Víkurfréttir - 18.11.2004, Síða 27
VÍKURFRÉTTIR I 47. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 18. NÓVEMBER 2004 I 27
St e i n d ó r S i g u r ð s s o n f æ d d i s t á S i g l u f i r ð i 13. mars 1943. Ha nn
lést 12. nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar hans voru
h j ó n i n S i g u r ð u r A n t o n
Einarsson vélstjóri og bóndi
á Fitjum, Lýtingsstaðahreppi
Skagafirði, fæddur 12. apríl
1906, dá inn 27. nóvember
1968 og Helga Steindórsdóttir
húsmóðir og bóndi, fædd 21.
júlí 1918, dáinn 1. ágúst 1994.
Sigurður og Helga eignuðust
sjö börn saman en Sigurður
átt i einnig t vö börn áður,
Hafliði og Anna Sigurbjörg.
Stei ndór va r elstur syst k-
inanna; Margrét Sigurjóna,
A n n a , H e i ð a , S i g u r ð u r,
Sigmundur Einar og Ástríður
Helga.
Steindór ólst upp í Skagafirði,
en frá 1962 átti hann heima í
Njarðvík, síðar Reykjanesbæ.
H a n n k v æ n t i s t K r i s t í n u
Guðmundsdóttur 24. júlí 1965
og eiga þau fjögur uppkomin
börn: 1)Helga fædd 5. ágúst
1963, maki Einar Steinþórsson,
börn: Steinþór og Steindór,
2) Guðmundur fæddur 24.
apríl 1967, maki Marie Belinda
Michel, börn: María Árelía
o g K r i s t i n n , 3) I n g i b j ör g
Salóme fædd 24. maí 1968,
maki Sveinbjörn Bjarnason,
börn : Tinna Karen, Hek la
Dögg, Helgi Óttarr og Samúel
Skjöldur og 4)Sigurður fæddur
18. september 1971, maki Fríða
María Sigurðardóttir, börn
Steindór, Stefán Páll og Hanna
María.
Steindór starfaði í fyrstu við
landbúnað, fiskvinnslu og við
akstur bifreiða, en síðan sem
framkvæmdastjóri eigin fyrir-
tækis í tæp 20 ár. Starfsemi
þess var á sviði hópferða, sér-
ley f i sbi f re iða og g i s t i rek-
sturs, eða allt frá árinu 1970
til ársins 1989 er hann seldi
fyrirtækið Sérleyfisbifreiðum
Kef lavíkur (SBK) sem var í
eigu Kef lavíkurbæjar. Hann
tók þá við stöðu framkvæmd-
astjóra SBK sem hann gengdi
í tæp 10 ár. Árið 1998 söðlaði
Steindór um og gerðist sveitar-
stjóri Öxarfjarðarhrepps, þar
gengdi hann ýmsum störfum
á vegum sveitarfélagsins s.s.
hafnarstjóri, umhverfisstjóri og
hafði eftirlit með öllum fram-
kvæmdum, einnig í f lestum
sameiginlegum nefndum sveit-
arfélaganna. Steindór rak um
tíma litla verslun í Reykjavík
ásamt sonum sínum en hafði
nýverið hafið störf aftur hjá
SBK hf.
Steindór starfaði talsvert að fél-
agsmálum, en helstu félagsstörf
sem hann gengdi eru þessi:
Á árunum 1982 - 1986 var hann
varabæjarfulltrúi í bæjarstjórn
Njarðvíkur og bæjarfulltrúi frá
árinu 1986. Á árunum 1986
- 1990 var hann varaformaður
bæjarráðs Njarðvíkur og for-
seti bæjarstjórnar 1988-1990,
formaður ferðamálanefndar
Njarðvíkur 1990-1992. Þá var
hann formaður Umhverf is-
og fegrunarnefndar og vara-
maðu r í s t jór n Sa mba nd s
sveitarfélaga á Suðurnesjum
(S.S.S.) í Bláf ja l lanefnd og
varamaður í byggingarnefnd
Njarðvíkur frá árinu 1982 til
1990. Steindór hefur átt sæti
í ýmsum nefndum s.s. nefnd
u m s a m g ö n g u m á l , s k ó g-
ræktarátak, stjórn símennt-
u na r á Suðu r ne s ju m og í
Þingeyjarsýslum. Einnig kom
hann að stofnun Ferðamála-
sa mt a k a Suðu r ne s ja , en í
s t jórn þeirra samta ka át t i
hann sæti frá því þau voru
stofnuð þar t i l hann f lutt-
ist norður. Steindór átti sæti
í Ferðamálaráði Íslands frá
1989 - 1991 og var formaður
s t jór n a r B . S . Í . hópfe rð a-
bíla og stjórnarformaður BSÍ
(Umferðarmiðstöðvarinnar
í R e y k j a v í k) u m á r a b i l .
Reykjanesbær varð til 1994,
við sameiningu Kef lavíkur,
Njarðvíkur og Hafna og átti
Steindór þess kost að koma
þar að undirbúningi og vera í
framlínunni við að setja saman
hið nýja sveitarfélag. Hann sat
í fyrstu bæjarstjórn og bæjar-
ráði Reykjanesbæjar, sem var-
aformaður bæjarráðs og vara-
forseti bæjarstjórnar. Þá sat
hann í nafnanefnd þegar nafn
var fundið á nýtt sveitarfélag.
Steindór verður jarðsettur 19.
nóvember í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju kl 14.
Steindór Sigurðsson látinn
8 Andlát:
Sýslumaðurinn í Keflavík
Vatnsnesvegi 33, 230
Keflavík, s: 4202400
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftir-
farandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir
Garðbraut 66, 209-5435, Garði,
þingl. eig. Viktor Þór Reynisson,
gerðarbeiðendur Gerðavör
ehf, Húsasmiðjan hf, Ísfell ehf,
Íslandsbanki hf, útibú 528 og
Sjóvá-Almennar tryggingar hf,
miðvikudaginn 24. nóvember
2004 kl. 10:45.
Hafnargata 28, fnr. 209-6410,
Vogum, þingl. eig. Ragnar
Óskarsson, gerðarbeið-
endur Íbúðalánasjóður og
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda,
miðvikudaginn 24. nóv-
ember 2004 kl. 11:30.
Hlíðargata 22, fnr. 209-
4781, 0101, Sandgerði, þingl.
eig. María Bjarnveig
Ragnarsdóttir og Stefán
Hjaltalín Kristinsson, gerð-
arbeiðandi Íbúðalánasjóður,
miðvikudaginn 24. nóv-
ember 2004 kl. 10:30.
Suðurgata 1, fnr. 209-5055,
Sandgerði, þingl. eig. Jóhanna B
Kristjánsdóttir, gerðarb-
eiðendur Íslenskir aðal-
verktakar hf og Leifur
Árnason, miðvikudaginn 24.
nóvember 2004 kl. 10:15.
Túngata 18, fnr. 223-0079, 0201,
Keflavík, þingl. eig. Guðmundur
Reynisson, gerðarbeiðendur
Íbúðalánasjóður, Samkaup hf og
Sjóvá-Almennar tryggingar hf,
miðvikudaginn 24. nóv-
ember 2004 kl. 09:45.
Vallargata 19, fnr. 209-5243,
16,98% eignarhluti Einars
Valdimars, Sandgerði, þingl.
eig. Magnús Óskar Ingvarsson,
Þorgerður Magnúsdóttir og
Einar Valdimar Ingvarsson,
gerðarbeiðandi Ríkisútvarpið,
miðvikudaginn 24.
nóvember 2004 kl. 10:00.
Víkurbraut 9, fnr. 209-
2484 Grindavík, þingl.
eig. Sigvaldi Eiríkur
Hólmgrímsson, gerðarbeiðandi
Sparisjóður Hafnarfjarðar,
miðvikudaginn 24.
nóvember 2004 kl. 13:30.
Þórustígur 4, 0201, fnr. 223-
0261, Njarðvík, þingl. eig.
Valgerður G Eyjólfsdóttir, gerð-
arbeiðendur Íbúðalánasjóður og
Reykjanesbær, miðvikudaginn
24. nóvember 2004 kl. 11:00.
Sýslumaðurinn í Keflavík,
16. nóvember 2004.
Jón Eysteinsson
SMÁAUGLÝSINGAR BERIST TIL VÍKURFRÉTTA
FYRIR KL. 17 Á ÞRIÐJUDÖGUM.
SMÁAUGLÝSINGAR KOSTA KR. 500,-
SÍMINN ER 421 0000