Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.06.2004, Page 4

Víkurfréttir - 24.06.2004, Page 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! ➤ Þjóðhátíðardagurinn 17. júní haldinn hátíðlegur á Suðurnesjum í blíðsapaveðri: Það var söngur og gleði á þjóðhátíðardaginn í Sveitarfé- laginu Garði. Þar var haldinn fyrsti þjóðhátíðardagurinn í nýju bæjarfélagi. Ungar snótir voru á sviði þegar ljós- myndari Víkurfrétta hafði viðkomu í Garðinum á yfir- ferð sinni um Suðurnesin. Þær voru að flytja tónlist úr söngleik sem settur var upp í Garðinum í vor. Skemmti- legt framtak það og skemmtunin í dag tókst mjög vel og var vel sótt. Hátíðarhöldin voru innandyra, en á úti- svæði voru hestar, lestarferðir og sölutjöld, ásamt hoppikastala og grilli. Settu skemmtilegan svip á þjóðhátíðardaginn Fjöllistafólk frá Leikfélagi Keflavíkur setti skemmtilegan svip á hátíðarhöld 17. júní í Skrúðgarðinum í Keflavík. Þarna mátti sjá mjög hávaxnar fígúrur og einnig skraut- lega málað fólk sem sýndi listir sínar nú eða bara bauð fólki gleðilegan þjóðhátíðar- dag. Þessi föli fjöllistamaður var mjög fær með boltana sína og kastaði þeim einum af öðrum upp í loft og greip jafnharðan aftur. Vel var staðið að allri dagskrá og veð- urguðirnir voru bara í ágætu skapi og buðu upp á sól í heiði en smá andvara, svona til að láta fánana blakta. Hafsteinn Guðmundsson, knattspyrnufrömuður í Keflavík til margra ára, dró þjóðfánann að húni í Skrúðgarðinum í Keflavík. Þjóðfáninn sem árlega er dreginn að húni í Reykjanesbæ er sá stærsti á Íslandi en athörnin er í umsjón skáta í Reykjanesbæ. Þjóðleg málning í Sandgerði Þessar ungu snótir voru á þjóðlegum nótum í Sandgerði. Þar var boðið upp á andlitsmálningu og það þótti vinsælast að fá ís- lenska fánann málaðan á andlitið. Allar vildu ungu dömurnar komast á mynd og brostu því sætt til myndasmiðs Víkurfrétta. Grindvíkingar í hátíðarskapi Grindvíkingar voru í hátíðarskapi þegar ljósmyndari Víkurfrétta kíkti við á þjóðhá- tíðarskemmtun við Festi í Grindavík. Bæjarbúar nutu veðurblíðunnar og þeirrar skemmtunar sem var í boði. Geirfuglarnir voru að skemmta fólki þegar tíðinda- maður VF var á svæðinu og fólk á öllum aldri tók þátt í sprelli með þeirri gleðisveit. Hafsteinn Guðmundsson dró stærsta þjóðfána Íslands að húni Söngur og gleði í Garði 26. tbl. 2004 32 sidur umbrot 23.6.2004 12:54 Page 4

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.