Víkurfréttir - 13.11.2003, Blaðsíða 17
VÍKURFRÉTTIR I 46. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 13. NÓVEMBER 2003 I 17
okkur. Loks komum við upp að
pínulitlu spýtuhúsi sem leit svip-
að út og kofarnir sem maður
byggði sér í den. Þar inni voru 3
stelpur sem „ráku” staðinn en
þetta var samt bara greinilega
heimili hjá fjölskyldu sem nær
sér í aukapening með því að selja
liði bjór eftir að skemmtistaðirnir
loka. Svo var bara skellt karaoke-
inu á og þeir byrjuðu allir að syn-
gja. Svo rétti ein stelpan okkur 4
diska með lögum á ensku og eins
og í þau skipti sem við höfðum
sungið áður karaoke í Kambódiu
könnuðumst við eiginlega ekki
við nein lögin. Hemmi fann sér
þó eitt og ætlaði aldeilis að slá í
gegn. Það var lagið „Only you”
sem flestir kannast nú við. Svo
byrjaði lagið, svo kom textinn og
þá kom í ljós að þetta var eitt-
hvað allt annað lag og því gátum
við ekki sungið neitt þetta kvöld-
ið. Hemmi rétti því einum
stráknum hljóðnemann og hann
tók sig bara til og söng allt lagið
á ensku. Hann gat ekki talað
ensku en hann hafði heyrt þetta
lag nógu oft til þess að geta
hermt eftir því. Við slátruðum ör-
ugglega 25 bjórum allir til sam-
ans þarna og skemmtum okkur
frábærlega með innfæddum þetta
kvöldið. Örugglega einn af há-
punktum dvalarinnar í Kambó-
díu.
Saknið þið austurlanda?
Nei, alls ekki. Þó að við höfum
skemmt okkur alveg konunglega
þar þá fannst okkur alveg vera
kominn tími á að halda áfram.
Það sem maður saknar kannski
mest er að geta labbað inn á veit-
ingahús og pantað sér mat og
drykk fyrir rúman 100 kall. Í
Ástralíu lifðum við á núðlusúpu
og brauði með osti hitað í örbylg-
unni en hérna á Nýja Sjálandi
höfum við ekki einu sinni heitt
vatn né örbylgjuofn þannig að
við höfum þurft að finna okkur
ennþá einfaldara fæði. Ef það er
þá hægt!
Er eitthvað land sem þið mynduð vilja
vera lengur í?
Við vorum bara 9 daga í Ástralíu
og okkur fannst það bara nóg.
Eftir smá umhugsum komumst
við að þeirri niðurstöðu að við
nennum ekkert að vinna:). Það er
miklu dýrara að lifa í þessum
löndum og við hefðum ekki náð
að vinna okkur inn neinn al-
mennilegan pening. Svo verðum
við ekki nema 8 daga á Nýja Sjá-
landi af sömu ástæðum. Við vilj-
um frekar vera styttra í þessum
löndum og eiga svo bara meiri
tíma og pening í Mið-Ameríku,
Kúbu og Mexíkó. Annars er dá-
lítið erfitt að svara þessu núna
þar sem við erum bara búnir með
1/3 af ferðinni og höfum svo
margt að hlakka til.
Hvað er framundan hjá ykkur?
Frá Nýja Sjálandi höldum við til
Fiji-eyja og verðum þar í 4 daga.
Þaðan fljúgum við til L.A og við
verðum í 6 daga þar og í Las Ve-
gas áður en við fljúgum til
Panama í Mið-Ameríku og ferð-
umst upp til Mexíkó og fljúgum
þaðan til Kúbu. Höldum svo aft-
ur frá Kúbu til Mexíkó og ferð-
umst þaðan upp til U.S.A og tök-
um einhverskonar „roadtrip” þar
í gegn.
Kíkið þið á vf.is með reglulegu milli-
bili?
Jamm, og erum aldrei ánægðari
heldur en þegar einhver falleg sál
er búin að senda okkur litla
kveðju frá Íslandinu fagra.
Eruð þið farnir að sakna Íslands?
Kannski ekki Íslands beint. Aðal-
lega þó vegna þess að maður veit
að maður á eftir að koma þangað
aftur eftir 8 mánuði. Eitt það
besta við það að ferðast er þó að
maður lærir að meta það sem
maður hefur heima betur og svo
sér maður Ísland líka frá allt öðru
sjónarhorni.
Ámiðvikudag kynntuaðstandendur sýning-arinnar Ráðalausir
menn sem sýnd er í Tjarnar-
bíó, sýninguna fyrir nemend-
um Fjölbrautaskóla Suður-
nesja. Suðurnesjamaðurinn
Siguringi Sigurjónsson höf-
undur verksins segir að nem-
endur hafi tekið heimsókn-
inni vel.
„Við erum að bjóða miða á
sýninguna á 800 krónur, en
það er bíóverð. Ég hef einnig
verið að heimsækja fyrirtæki
og bjóða þeim að skipuleggja
skemmtiferðir þar hópar koma
og sjá sýninguna. Sýningin er
enn í gangi, en við höfum
fengið mjög góða dóma um
hana í dagblöðum. Það eru
fjórar sýningar skipulagðar á
næstunni. 16. og 19. nóvember
og 5. og 12. desember,” segir
Siguringi, en leikhópurinn sem
stendur að sýningunni er sjálf-
stæður. „Við erum með frá-
bæra sýningu sem við viljum
að lifi áfram. Við erum þakk-
látir fyrir hvað margir hafa
komið héðan til okkar en vilj-
um auðvitað sjá fleiri.”
Bíóverð á Ráðalausa menn
VF 46. tbl. 2003 12.11.2003 14:11 Page 17