða Tækniháskólanum góða lóð, aðstoð og styrk til
að reisa slíka byggingu hér. Suðurnesin eru réttur stað-
ur fyrir Tækniháskólann.
SUÐURNESIN eru einnig rétti staðurinn fyrir Sæ-
dýrasafn. Á Alþingi hefur nýverið lögð fram þingsá-
lyktun þar sem skorað er á ríkisstjórnina að standa að
byggingu slíks safns. Í greinargerðinni kemur fram að
búast megi við 250 þúsund gestum á ári í slíkt safn.
Bæjarstjórar - takið höndum saman og bjóðið fram
lóðir! Sædýrasafnið þarf að vera á svipuðu svæði og
Bláa Lónið - við sjáum hvað það er að gera fyrir Suð-
urnesin.
KALLINN FAGNAR ÖLLUM hugmyndum um at-
vinnumál og framtíðaruppbyggingu á svæðinu. Þá
fjölmörgu sem hafa hugmyndir hvetur Kallinn til að
senda sér póst.
Uppbyggingarkveðja, kallinn@vf.is
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Grundarvegi 23,
260 Njarðvík,
Sími 421 0000 Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hilmar@vf.is
Blaðamaður:
Jóhannes Kr. Kristjánsson,
sími 421 0004, johannes@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
sími 421 0001, jonas@vf.is
Auglýsingadeild:
Jófríður Leifsdóttir,
sími 421 0009, jofridur@vf.is
Útlit, umbrot og
prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
Kallinn á kassanum
Sæll.
Þú ert nú óneitanlega farinn að minna á rispaða plötu með Árna
Johnsen.
Sameining verður að vera af því góða FYRIR ALLA AÐILA en
ekki bara fyrir þennan gráðuga öfundarhóp sem þú stendur fyrir.
Hvað varð um Hafnirnar spyr ég? Þeim íbúum var lofað öllu fögru
og að sjálfsögðu ekki staðið við neitt, enda Hafnir orðinn hálfgerð-
ur draugabær sem maður sér annars bara í spaghettívestrum eftir
Sergio Leone.
Ég vil t.d. góða og ÓDÝRA þjónustu sem eins og er fyrirfinnst
bara á einum stað á Suðurnesjum og það er EKKI í Reykjanesbæ,
þar hafa misvitrir menn lagt alla þjónustu í hendur einkaaðilum
sem hika ekki við að selja vinnu sína út fyrir morðfé.
Ég skora á þig að koma fram með tölur hvar ÓDÝRAST sé að
búa á Suðurnesjum öllum, mig grunar að sú útkoma á eftir að
koma þér á óvart.
Nú ætla ég ekkert að fara í felur með það að ég bý í best rekna
sveitarfélaginu á Suðurnesjum sem er jafnframt höfuðborg lands-
byggðarinnar samkvæmt símaskrá Landsímans, skuldir þar eru
minnstar á íbúa per höfðatölu.
Ef þú hefur eitthvað vit í kollinum þá værir þú löngu fluttur þang-
að.
Bestu kveðjur,
nafnlaus anti-kall.
PS. mun koma fram undir nafni um leið og þú þorir því.
➤ B R É F T I L K A L L S I N S
stuttar
f r é t t i r
Fyrirlestur um
skaðsemi vímu-
efna í Garði
Æ skulýðs- og vímu-efnanefnd Gerða-hrepps ásamt for-
eldra og kennarafélagi
Gerðahrepps stendur fyrir
fundi í Samkomuhúsinu
Garði, fimmtudaginn 13.
nóvember nk kl: 20:30, þar
sem aðilar frá Jafningja-
fræðslunni og Hinu húsinu
koma og ræða um skaðsemi
sniffs og vímuefna. Fyrirlest-
urinn er ætlaður nemendum
í 7.-10. bekk, ásamt foreldr-
um þeirra. Fyrirlesturinn er
einnig opin þeim sem hafa
áhuga á að kynna sér þessi
mál betur.
Gæslan hingað?
Lögð var í fyrradagfram á alþingi þingsá-lyktunartillaga þess
efnis að kannaðir verðir
kostir þess að flytja Land-
helgisgæsluna til Suður-
nesja, en það er Hjálmar
Árnason alþingismaður sem
leggur tillöguna fram.
Hjálmar telur að öll rök
mæli með slíkum flutningi
hvað varðar rekstur og ör-
yggi, en auk þess séu byggð-
arleg rök sterk í málinu.
Rauður miði í þessari viku.
Komið með hann í Samkaup.
Tveir Icelandair-ferðavinningar
og fjöldi annarra. Takið þátt!
LUKKUMIÐI
SAMKAUPA
Styðjum við bakið á frumkvöðlum
VF 46. tbl. 2003 12.11.2003 13:59 Page 8