Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.06.2004, Page 17

Víkurfréttir - 24.06.2004, Page 17
VÍKURFRÉTTIR I 26. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 24. JÚNÍ 2004 I 17 Tveir styrktarreikningar hafa verið stofnaðir til að styðja við bakið á Helga Einari. Annar þeirra er í Sparisjóðn- um í Keflavík og er reiknings- númerið: 1109-05-409899. Hinn reikningurinn er við Landsbankann í Grindavík og er reikningsnúmerið 143-05-60707. Viðtal: Jóhannes Kr. Kristjánsson • Ljósmyndir úr hjartaaðgerð: Ingi Ragnar Ingason vaknaði eftir þessa stóru aðgerð? „Ég var allur dofinn. Mér fannst það ótrúlegt að þetta væri búið þegar ég vaknaði og að það væri kominn skurður á mann. Ég var nú hálf sljór svona til að byrja með enda var ég þá á morfíni. Þetta er bara alveg ótrúlegt og læknarnir hér eru alveg hissa,“ segir Helgi en þremur tímum eftir aðgerðina rabbaði hann við móður sína, Sigurbjörgu Ásgeirsdóttur sem ásamt systur hennar er stödd í Gautaborg hjá Helga Einari. Næstu vikur skipta miklu máli fyrir Helga og nýja hjartað því alltaf er hætta á því að líkaminn hafni nýja hjartanu. Helgi er þó mjög bjartsýnn og hefur svo sannarlega ástæðu til því á dögunum fór hann í sýna- töku þar sem sjö sýni voru tekin úr hjart- anu og sett í ræktun. Í ljós kom að í engu sýnanna kom fram höfnun á hjartanu og eru það mjög góðar niðurstöður. Eins og áður segir vonast Helgi eftir því að geta verið sem lengst á sjúkrahúsinu í Gauta- borg meðan hann er að jafna sig eftir að- gerðina. „Ég verð að passa mig mjög vel því ofnæmiskerfið er bælt og það er mikil hætta á sýkingum. Ég er ofsalega þakklátur fyrir allan þann stuðning sem ég hef fundið að heiman frá ættingjum og vinum og ég hlakka til að koma stálsleginn heim. Ég vil sérstaklega þakka Suðurnesjamönnum stuðninginn í gegnum árin sem hefur verið gífurlegur,“ sagði Helgi Einar að lokum. Aðgerðin var mjög viðamikil og hér sjást skurðlæknar Sahlgrenska sjúkrahússins að störfum. Sigurbjörg móðir Helga Einars ásamt systur sinni og Gunnari Brandrup hjartaskurðlækni. Helgi var vakinn á gjörgæslu aðeins rúmum þremur klukku- stundum eftir aðgerðina. Hér er Helgi í miðri aðgerð. Gamla hjartað komið í skálina. 26. tbl. 2004 32 sidur umbrot 2 23.6.2004 15:13 Page 17

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.