Víkurfréttir - 24.06.2004, Side 23
VÍKURFRÉTTIR I 26. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 24. JÚNÍ 2004 I 23
UN skór
Skómarkaður
Safnaðarheimili
Innri-Njarðvíkurkirkju
Opið um helgina:
föstudag, laugardag og sunnudag.
Opið kl. 11-18.
Ný sending af
barna
og unglingaskóm.
Í slenska karlalandsliðið íkörfuknattleik undirbýr signú fyrir æfingaleiki gegn
Belgíu sem fara fram á
fimmtudag föstudag og laugar-
dag.
Fjölmargir leikmenn af Suður-
nesjum eru í 18 manna æfinga-
hóp landsliðsþjálfarans, Sigurðar
Ingimundarsonar, og af þeim 12
sem hafa verið valdir fyrir leik-
inn í kvöld eru 8 frá Suðurnesj-
um, fjórir Keflvíkingar, þrír
Njarðvíkingar og Páll Axel Vil-
bergsson frá Grindavík.
18 manna hópurinn er þessi:
Hlynur Bæringsson - Snæfell
Sigurður Þorvaldsson - Snæfell
Fannar Ólafsson - Keflavík
Magnús Gunnarsson - Keflavík
Jón N. Hafsteinsson - Keflavík
Arnar Freyr Jónsson - Keflavík
Halldór Halldórsson - Keflavík
Friðrik Stefánsson - Njarðvík
Páll Kristinsson - Njarðvík
Páll Axel Vilbergsson - Grinda-
vík
Sævar Haraldsson - Haukar
Eiríkur Önundarson - ÍR
Ómar Örn Sævarsson - ÍR
Lárus Jónsson - Hamar
Pálmi Sigurgeirsson - Breiðablik
Morten Þór Szmiedowicz -
Grindavík
Jakob Sigurðsson - Birmingham
Southern
Helgi Magnússon - Catawba
College
Blaðamaður Víkurfrétta leit inn á
æfingu hjá strákunum í vikunni
og sagði þjálfarinn að hlutirnir
litu vel út fyrir leikina. Hann
getur þó ekki stillt upp sínu
sterkasta liði þar eð atvinnumenn
eins og Jón Arnór Stefánsson og
Logi Gunnarsson eru fjarverandi
vegna meiðsla eða annríkis.
„Mér líst mjög vel á þessa leiki“,
sagði Sigurður i samtali við Vík-
urfréttir. „Belgía er sterkt lið og
hefur farið illa með Ísland í síð-
ustu viðureignum liðanna, en ég
hef stillt upp æfingaleikjunum
fyrir Evrópukeppninna þannig að
þeir eru allir gegn sterkari and-
stæðingum en við munum mæta
í keppninni sjálfri í haust“.
Þrátt fyrir að um æfingu hafi ver-
ið að ræða tóku strákarnir engu
að síður vel á því og virtust vera
færir í flestan sjó fyrir leikina
gegn Belgum, en þar er valinn at-
vinnumaður í hverju rúmi.
Föstudagsleikurinn fer fram í
Íþróttahúsinu í Keflavík og hefst
kl. 21, eftir að leikjunum á EM í
knattspyrnu er lokið.
LANDSLIÐIÐ LEIKUR
VIÐ BELGA Í KEFLAVÍK
Ámánudaginn mætastGrindvíkingar og Kefl-víkingar í fyrri Suður-
nesjaslag sumarsins í Lands-
bankadeild karla í knatt-
spyrnu. Leikurinn fer fram í
Grindavík.
Síðasti leikur liðanna, haustið
2002, var sögulegur í meira
lagi þar sem Keflvíkingar unnu
stórsigur í Grindavík, 1-4. Það
dugði þó ekki til og misstu þeir
sæti sitt í úrvalsdeildinni þrátt
fyrir það.
Hins vegar er saga síðustu ára á
bandi Grindvíkinga vegna þess
að Keflvíkingar höfðu fyrir
þann leik ekki unnið Grindavík
síðan 1998. Frá því að Grind-
víkingar kepptu fyrst í efstu
deild sumarið 1995 hafa liðin
mæst 16 sinnum og hafa
Grindvíkingar unnið 7 sinnum
og Keflvíkingar 6 sinnum.
Þrisvar hafa liðin skilið jöfn að
skiptum og markatalan er 24-
22, Grindvíkingum í hag.
Hólmar Örn Rúnarsson hefur
verið með öflugri leikmönnum
Keflavíkurliðsins í sumar og
segir hann mikla tilhlökkun
ríkja fyrir þennan leik. „Það er
alltof langt síðan við kepptum
við þá. Það er allt öðruvísi að
fara inn í leiki við Grindavík
því að maður þekkir alla þar og
það skemmir ekki stemmning-
una að þetta verður sjónvarps-
leikur“. Hólmar leggur einnig
áherslu á að þeir megi alls ekki
við því að missa af stigum ef
þeir ætli að halda sér í toppbar-
áttunni. „Við megum ekki tapa
stigum núna þar sem að næstu
leikir munu segja til um hvar
við endum í deildinni“.
Hann er þó hvergi smeykur og
spáir sínum mönnum sigri 2-0.
Gestur Gylfason hjá Grindavík
gerir sér mæta vel grein fyrir
mikilvægi leiksins og hvað er í
húfi þar sem hann er borinn og
barnfæddur Keflvíkingur og
lék einnig með Keflavík í
áraraðir. „Jú, auðvitað er þetta
furðulegt, en þetta verður gam-
an. Þetta er sprækt lið og leik-
urinn verður ekki auðveldur“.
Gestur segir alla gera sér grein
fyrir mikilvægi leiksins. „Ef
illa fer hjá okkur í þessum leik
erum við að horfa upp á fall-
baráttu í sumar. Ég er bara að
vona að við förum að hitta á
góða leiki sem fyrst, en við
verðum í góðum gír á mánu-
daginn“.
G R I N D A V Í K - K E F L A V Í K
Grannaslagur
26. tbl. 2004 32 sidur umbrot 23.6.2004 13:19 Page 23