Víkurfréttir - 18.11.2004, Qupperneq 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Fjölmenni var við fyrstu skóflustungu að Íþrótta-akademíu í Reykjanesbæ
á laugardag. Skóflustunguna
tók fjöldi afreksfólks í
íþróttum í Reykjanesbæ.
Má þar nefna bikar- og
Íslandsmeistara karla í körfu,
meistara meistaranna í körfu,
bikar- og Íslandsmeistara
kvenna í körfu, bikarmeist-
ara karla í knattspyrnu,
meistara í 1. deild kvenna
í knattspyrnu, bikar- og
Íslandsmeistara í sundi, hest-
aíþróttum, íþróttum fatlaðra,
meistara í golfi og keilu.
Skóflustungurnar voru síðan
teknar í flóðlýsingu rauðra
blysa sem tendruð voru af
þessu tilefni.
Húsið verður alls 2.700 m2,
að hluta á tveimur hæðum, og
er áætlaður byggingarkost-
naður um 450 milljónir króna.
Byggingu fyrsta áfanga verður
lokið næsta haust og er gert ráð
fyrir að skólastarf hefjist í sept-
ember 2005. Verkið var boðið
út í október sl og áttu Íslenskir
Aðalverktakar lægsta tilboð í
verkið. Það var þó yfir áætl-
uðum framkvæmdakostnaði,
en hönnuðir, ásamt aðalverk-
taka hafa unnið við að finna
leiðir til að lækka byggingar-
kostnað niður fyrir kostnaðar-
markmið Eignarhaldsfélagsins
Fasteignar hf., sem verður
eigandi húsnæðisins.
Gert er ráð fyrir að nemendur
á fyrsta ári skólans verði
um 30 talsins en þeim mun
fjölga ört á næstu árum í 110
nemendur á þriðja starfsári
skólans. Íþróttaakademían
mun auk nýbyggingarinnar
nýta sér til kennslu og rann-
sókna þau afburða íþrótt-
amannvirki sem fyrir eru í
Reykjanesbæ, auk þeirra sem
byggð verða á næstu árum.
Á 1. hæð hússins verður m.a.
fyrirlestrarsalur, kennslustofur
og stór íþróttasalur 20x40m. Á
efri hæð verður svo kennslu-
og rannsóknaaðstaða ásamt
bókasafni og kennaraaðstöðu
svo eitthvað sé nefnt. Gert er
ráð fyrir að Íþróttaakademían
byggist í næstu áföngum
í átt að Njarðarbraut.
Á fimmtudaginn var gengið
frá stofnun sálfseignarstofn-
unar um Íþróttaakademíu.
Þar var Geir Sveinsson ráð-
inn framkvæmdastjóri
Þá var skipuð fyrsta stjórn
Íþróttaakademíunnar, en í
henni sitja Árni Sigfússon, for-
maður, Hrannar Hólm, vara-
formaður, Una Steinsdóttir,
ritari, Geirmundur
Kristinsson og Sigurður Valur
Ásbjarnarson meðstjórn-
endur. Í varastjórn eru Geir
Newman og Böðvar Jónsson.
Verkefni Íþróttaakademíunnar
eru þríþætt: Háskólanám í
íþróttafræðum til BS-gráðu
sem stjórnað er af Háskólanum
í Reykjavík og hefst haustið
2005, funda- og námskeiða-
hald um íþrótta- og heils-
utengt efni í samstarfi við
íþróttahreyfinguna, HR
og heilbrigðisstofnanir, og
aðstaða fyrir fjarkennslu í
ýmsum námsgreinum en yfir
100 nemendur stunda nú fjar-
nám á vegum Miðstöðvar
símenntunar á Suðurnesjum.
8 Stór dagur í íþrótta- og menntamálum á Suðurnesjum:
Íþróttaakademía opnar að ári
410 4000 | landsbanki.is
Banki allra landsmanna
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun og/eða fjölbreytt starfsreynsla æskileg
• Frumkvæði, þjónustulund og söluhæfileikar
• Markviss og sjálfstæð vinnubrögð
• Hæfni í mannlegum samskiptum
Helstu verkefni:
• Sala og þjónusta við einstaklinga og fyrirtæki
• Leiðbeiningar/fjármálaráðgjöf til einstaklinga
• Upplýsingagjöf um vörur og þjónustu Landsbankans
Laun eru samkvæmt kjarasamningi bankamanna.
Nánari upplýsingar veita Valdimar Einarsson, útibússtjóri í
Grindavík, í síma 426 9101 og Bergþóra Sigurðardóttir,
Starfsmannasviði Landsbankans, í síma 410 7907.
Umsóknir sendist í tölvupósti á bergsig@landsbanki.is
fyrir 25. nóvember nk.
Landsbankinn er eitt stærsta
fjármálafyrirtæki landsins og veitir
alhliða fjármálaþjónustu til
einstaklinga, fyrirtækja og stofnana.
Landsbankinn leitast við að ráða til
sín og hafa í sínum röðum
framúrskarandi starfsfólk og efla það
í störfum sínum.
Til að stuðla að vexti og arðsemi
bankans er áhersla lögð á skemmti-
legan vinnustað, starfsánægju og
gott starfsumhverfi sem og markvissa
starfsþróun og þekkingu starfsfólks.
Það er viðhorf stjórnenda Lands-
bankans að starfsfólkið, metnaður
þess, kraftur og hollusta, sé lykillinn
að farsælum rekstri bankans.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
64
88
11
/2
00
4
Landsbankinn Grindavík
- Þjónustufulltrúi
Laust er til umsóknar starf þjónustufulltrúa
við útibú Landsbankans í Grindavík
Fjölmenni var við fyrstu skóflustungu að Íþrótta-akademíu í
Reykjanesbæ á laugardag. Skóflustunguna tók fjöldi afreksfólks
í íþróttum í Reykjanesbæ. Má þar nefna bikar- og Íslandsmeistara
karla í körfu, meistara meistaranna í körfu, bikar- og Íslandsmeistara
kvenna í körfu, bikarmeistara karla í knattspyrnu, meistara í 1. deild
kvenna í knattspyrnu, bikar- og Íslandsmeistara í sundi, hesta-
íþróttum, íþróttum fatlaðra, meistara í golfi og keilu. Hér má sjá
nokkra af gestum samkomunnar við undirritun samninga.