Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.06.2004, Page 16

Víkurfréttir - 24.06.2004, Page 16
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! H jartaskiptaaðgerðin var gerð áþriðjudaginn í síðustu viku, eneinnig gekkst Helgi Einar undir nýrnaaðgerð og tóku aðgerðirnar um 12 klukkustundir samfleytt. „Ég vakn- aði rúmum þremur tímum eftir aðgerð- ina og spjallaði aðeins við mömmu. Læknarnir hér eru alveg í skýjunum yfir því hvað þetta gengur allt vel,“ seg- ir Helgi, en hann var aðeins í einn sól- arhring á gjörgæsludeild eftir aðgerð- ina og fór þaðan á almenna deild. Aðgerðirnar sem Helgi gekkst undir eru mjög umfangsmiklar og komu á milli 20 og 30 manns að þeim báðum. „Mér skild- ist á þeim að þetta væri fjórða aðgerðin sem gerð hefði verið á sjúkrahúsinu, sem er svona stór í sniðum,“ segir Helgi en hann hóf endurhæfingu í byrjun vikunnar og vonast til að vera á sjúkrahúsinu áfram. „Ég veit ekki alveg hvað ég verð hér lengi, en ég vona að það verði sem lengst. Ég verð örugglega settur á aðra deild fljót- lega ef hlutirnir koma til með að ganga svona vel.“ Helgi er á sterkum verkjalyfjum eftir að- gerðina, en hann segist ekki finna mikið fyrir hjartaskurðinum sjálfum. „Ég er með ofsalegan verk í kringum nýrnaskurðinn, en það eru 19 hefti sem halda skurðinum saman sem nær frá nafla og aftur á bak. Við minnstu hreyfingu fæ ég verk í skurð- inn, en þetta batnar samt með hverjum deginum sem líður.“ Hjartað sem Helgi fékk grætt í sig er sterkt og hann er ánægður með slögin sem hann finnur í nýja hjartanu. „Hjartað slær vel eða um 80 slög á mínútu eins og í venjulegum manni. Nýrun starfa líka mjög vel og nýrnalæknarnir eru mjög ánægðir,“ segir Helgi og hann trúir því varla hvað hlutirnir hafa gengið vel. „Maður trúir þessu ekki því þetta er allt svo óraunhæft. Maður var búinn að átta sig á því að það tæki nokkrar vikur að jafna sig, standa upp og hreyfa sig. Ég gerði mér aldrei vonir um að þetta myndi ganga svona vel. Ég er laus við allar slöngur og farinn að fara á klósettið sjálf- ur og það er alltaf stórt skref,“ segir Helgi og hlær í símann. En hvað hugsaði Helgi um þegar hann ➤ Helgi Einar Harðarson úr Grindavík gekkst undir hjartaskipti öðru sinni í Svíþjóð í síðustu viku: 3. „Mér líður bara alveg konunglega. Það er vel hugsað um mig hér og ég var reyndar að koma úr sturtu,“ sagði Helgi Einar Harðarson í samtali við Víkurfréttir í fyrradag, en Helgi liggur á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gauta- borg eftir að hafa gengist undir hjartaskiptaaðgerð í annað sinn. hjarta Helga slær vel! Á milli 30 og 40 manns komu að aðgerðunum sem gerðar voru áHelga Einari í síðustu viku. Aðgerðin var tvískipt; annarsvegar fékkhann nýtt hjarta og hinsvegar fékk hann þriðja nýrað. 26. tbl. 2004 32 sidur umbrot 2 23.6.2004 15:07 Page 16

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.