Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.11.2003, Page 27

Víkurfréttir - 27.11.2003, Page 27
32-liða úrslit Bikarkeppninnar í körfuknattleik karla fara fram á laugardag og sunnudag. Öll Suður- nesjaliðin eiga leiki sína á laugar- dag. NJARÐVÍK-KR Á laugardaginn munu KR og Njarðvík enn og aftur leiða saman hesta sína í útsláttarkeppni. Í fyrra mættust liðin í úrslitakeppninni og í haust slógu Njarðvíkingar KR út í Hópbílabikarnum eftir tvo spenn- andi leiki. Í þetta skiptið mætast liðin í 32-liða úrslitum og má segja að þau séu óheppin með drátt vegna þess að önnur úrvaldeildarfélög fá frekar létta andstæðinga. Þrátt fyrir allar slíkar pælingar verða liðin að eiga góðan dag til að komast áfram vegna þess að bæði geta þau refsað andstæðingum sínum fyrir kæru- leysi. Friðrik Ragnarsson er þó bjartsýnn fyrir leikinn. „Það er eins og við förum alltaf erfiðustu leið- ina í öllum keppnum en þetta hefur gengið ágætlega hjá okkur það sem af er tímabilinu. Við eru auðvitað með sjálfstraustið í lagi eftir að hafa unnið Hópbílabikarinn, en við erum samt með báða fætur á jörð- inni. Við verðum að eiga alveg toppleik til þess að vinna KR-ing- ana sem eru búnir að styrkja liðið síðan við mættum þeim síðast, en ef við mætum bara rétt stemmdir til leiks eigum við að geta unnið þá.“ ÞRÓTTUR VOGUM- KEFLAVÍK Þróttarar eru nú í fyrsta sinn með starfandi körfuknattleiksdeild og eru að spila í 2. deildinni. Gengi þeirra þar hefur verið ágætt það sem af er vetri og sitja þeir sem stendur í þriðja sæti síns riðils, en engu að síður hlýtur að teljast ólík- legt að þeir nái að velgja Íslands- meisturunum undir uggum. Falur Harðarson, þjálfari Keflavíkur, leggur þó áherslu að sýnir menn taki þessum leik með fullri alvöru. „Ef það er eitthvað sem við getum lært af úrslitaleiknum á laugardag- inn er það að allt er hægt í íþrótt- um. Maður fær ekkert gefins í þessu, við verðum að spila okkar leik til að vinna.“ Björn Einarsson, þjálfari Þróttar, er uppalinn Keflvíkingur og játar fús- lega að hans menn séu ekki líklegir til að bera sigur úr býtum gegn svo sterku liði. „En við förum ekki í þennan leik til að spila eins og aul- ar. Við förum ekki að gefa þeim neinar auðveldar körfur heldur komum sterkir til leiks.“ Karfan í Vogum er á hraðri uppleið þar sem mikil vakning hefur verið hjá krökkunum og segir Björn að um 60 manns séu að æfa körfuna og víst er að stórleikur eins og þessi virkar sem lyftistöng fyrir þetta nýja framtak Vogamanna. GRINDAVÍK-BREIÐABLIK Grindvíkingar eru sjálfsagt ekki sáttir við að hafa verið slegnir út í undanúrslitum Hópbílabikarsins og hyggja á betri árangur að þessu sinni. Þeir hefja keppni með því að taka á móti Blikum. Friðrik Ingi, þjálfari Grindavík- ur, segir sína menn vera að gíra sig upp fyrir leikinn. „Ég legg höfuðáherslu á þennan leik því að maður fær ekki annan séns í bikarkeppnum. Þrátt fyrir að deildin sé enn í fullum gangi og erfið verkefni þar framundan ein- blínum við á Breiðabliksleikinn og erum vel stemmdir fyrir hann.” REYNIR-VALUR Reynir frá Sandgerði hefur notið misjafns gengis það sem af er vetri í 2. deildinni. Þeir byrjuðu á því að tapa fyrstu þremur leikj- unum, en hafa risið upp að nýju og unnið síðustu þrjá en and- stæðingar þeirra í bikarkeppninni eru Valsarar, sem eru í toppbar- áttu 1. deildar. Daði Bergþórs- son, þjálfari Reynis, segist ekki vita mjög mikið um andstæðing- ana. „Við reynum bara að spila okkar leik og standa okkur vel. Karfan hér í Sandgerði er í góð- um málum þó að við höfum farið niður um deild frá því í fyrra. Við höfum breytt um áherslur og byggjum liðið að mestu upp á heimamönnum, sem er mikil breyting frá síðasta tímabili þar sem við vorum með mikið af strákum frá Njarðvík og Kefla- vík, en það varð til þess að áhugi almennings var afar lítill. Þessi breyting verður vonandi til þess að fólkið fari að sýna körfunni aftur áhuga.” VÍKURFRÉTTIR I 48. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 27. NÓVEMBER 2003 I 27 ■Karfan / Bikarkeppni karla ■Karfan / 1. deild kvenna ■Kvennakarfa KEFLAVÍK-KR Keflavík bar sigurorð af KR í baráttuleik á mánudagskvöld. Lokatölur leiksins, sem fór fram í íþróttahúsinu við Sunnubraut, voru 72-59. Keflavíkurstúlkur byrjuðu leikinn vel og skoruðu fyrstu tíu stig leiksins. Eftir það komust KR- ingar betur inn í leikinn og var leikurinn mjög jafn og hálfleiks- staðan var 26-27 gestunum í vil. Í byrjun seinni hálfleiks virtust Keflvíkingar hafa fundið fjölina sína þar sem þær sigldu framúr KR og virtust hafa leikinn í hendi sér, en þá tók við annar slakur kafli þar sem lítið gekk í sókninni og KR voru að fá of mikið að fráköstum og góðum sóknarfærum sem varð til þess að leikurinn jafnaðist á ný og gestirnir komust yfir á tímabili í fjórða leikhluta. Þá tóku heima- stúlkur sig saman í andlitinu og tóku góða rispu þar sem þær náðu forystunni á ný og tryggðu sér að lokum mikilvægan sigur. Hjörtur Harðarson var ekki alls- kostar ánægður með leik sinna stúlkna, en var þó sáttur við að landa stigunum tveimur. „Við vorum ekki að spila mjög góðan leik. Við vorum ekki að nota teig- inn vel og klikkuðum úr alltof mörgum layup-um. Við virtumst ekki koma alveg tilbúnar í leikinn, en náðum þó að klára hann að lokum.“ Stigahæst Keflvíkinga var Erla Þorsteinsdóttir sem skoraði 32 stig og átti frábæran leik. Þar á eftir kom Anna María með 11 stig og tók 13 fráköst og Birna Val- garðsdóttir var sterk undir körfunni og tók 13 fráköst og gaf 6 stoð- sendingar. Hjá gestunum var Katie Wolfe stigahæst með 17 stig og Hildur Sigurðardóttir skoraði 16 stig og tók 15 fráköst. GRINDAVÍK-ÍS Ófarir Grindavíkurstúlkna í 1. deild kvenna virðast engan endi ætla að taka og töpuðu þær á heimavelli á mánudaginn fyrir toppliði ÍS 44- 62. Heimastúlkur lentu undir í fyrsta leikhluta og komust aldrei inn í leikinn. Eitthvað virtist líka vanta upp á baráttuna hjá þeim sem sést best á þeirri staðreynd að þær fengu aðeins 5 villur allan leikinn. Hljóðið var dauft í Pétri Guð- mundssyni, þjálfara Grindavíkur, að leik loknum. „Þetta er nú að verða slæmt hjá okkur. ÍS eru stærri en við og sterkari undir kör- funni og tóku öll fráköst og þar á meðal 20 sóknarfráköst. Svo vorum við að hitta illa utan af velli og vorum oft ragar í sókninni.“ Aðspurður játaði Pétur því að leit stæði yfir að erlendum leikmanni sem ætti að styrkja liðið í barátt- unni sem er framundan um sæti í úrslitakeppninni. Þar væri markið sett á að fá alhliða leikmann til að styrkja sóknarleik liðsins sem hefur ekki verið burðugur það sem af er vetri. Stigahæst Grindvíkinga var Petrúnella Skúladóttir sem skoraði 11 stig. Stigahæstar ÍS voru Alda Jóns- dóttir, sem skoraði 16 stig og Hafdís Helgadóttir, sem skoraði 14 stig og varði 7 skot Grindavíkur. Þá átti Svandís Sigurðardóttir góðan leik undir körfunni þar sem hún tók 14 fráköst. KEFLAVÍK-ÍS Á laugardaginn koma Stúdínur í heimsókn til Keflavíkur í undanúr- slitum Hópbílabikarsins. ÍS situr nú á toppi deildarinnar og hafa ver- ið að spila jafnan bolta og unnu Keflavík eftirminnilega í síðasta leik þeirra. Keflavíkurstúlkur virð- ast hins vegar loks vera búnar að finna sig að nýju eftir að hafa átt slæma leiki í upphafi leiktíðar. Hjörtur Harðarson, þjálfari Kefla- víkur, er bjartsýnn fyrir leikinn. „Þetta verður pottþétt hörkuleikur. ÍS er með gott lið og er á toppnum, en ég held að ef við höldum því áfram sem við höfum verið að gera í síðustu leikjum getum við alveg unnið. Síðasti leikur var ekki alveg nógu góður hjá okkur en ef við fáum upp kraft í spilið og hittnin batnar verða stelpurnar erfiðar við að eiga.“ Jónína St. Helgadóttir og Signý Elíasdóttir duttu í lukku-pott Samkaupa í síðustu viku, en þær unnu sitthvorn far-miðann til einhverra af áfangastöðum Flugleiða í Evrópu. Fjölmargir tóku þátt í lukkuleiknum í vikunni, en vinningar eru dregnir út á þriðjudögum. Fjöldi aukavinninga eru einnig dregnir út í hverri viku og eru nöfn vinningshafa birt í Víkur- fréttum. Frá og með deginum í dag gildir blái miðinn sem kem- ur með Víkurfréttum. Komið með miðann, heftið strimilinn á þegar búið er að versla og setjið í kassa sem staðsettir eru á af- greiðslukössum. Aukavinninga fengu: Elín Þórðardóttir. Áslaug Ólafsdóttir. Jóna Björg Georgsdóttir. Linda Gunnarsdóttir. Sigurgeir Þorvaldsson. Erla K Bjarnadóttir. Guðbjörg Jónsdóttir. Vigdís Ellertsdóttir. Særún Guðjónsdóttir. Ingibjörg Þorsteinsdóttir. Lukkuleikur Sam- kaupa heldur áfram VF 48. tbl. 2003 hbb #2 26.11.2003 15:15 Page 27

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.