Víkurfréttir - 18.11.2004, Side 15
VÍKURFRÉTTIR I 47. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 18. NÓVEMBER 2004 I 15
Perlu Gullmolar
8Sigríður Kristjánsdóttir tók saman
Breyting á stöðu yfirmanns varnarliðsins þýðir ekki að flugherinn sé að taka við rekstri stöðvarinnar af flotanum. Þetta
segir Robert S. McCormick nýr yfirmaður
Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli en hann
er ofursti í f lugher Bandaríkjanna.
Segir hann engar ákvarðanir
hafa verið teknar um slíkar
breytingar, enda háðar
samráði íslenskra og
bandarískra stjórn-
valda.
A ð s p u r ð u r u m
samdrátt í starfs-
emi Varnarliðsins
sem verið hefur
í f r é t t u m a ð
undanförnu og
teng i s t brey t-
ingum á skipan
Bandaríkjaf lota
í Ev rópu seg i r
McC or m ick að
breytingarnar hér
á landi séu í takt
við minnkuð umsvif,
enda sjái f lotinn um
rekstur þjónustustofn-
ana Vanarl iðsins. „Þetta
bitnar þó ekki á skuldbind-
ingum vegna varnarsamningsins
og er í samræmi við bókun við varnarsamn-
inginn sem gerð var árið 1996 þar sem segir að
báðir aðilar muni sem fyrr leitast við eftir því
sem við verður komið að draga úr kostnaði á
varnarsvæðinu,“ sagði McCormick í samtali við
Víkurfréttir.
Friðþór Eydal upplýsingafulltrúi Varnarliðsins
segir að yfirstjórn varnarliðsins sé svonefnd
sameinuð herstjórn sem þýði að yfir-
maður hennar geti verið úr öllum
greinum Bandaríkjahers.
Yfirmaðurinn heyri undir
Ev rópu he r s t jór n i na
og stjórni aðgerðum
og samræmi störf
þ e i r r a e i n i n g a
sem honum eru
lagðar til. „Þessar
einingar nefn-
ast í e inu lag i
Va r n a r l ið ið á
Íslandi, og eru
f lugher til loft-
varna, f lugdeild
f lotans til eftir-
lits með skipa og
kafbátaferðum og
f l o t a s t ö ð i n s e m
a n n a s t r e k s t u r
va r na rs töðva r i n na r
á Kef lav í ku r f lug vel l i
og rekstur og þjónustu á
öðrum varnarsvæðum. Starfið
hefur verið í höndum sjóliðsforingja
á undanförnum árum, en foringjar úr f lug-
her og landher hafa einnig gegnt þessari stöðu,“
segir Friðþór.
8 Yfirmenn Varnarliðsins oftast komið úr flotanum:
Flugherinn ekki að taka við
Ökumaður sem átti leið sína um Hafnargötu í síðustu viku lenti í þeirri miður skemmtilegu reynslu að keyra á kant umferðareyju sem sást mjög illa sökum þess að
nýfallinn snjór lá yfir öllu.
Engar merkingar eru enn komnar upp á eyjunum á götunni
þannig að erfitt var að greina þær. „Þetta sést nú ekki svo vel fyrir
og myrkrið og snjórinn var ekki til að bæta það,” sagði ökumað-
urinn í samtali við Víkurfréttir.
Felgan á framhjóli bifreiðarinnar skemmdist nokkuð og stórt gat
kom á dekkið sem er ónýtt eftir atganginn.
Lögreglan sagði að búast hefði mátt við slíku en þeir hefðu þó
ekki fengið aðrar tilkynningar um slíkt. Skoða þyrfti þessi mál til
að koma í veg fyrir að fleiri biðu skaða af.
Viðar Már Aðalsteinsson, forstöðumaður Umhverfis og skipulags-
sviðs Reykjanesbæjar, staðfesti við Víkurfréttir að þeir hefðu vitað
af þessu vandamáli. Bæjarstarfmenn væru þegar farnir að útbúa
skiltin og bjóst hann við því að þau yrðu sett upp í þessari viku.
Ómerkt umferðareyja
veldur skemmdum
Perlunýjungar!
Sigríður Kristjánsdóttir, eigandi Perlunnar, er nýkomin frá Blackpool af FitCamps ráðstefnu sem haldin var um helgina. Boðið var uppá margt nýtt þetta árið og má þar
nefna nýju spinning hjólin sem eru með hreifanlegt stýri, ný
útfærsla af pöllum, dans, box, boltaleikfimi og margt fleira
spennandi.
Sigríður kom með ýmsar nýjungar heim af námskeiðinu sem
munu nýtast viðskiptavinum Perlunnar. Einnig var mikið af
nýrri tónlist og margir góðir fyrirlestrar t.d um matarræði,
bakvandamál og mikilvægi þess að leggja rækt við líkamann.
Einnig var séstakur fyrirlestur um börn á aldrinum 9 til 15 ára
og hvernig hægt sé að sporna við offituvandamálum allsstaðar í
heiminum með hvatningu og réttri og skemmtilegri hreyfingu.
Perlan mun byrja á einhverjum nýjungum fyrir jól en svo
verður allt nýtt komið í byrjun janúar. Einnig verður önnur
ráðstefna í byrjun apríl á næsta ári og að sjálfsögðu verður
Perlan með þar!
Umferðareyjan var mjög
illgreinileg eins og sést á
þessari mynd. Á innfelldu
myndinni sést felgan sem
skemmdist.