Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.11.2004, Qupperneq 23

Víkurfréttir - 18.11.2004, Qupperneq 23
VÍKURFRÉTTIR I 47. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 18. NÓVEMBER 2004 I 23 Keflavík mætir dönsku meisturunum Bakken Bears í Bikarkeppni Evrópu í kvöld. Óhætt er að lofa stórleik þar sem Danirnir hafa á sterku liði að skipa og eru meðal annars með einn sterkasta leikmann landsins innanborðs. Sláturhúsið í Sunnubraut hef- ur verið óhemju sterkt v ígi Keflvíkinga í keppninni síðustu tvö ár og nú reynir enn á. Sigurður Ingimundarson, þjálf- ari Keflvíkinga, segir sína menn taka slaginn með tilhlökkun. „Við ætlum að sýna enn betri leik en síðast. Danirnir eru með hörkulið og hafa unnið f lesta sína leiki í deildinni þannig að við förum inn í þennan leik af fullri alvöru, enda erum við ekki í neinni aðstöðu til að vera að vanmeta mótherjana í þess- ari keppni.“ Sigri Kef lavík í kvöld er staða þeirra í riðlinum ansi vænleg þar sem þeir eru nær búnir að tryggja sér annað af efstu sætunum og þar af leiðandi þægilegri mótherja í úrslita- keppninni. Þrátt fyrir að stemmningin í húsinu hafi verið mögnuð voru þó nokkur sæti laus og eru allir hvattir til að mæta á völlinn og láta heyra í sér. Leikirnir hin- gað til hafa verið það besta og skemmtilegasta sem körfubolti hefur upp á að bjóða hérlendis. Körfuboltaveisla í Keflavík Undanúrslitaleikir Hóp-bílabikars karla fara fram í Laugardalshöll á morgun. Úrslitaleikurinn verður svo háður á laugardag- inn. Grindavík-Snæfell Í fyrri undanúrslitaleiknum, sem hefst kl. 18.30 á morgun, mætast Grindavík og Snæfell. Liðin áttust við í Intersport- dei ld i n n i f y r i r skem mst u og báru þeir fyrrnefndu sig- u r ú r bý t u m í hörk u le i k . Það gildir þó einu þegar út í bi k a r le i k i e r kom ið seg i r Kristinn Friðriksson, þjálfari Grindavíkur. „Þetta eru allt sterk lið sem eru í undanúr- slitunum og þau hafa öll mi- kinn sigurvilja. Það verður dagsform liðanna sem á eftir að ráða úrslitum.” Grindvíkingar urðu fyrir áfalli í vikunni þar sem Justin Miller, miðherji liðsins, hélt heim til Bandaríkjanna og verður róð- ur þeira þyngri fyrir vikið. Engum blöðum er þó að fletta um að þeir hafa breiðan hóp og spræka leikmenn sem geta fyllt í skarðið. Njarðvík-Keflavík Seinni undanúrslitaleikurinn hefst k lukkan 20.30 annað kvöld þar sem erkifjendurnir Kef lavík og Njarðvík mætast. Hver einasta viðureign þess- arra liða einkennist af mikil- li baráttu þar sem ekkert er gefið eftir. Leikmenn og stuð- ningslið þeirra vita fátt sárara en að tapa í þessum uppgjör- um. „Leikir milli Kef lavíkur og Njarðvíkur eru alltaf eft- irminnilegir,” segir Sigurður Ingimundarson hjá Kef lavík og segir sína menn hlakka til grannaslagsins. Hann gefur lítið fyrir vangaveltur um hvort álagið á hans menn sé of mikið, en þeir gætu þurft að spila þrjá stórleiki á jafnmörgum dögum komist þeir í úrslit. „Þetta er bara gaman. Þetta er það sem körfubolti snýst um.” Einar Árni, þjálfari Njarðvíkur, sagðist viss um að Keflvíkingar mæti tilbúnir til leiks þrátt fyrir stórleik kvöldsins áður. „Annars reikna ég með að við- ureignin verði einn skemmti- legasti leikur vetrarins. Liðin tvö hafa leikið mjög vel að undanförnu og þetta verður hörkuleikur eins og alltaf.“ Suðurnesjalið í eldlínunni í Hópbílabikarnum VF-mynd/Hilmar Bragi Gunnar Einarsson, fyrirliði Keflavíkur, hefur reynst sínum mönnum drjúgur í Evrópuleikjum vetr- arins og mun enn reyna á hann í kvöld þegar Keflvíkingar taka á móti Bakken Bears. VF-mynd/Þorgils Jónsson Mikið mun mæða á Darrel Lewis í úrslitum Hópbílabikarsins um helgina. Grindvíkingar mæta Snæfelli í undanúrslitum á morgun. Grindavík bar sigurorð af Keflvíkingum á Íslandsmótinu í 9. flokk kvenna um síðustu helgi. Lokatölur voru 36-62 fyrir Grindavík sem hefur á að skipa afar öflugu liði Um næstu helgi fer fram B i k a r k e p p n i S S Í í Sundhöll Reykjavíkur. Lið ÍRB hefur að þessu sinni á að skipa tveimur liðum. Eitt í 1. deildinni og annað ungt lið í 2. deildinni. Undanfarin tvö ár þá hefur lið ÍRB sigrað í Bikarkeppninni með glæs- ibrag og í ár þá er stefnan sett á þriðja titilinn í röð. Liðið í annari deildinni ætlar sér ein- nig stóra hluti og stefnir að sjálfsögðu á sigur. Forsvarsmenn sunddei ldar ÍRB segja þannig hugsanagang einmitt vera sérkenni og sér- staða sundfólks í ÍRB og hvetja sundáhugamenn og íþrótt- aunnendur úr Reykjanesbæ til að mæta og hvetja okkar frá- bæru sundmenn. Bikarkeppni SSÍ 2004: Sigrar ÍRB þriðja árið í röð?

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.