Víkurfréttir - 24.06.2004, Qupperneq 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
stuttar
f r é t t i r
➤ Rangur fréttaflutningur Fréttablaðsins og Ríkisútvarpsins:
➤ Bæjarfulltrúar í Reykjanesbæ:
92% LESTUR Á
SUÐURNESJUM
Auglýsingasíminn er 421 0000
- samkvæmt könnun Gallup fyrir Víkurfréttir
S tarfsfólki Fjölskyldu- ogfélagsþjónustu Reykja-nesbæjar var ekki hótað
líkamsmeiðingum af hálfu
tveggja hælisleitenda sem eru á
vegum Fjölskyldu- og félags-
þjónustunnar í Reykjanesbæ. Í
forsíðufrétt Fréttablaðsins í síð-
ustu viku var greint frá því að
starfsmönnum stofnunarinnar
hafi verið hótað líkamsmeið-
ingum og lífláti og einnig var
greint frá þessu í fréttum Rík-
isútvarpsins.
Hjördís Árnadóttir félagsmála-
stjóri Reykjanesbæjar segir að
fréttaflutningur Fréttablaðsins og
Ríkisútvarpsins sé rangur hvað
varðar það að starfsmönnum Fé-
lags- og fjölskylduþjónustunnar
hafi verið hótað. „Við höfum
ekki fengið hótanir um líkams-
meiðingar frá þessum skjólstæð-
ingum okkar og í raun fer lítið
fyrir þessu fólki hér hjá okkur.
Þetta er prútt fólk og aldrei hafa
komið upp vandamál sem eru
stærri en við fáumst við í dagleg-
um störfum okkar,“ sagði Hjör-
dís í samtali við Víkurfréttir. Að-
spurð sagði Hjördís að hælisleit-
endurnir sem um ræðir séu ekki í
mótmælasvelti eins og greint
hefur verið frá í fréttum. Umönn-
un hælisleitenda gengur vel hjá
Fjölskyldu- og félagsþjónustunni
að sögn Hjördísar og er að
mörgu leiti svipuð þeirri þjón-
ustu sem fram fer hjá stofnun-
inni. „Við fáum á ári hverju hót-
anir af öllum stærðum og gerð-
um, en í þessu tilviki er um rang-
an fréttaflutning að ræða.“
Tólf hælisleitendur eru nú á veg-
um Fjölskyldu- og félagsþjónust-
unnar í Reykjanesbæ.
Bæjarstjórn Reykjanes-bæjar samþykkti áfundi sínum 15. júní að
gerð verði úttekt á kostum þess
fyrir Reykjanesbæ að taka þátt
í samstarfi sveitarfélaga á Suð-
urnesjum innan Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Í greinargerð með tillögunni seg-
ir að liðin séu 10 ár frá því sveit-
arfélagið Reykjanesbær varð til
við sameiningu Keflavíkur,
Njarðvíkur og Hafna og að önnur
sveitarfélög hafi hafnað því að
vera með í þeirri sameiningu. Í
greinargerðinni segir að við sam-
eininguna hafi orðið til öflugt
sveitarfélag á landsvísu sem sé
vel í stakk búið að sinna þeim
verkefnum seim sveitafélagi er
ætlað. Því megi ætla að hagur
Reykjanesbæjar af samstarfi inn-
an Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum haf i minnkað.
Megi leiða að því líkum að sam-
starf sem þetta bindi hendur
sveitarfélagsins þar sem ýmsar
stórar ákvarðanir séu teknar á
borði sambandsins. Segir í grein-
argerðinni að vægi Reykjanes-
bæjar við ákvarðanatöku sé hins-
vegar í engu samræmi við íbúa-
fjölda bæjarins.
Því sé nauðsynlegt að fram fari
athugun á því hvort það þjóni
hagsmunum íbúa Reykjanesbæj-
ar að taka þátt í slíku samstarfi á
slíkum forsendum.
Starfsfólki Fjölskyldu- og félags-
þjónustu Reykjanesbæjar ekki hótað
Landeigandi ósáttur
við hross á beit
■ Óskað var eftir aðstoð lög-
reglunnar í Keflavík á mánu-
dagskvöld þar sem átta hross
voru á beit á landskika í Höfn-
um. Eigandi landsins hafði ekki
gefið leyfi fyrir beit hrossanna,
en eigandi hrossanna sagðist
hafa leyfi annars landeiganda
sem eru nokkrir.
Reyndi að stinga lögregl-
una af á Reykjanesbraut
■ Eldsnemma að morgni þjóð-
hátíðardags mældu lögreglu-
menn bifreið á 106 km hraða á
Reykjanesbraut móts við Grinda-
víkurveg en hámarkshraði þar er
70 km. Ökumaðurinn, sem lög-
reglumenn þekktu fyrir að vera
sviptan ökuleyfi, sinnti ekki
stöðvunarmerkjum lögreglu og
ók áfram áleiðis til Reykjavíkur.
Ökumaðurinn jók hraðann lítið
eitt og þurfti að kalla eftir aðstoð
lögreglunnar í Hafnarfirði til að
stöðva bifreiðina. Það tókst rétt
við Straumsvík. Ökumaðurinn er
grunaður um ölvun við akstur.
Matvöru stolið úr bifreið
■ Í síðustu viku hringdi kona til
lögreglunnar í Keflavík og
kvaðst hafa verið að koma úr
versluninni Samkaup eftir að
hafa verslað þar. Hafi hún verið
á bifreið sinni og stöðvað smá-
stund við hús á Vatnsnesvegi þar
sem hún brá sér inn stutta stund.
Var bifreiðin ólæst. Er hún kom
aftur voru tveir pokar með varn-
ingnum sem hún hafði keypt í
Samkaup horfnir úr bifreiðinni.
Voru það matvæli að verðmæti
rúmlega sjö þúsund króna. Vitni
kvaðst hafa séð konu um tvítugt
taka Samkaupspokana úr bifreið-
inni. Hafi hún verið með millisítt
hár og karlmaður verið í för með
henni.
Vilja úttekt á kostum
þátttöku bæjarsins í SSS
Fylgist me› á vf.is
FLEIRI
MYNDIR
26. tbl. 2004 32 sidur umbrot 23.6.2004 12:52 Page 2