Víkurfréttir - 18.11.2004, Page 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
8 Fulltrúar Áhugahóps um örugga Reykjanesbraut funduðu með samgönguráðherra:TVÖfréttir
Þa ð e r m i n n v i l j i a ð út b o ð ve g n a á f r a m -haldandi framkvæmda
á Re y k ja ne sbr aut ve rð i á
fyrri part næsta árs og fram-
kvæmdir geti síðan hafist á
á r i nu 20 05”, s agði St u rla
Böðvarsson, samgönguráð-
herra á fundi með fulltrúum
áhugahóps um örugga Reykja-
nesbraut í húsakynnum ráðu-
neytisins sl. föstudag.
Ráðherrann upplýsti fulltrúa
áhugahópsins um að beðið
væri ef t i r að gerð f járlaga
myndi ljúka og samgöngu-
áætlun í framhaldi af því. Eins
og fram hefur komið liggur
f y r ir f restun f ramkvæmda
fyrir tvo milljarða á næsta ári.
„ F l j ó t l e g a e f t i r á r a m ó t
munum við teikna upp fjög-
urra ára áætlun þar sem gert
verður ráð fyrir f jármagni í
Reykjanesbrautina”, sagði ráð-
herrann við fulltrúa áhuga-
hópsins sem mættu á fund hans
til að fá skýr svör við hvernig
áframhald framkvæmda yrði
háttað á Reykjanesbraut.
Eins og f ram hefur komið
fundaðu fulltrúar áhugahóps-
ins með öllum þingmönnum
kjördæmisins í síðustu viku þar
sem þeir lýstu því yfir að fram-
kvæmdir við Reykjanesbraut
yrðu í forgangi. Á þeim fundi
komu upp ýmsar hugmyndir
s.s. eins og hvort möguleiki
væri á einkaframkvæmd með
gjaldtöku, hvort von væri á
auknu fjármagni vegna auk-
inna tekna af bensíngjaldi og
fleira.
Ráðherrann þakkaði áhuga-
hópnu m f y r i r ha ns f ra m-
lag í tvöföldun brautarinnar
sem og samstarfið við hann
og Suðurnesjamenn. Hann
óskaði eftir því við fulltrúa
hópsins að þeir myndu heim-
sækja Umferðarstofu en þar er
mikið átak í gangi framundan í
umferðaröryggi.
Útboð og framkvæmdir hefjast á næsta ári
Viðræður um varnar-
liðið hefjast í janúar
Farþegi pallbifreiðar k a s t a ð i s t n o k k r a m e t r a i n n á b í l a -
stæði v ið Fa x abraut i na
á mánudagsk völd þegar
fólksbifreið lenti í árekstri
við pallbifreiðina. Slysið
atvikaðist þannig að öku-
maður fólksbifreiðar ók
austur Faxabraut og missti
þar stjórn á bifreið sinni í
snjó og hálku. Við það sné-
rist bifreiðin á veginum og
hafnaði á pallbifreið sem
var stopp í vegarkantinum
og var að hleypa út farþega.
Við höggið kastaðist farþeg-
inn nokkra metra inn í inn-
keyrslu við götuna. Lögregla
og sjúkra l ið voru þegar
kölluð til og var maðurinn
fluttur á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja t i l skoðunar.
Hann kenndi sér meins
í lær i , en va r ek k i t a l-
i n n a lva r lega s l a s aðu r.
Umtalsvert eignatjón varð á
bílum í árekstrinum.
Íshús Njarðvíkur ehf. hefur verið úrskurðað gjaldþrota, en bú fyrir-
tækisins var tekið til gjald-
þrotaskipta í héraðsdómi
Reykjaness 7. október sl.
Fyrir um tveimur árum stóð
Íshús Njarðvíkur ehf. fyrir
björgunaraðgerðum vegna
fjölveiðiskipsins Guðrúnar
Gísladóttur sem strand-
aði við Lófóten í Noregi.
Björgunaraðgerðir tókust
ekki og hvílir skipið enn á
hafsbotni.
Farþegi kastaðist
nokkra metra
við árekstur
Íshús Njarðvíkur
gjaldþrota
π
Fréttavaktin
í síma 898 2222
allan sólarhringinn
Viðræður Íslands og Bandaríkjanna um varnarsamstarf landanna hefst í janúar á næsta ári. Var þetta meðal þess sem kom fram á fundi Davíðs Oddssonar utanríkis-
ráðherra og Colin Powell utanríkisráðherra Bandaríkjanna í
Washington á þriðjudag.
Eftir fundinn í Washington sagði Davíð Oddsson í samtali við
Morgunblaðið að hann liti svo á að það sé orðið viðurkennt
sjónarmið að það eigi að vera tilteknar varanlegar loftvarnir á
Íslandi og í samræmi við varnarsamninginn á milli Íslands og
Bandaríkjanna. Þá sagði Davíð einnig að gert sé ráð fyrir því að
Íslendingar taki á sig aukna hlutdeild í kostnaði sem fellur til
vegna reksturs Keflavíkurflugvallar og aukins borgaralegs f lugs
á vellinum. Sagði Davíð í samtali við Morgunblaðið að hann teldi
að málið væri komið í öruggari farveg þó hann væri ekki orðinn
endanlegur.
Byggingar Rockville á Miðnesheiði verða að öllum lík-indum rifnar niður á næsta ári. Forvalsnefnd utanríkis-ráðuneytisins auglýsti í sunnudagsblaði Morgunablaðsins
eftir fyrirtækjum til að taka þátt í forvali vegna niðurrifs á
byggingum í Rockville. Í forvalinu er einnig gert ráð fyrir nið-
urrifi olíutanka, lagna og girðinga á efra Nikkelsvæði og víðar á
varnarsvæðinu.
Allt frá því að meðferðarheimilið Byrgið fór úr Rockville hefur
staðið til að rífa byggingar á svæðinu niður. Vegna fjárskorts hefur
Varnarliðið ekki haft tök á því að hreinsa svæðið.
Rockville rifið
á næsta ári?